Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 41

Tímarit iðnaðarmanna - 01.12.1967, Page 41
Aldarminning íðnaðarmanna 3. febrúar 1967 Nú stöndum vér á merkum tímamótum og mætumst því til fagnaðar í kvöld. Og manna þeirra minnast fyrst vér bljótum, sem merkið reistu fyrir heilli öld; og hófu sókn með sigurvon í hjarta, sannfærðir um landsins framtíð bjarta. Um þær mtindir var hér vakning hafin, að vekja frelsisneista í þjóðarsál, sem hafði um aldir legið gleymzku grafinn, en glœða mátti í óslökkvandi bál. Nú skyldi ísland endurheimta frelsið, og endanlega rofið þrœldómshelsið. En hvað var frelsi, ef athöfn fylgdi eigi, svo öðlast gæti þjóðin daglegt brauð? Hún myndi aftur illa stödd á vegi, og innan tíðar þróttlítil og snauð. Hér þurfti samstillt átak þúsund handa, ef þjóðin vildi á eigin fótum standa. Hér varð að skapa verkmenningu nýja og vinna fyrir kynslóðanna börn, sem annars hefðu orðið land að flýja, hvað öllum þótti smán og neyðarvörn. Hér varð að þróast iðnaður og iðja, og að því vildu þegnar landsins styðja. Afbragðsmenn þar fóru í fararbroddi og fjöldinn síðar gekk í þeirra slóð, sem börðust fyrir því með egg og oddi, að ísland byggði frjáls og starfsöm þjóð, sem vildi attri veröldinni sanna, hér væri athvarf frjálsborinna manna. En mörg og erfið voru vandamálin, sem varð að leysa, bœði stór og smá. Og fram var sótt þótt syrta tæki í álinn, og sigri skyldum vér að lokum ná með einum vilja, hertum í þeim eldi, sem ísland geymir hulinn klakafeldi. En bráðum tók að birta af degi nýjum, setn bliki sló á vonalöndin heið; og frelsisvindar feyktu burt þeim skýjum, sem fram til þessa huldu þráða leið. Hver áfanginn varð auðsóttari núna, er öðlast hafði fólkið sigurtrúna. Nú byggir landið þjóð á þroskavegi, sem þræðir örugg sinnar gœfuspor. Og frjálshuga hún fagnar hverjum degi, sem fœrir henni aukinn mátt og þor. Við hetjur þær í þakkarskuld vér stöndum, sem þjóð og landi burgu úr tröttahöndum. En bezt vér heiðrum minning þeirra manna, sem merkið reistu fyrir heilli öld, að hefja hér til valda verkmennt sanna og vígorð þeirra letra á vorn skjöld. Vér hefjum sókn með sigurvon í hjarta, sannfærðir um landsins framtíð bjarta. Jökull Pétursson, málaram. TÍMARIT IÐNAÐARMANNA 145

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.