Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1977, Síða 47
Sveinn Sigurðsson og Þór Sandholt með námskeiðsgögnin.
Laugardaginn 5. nóvember s.l. var haldin hér
ráðstefna um hinn „ljósa málm“, aluminium, —
ál — að tilhlutan norrænna samtaka um kynningu
og tæknilegar nýjungar í álframleiðslu og álnotk-
un, — SkanAluminium, sem hefur aðsetur í
Osló.
Ráðstefnan hófst í Álverinu við Straumsvík,
en ÍSAL hefur nýlega gerst aðili að þessum sanr-
tökurn og stóð að undirbúningi ráðstefnunnar
hérlendis, ásamt fulltrúum frá SkanAl, svo og
Iðnskólanum í Reykjavík, sem hýsti rá:ðstefnuna
síðdegis.
Þátttakendur voru um 80, kennarar tækni-
skóla, iðnskóla, fjölbrautarskóla og vélskóla, svo
og nokkrir tæknisinnaðir menn úr atvinnulífinu.
í Straumsvík fór fram kynning á framleiðslu
áls, bæði með skoðun álversins, fræðslu unr nýj-
ungar í framleiðsluháttunr, mengunarvörnum o.
fl., svo og með kvikmyndasýningum. — Að há-
degisverði loknum var lraldið í húsakynni Iðn-
skólans í Reykjavík og kl. 13.30 var ráðstefnunni
haldið áfram. Flutt voru erindi með skýringar-
myndum og skyggnum, en Ragnar S. Halldórs-
son, forstjóri ÍSAL. kynnti menn og málefni,
stjórnaði umræðum og svaraði fyrirspurnum ráð-
stefnugesta ásamt fyrirlesurum.
Meðal málefna sem fyrir voru tekin nrá nefna:
1. Magnar Henriksen, forstjóri SkanAl, ræddi um
ál og stöðu þess í nútíma samfélagi, hráefni o.
fl. við framleiðslu áls og blöndun við aðra
málma, svo og hin ytri skilyrði sem uppfylla
þarf við framleiðsluna. Þá kynnti hann sam-
starfsmenn sína innan SkanAl, sérsvið þeirra
og aðalviðfangsefni.
2. Útgáfustarfsemi SkanAl á ýmisskonar ritum,
Kynningarfundur
um ál og álframleiðslu,
7. nóvember 1975
Þór Sandholt
bæklingum og bókunr unr ál, svo sem kennslu-
bókum fyrir námskeið og skóla. Upplýst var að
slík fræðslurit muni verða þýdd á íslensku,
smátt og smátt. Fyrirlestur um þetta flutti upp-
lýsingastjóri samtakanna, Svend G. Sörensen.
Hann benti á, að SkanAl gengist fyrir hvers-
konar námskeiðum á Norðurlöndunr til kynn-
ingar á áli, nreðhöndlun þess, eiginleikum og
notkunarmöguleikum í iðnaði og húsagerð.
3. Ivar C. Walseht, yfirverkfræðingur fjallaði um
álsuðu, en þekking á því sviði var af skornum
skanrmti hérlendis lengi vel. Er í ráði að bæta
þar um með útgáfu handbókar á íslensku, og
með fræðslu í skólum. Færði Walseth Iðnskól-
anum í Reykjavík að gjöf gögn til notkunar við
kennslu í álsuðu. Þá fjallaði hann um hutverk
áls í bílaiðnaðinum og gerð einstakra hluta bif-
reiða úr áli.
4. Ingvar Pálsson verkfræðingur, forstöðumaður
rafgreiningar bjá ÍSAL, flutti nrjög skilmerki-
legt erindi um málmfræði áls, eiginleika þess
eftir blöndunarhlutföllum við aðra málma.
5. Olafur Guðmundsson, sölustjóri ÍSAL, fræddi
ráðstefnugesti unr hina margvíslegu notkunar-
möguleika áls, og sýndi í erindi sínu fram á, að
ál væri „nrálmur nröguleikanna".
Allir fyrirlesarar skýrðu erindi sín með mynd-
unr og línuritum, en auk þess voru þátttakendunr
látnar í té ýmis konar bækur og bæklingar um
málefnið, mikill fróðleikur í rituðu máli.
Meðan á ráðstefnunni stóð, lágu franrmi fjöl-
breytt sýnishorn af álframleiðslu, er sýndu ál
eftir nrisnrunandi yfirborðsmeðhöndlun og fram-
leiðsluaðferðunr, svo og meiriháttar rit og
kennslubækur. Framh. d bls. 45
TÍMARIT IÐNABARMANNA
41