Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 36
Lœkjargata lob eftir brunann h. io. marz s.l.
ingabækur og nánari ákvæði um
frumbækur.
Ráðherra er heimilað að fyrir-
skipa staðlað bókhaldsskipulag (eða
stöðluð reikningsskil) fyrir ákveðn-
ar atvinnugreinar, en það gæti orð-
ið til verulega aukins hagræðis við
allar hagrannsóknir á afkomu ein-
stakra atvinnugreina o. s. frv.
Nefndin, sem unnið hefur að
samningu lagafrumvarpsins, hefur
ekki enn gengið frá endanlegu áliti,
en þess er þó að vænta bráðlega.
Iðnþróunarróð.
Hinn 6. desember 1966 flutti iðn-
aðarmálaráðherra Jóhann Hafstein
ræðu á Alþingi, er hann lagði fram
frumvarp til laga um breytingu á lög-
unum um Iðnlánasjóð. Gat ráðherr-
ann þess þar, að iðnaðarmálaráðu-
neytið hefði verið í nokkurri endur-
skoðun og endurskipulagningu.
Ráðuneytið hefði haft litlu starfs-
liði á að skipa, en úr því hefði nokk-
uð rætzt á s.l. hausti. Þá hefði það
og orðið að samkomulagi innan rik-
isstjórnarinnar, að iðnaðarmálaráð-
herra skipaði svokallað iðnþróunar-
ráð, sem yrði til styrktar ráðuneytinu
um meðferð meiriháttar mála, sem
snerta iðnþróun landsins.
Landssambandi iðnaðarmanna
barst bréf h. 7. nóv., þar sem beðið
er um tilnefningu fulltrúa í ráðið. 1
bréfinu ':’t þess getið, að Iðnþróun-
arráð eigi að vera iðnaðarmálaráðu-
neytinu til styrktar um meðferð
meiriháttar mála, er snerta iðnþró-
un landsins. Er iðnþróunarráði ætl-
að að starfa að verkefnum, sem að
nokkru séu framhald verkefna Stór-
iðjunefndar, en þó verði verkefni
Iðnþróunarráðs víðtækari, þar sem
því er ætlað að fjalla um iðnþróun
landsins almennt.
Iðnþróunarráð er þannig skipað,
að eftirtaldir aðilar tilnefna hver
sinn fulltrúa í ráðið og er iðnaðar-
málaráðherra formaður þess: Seðla-
banki íslands, Framkvæmdasjóður
Islands, Iðnlánasjóður, Efnahags-
stofnunin, Iðnaðarmálastofnun Is-
lands, Félag íslenzkra iðnrekenda,
Landssamband iðnaðarmanna, Tðn-
aðardeild SlS og Iðja, félag verk-
smiðjufólks í Reykjavík.
Fulltrúi Landssambands iðnaðar-
manna í Iðnþróunarráði er Bragi
Hannesson, bankastjóri.
Bruni IðnaSarbankahússins.
Að morgni föstudagsins 10. marz
s.l. kom upp eldur í húsinu Lækjar-
götu i2a, sem var næsta hús sunnan
við Iðnaðarbankahúsið. Eldurinn
læsti sig þegar í Iðnaðarbankahúsið
og komst inn á allar hæðir þess nema
götuhæð. Skrifstofur Landssambands
iðnaðarmanna voru á 4. hæð húss-
ins, en þá hæð höfðu Landssamband-
ið og Félag íslenzkra iðnrekenda
keypt af Iðnaðarbankanum árið 1962
og haft skrifstofur sínar þar síðan.
Allar innréttingar á hæðinni ger-
eyðilögðust og einnig mest allt inn-
bú. Landssambandið varð fyrir miklu
tjóni, þar sem mikill hluti skjala-
safns þess eyðilagðist, svo og flestar
fundargerðarbækur stjórnarinnar og
allar fundargerðabækur iðnþinganna
frá upphafi.
Skrifstofuáhöld og húsgögn Lands-
sambandsins voru tryggð fyrir kr.
200.000,00, en endurkaupsverð þess-
arrra muna verður sennilega nokkru
hærra og verður Landssambandið
því óhjákvæmilega fyrir talsverðu
fjárhagslegu tjóni við brunann.
Eftir brunann flutti Landssam-
bandið skrifstofu sína til Meistara-
sambands byggingamanna í Skip-
holti 70 og hefur verið þar síð-
an.
Endurbyggingu húsnæðisins í
Lækjargötu hefur miðað nokkuð
seint áfram, en vonir standa til, að
unnt verði að flytja þangað aftur
innan fárra vikna. Nokkrar breyting-
ar verða gerðar á innréttingu hús-
næðis Landssambandsins miðaðar
við breyttar þarfir, m. a. vegna til-
komu nýs starfsmanns.
Tímarit iðnaSarmanna.
Frá því að síðasta iðnþing var
haldið hafa komið út þrjú hefti af
Tímariti iðnaðarmanna og hið fjórða
mun væntanlegt næstu daga. Otgáfa
tímaritsins er stöðugt háð sömu ann-
mörkum og áður, efnisöflun er ýms-
um vandkvæðum bundin og tefur út-
komu tímaritsins. Ekki hefur verið
hægt að koma til móts við óskir
iðnþinga um birtingu kauptaxta og
verðlags á ýmsum varningi vegna
þess hve tímaritið kemur óreglulega
út. Á þessu iðnþingi verður útgáfu-
starfsemi Landssambandsins tekin til
umræðu og lagðar fram tillögur um
breytta skipan þessara mála í fram-
tíðinni.
140
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA