NT


NT - 23.05.1984, Síða 26

NT - 23.05.1984, Síða 26
't'A Miðvikudagur 23. maí 1984 26 ■ Bogdan Kowalczyk og lærisveinar hans fara á Olympíuleikana í Los Angeles, svo fremi sem Austantjaldsþjóðirnar hætta ekki við að hætta, og Olympíunefnd íslands berist staðfesting á þátttökurétti liðsins frá IHF, Alþjóðahandknattleikssambandinu. „Þetta er endanlegt“ - segir Gísli Halldórsson formaður OL ■ „Þetta val, sem hér hefur verið kynnt, er frá okkar hendi endanlegt val olym- píuliðs íslands,“ sagði Gísli Halldórsson, formaður 01- ympíunefndar Islands á blaðamannafundinum í gær. „Frá okkur séð, bætast ekki fleiri við. Að sjálfsögðu munum við taka til athugun- ar ef einhver nær óvænt lág- marki, og á erindi á leikana, eins og við höfuni nú gert með handknattleikslandslið- ið, en þetta er með þeim ■ Gísli Halldórsson, for- fyrirvara endanlegt val“, maður Olympíunefndar ís- sagði Gísli Halldórsson. lands. Handboltalandsliðið á OL ef Austantjaldslöndin hætta ekki við að hætta: ■ Ef Austantjaldsþjóðirnar, Sovétríkin, Pólland, A-Þýskaland, Ungverjaland og Tékkóslóvakía, standa við það sem þær hafa gefið út um að mæta ekki á Olympíuleikana í Los Angeles, verða kepp- endur íslands þar a.m.k. 28, jafnvel 29. Olympíunefnd íslands til- kynnti á blaðamannafundi í gærmorgun að íslenska landsliðið í handknattleik mundi keppa á Olympíuleikunum í Los Angeles, samþykkti Alþjóðaolympíunefndin þá ráðstöfun, og Alþjóðahand- knattleikssambandið úrskurði Islands rétt til þátttöku í leikunum. Olympíunefnd íslands til- kynnti jafnframt fjölgun í öðrum greinum, frjálsíþrótta- menn yrðu 7, sundmenn 3 jú- dómenn 2, lyftingamenn 1, og handknattleiksmenn yrðu alls 20,15-16 leikmenn og þjálfarar og fararstjórar. Það þýðir að keppendur á leikunum verða a.m.k. 28, 29 ef 16 handknatt- leikskeppendur fara, og alls verður þá hópurinn sem fer, þar með talið fararstjórar, þjálfarar, liðsstjórar og aðstoð- armenn 40-45, endanleg tala er ekki fullákveðin. Víst er að fulltrúar sérsambandanna verða 1 frá LSÍ, 1 frá SSÍ, 1 frá JSÍ og 2 frá FRÍ, og síðan full- trúar Olympíunefndar. Aldrei áður hafa svo margir íslendingar farið sem keppend- ur á Olympíuleika, né sem heildarhópur. Árið 1948 fórú 22 keppendur til Lundúna, og alls 33. Árið 1972 fóru 26 kepp- endur til Munchen, þar af 16 handknattleiksmenn. Alls fóru til Munchen 36 manns. Eftirfarandi tilkynningum frá Olympíunefnd íslands var dreift til fjölmiðla á blaða- mannafundinum í gær: ' „Framkvæmdanefnd O.í. samþykkir að tilkynna þátttöku íslands í handknattleik á Olym- píuleikunum í Los Angeles, ef IHF Alþjóðahandknattleiks- sambandið úrskurðar íslandi rétt til þátttöku í leikunum, enda samþykki Olympíunefnd- in þessa ráðstöfun.“ -„Með tilliti til þess óvænta kostnaðai, sem samfara vcrður þátttöku Islands í handknatt- leik á Olympíuleikunum, sam- þykkir framkvæmdanefnd O.í. drættiásvipuðumgrundvelliog að hrinda af stað landshapp- gert var fyrir tveimur árum.“ Guðmundur Þórarinsson form. LSÍ: „Hefði viljað að tveir færu“ ■ Kristján Haröarson, Ármanni ■ Öskar Jakobsson, IR Aðrar greinar en handbolti: Sigurður Einarsson, Ár- Fimm bættust viðOlympíuhópinn Frjálsíþróttamenn og lyftingamenn hafa náð alþjóðlegum lágmörkum -sundmenn ekki ■ Þremur frjálsíþróttamönnum var í gær bætt formlega við í hóp þeirra frjálsíþróttamanna sem keppa munu á Olympíuleikunum í Los Angeles. Þessir frjálsíþróttamenn eru allir rétt við olympíulág- mark O.I. í sinni grein, Sigurður Einarsson spjótkastari úr Ár- manni, Kristján Haröarson langstökkvari úr Armanni og Óskar Jakobsson kúluvarpari úr ÍR. Að auki var bætt í hóp keppenda ís- lands í Los Angeles lyftingamanninum Haraldi Ólafssyni ÍBA, og sundmanninum Inga Þór Jónssyni í A. ■ Haraldur Ólafsson, ÍBA ■ Ingi Þór Jónsson, í A Sigurður Einarsson, spjót- kastari hefur kastað lengst 82,76 metra á þessu ári. Lág- mark íslensku olympíunefnd- arinnar er 83 metrar, en al- þjóðanefndarinnar 82 metrar. Sigurður er í sífelldri framför. Kristján Harðarson hefur stokkið lengst 7,80 metra á þessu ári, sem er íslandsmet. Hann hefuf stokkið lengra naumlega ógilt, á því meira inni. Lágmark íslensku olym- píunefndarinnar er 7,90 metrar, en alþjóðalágmarkið 7,80. Óskar Jakobsson er fyrst nú að ná sér á strik eftir stríð við meiðsli í tæp tvö ár. Hann kast- aði 19,80 metra fyrir rúmri viku, lágmark íslensku nefnd- arinnar er 20 metrar, en al- þjóðalágmarkið er 19,40 metrar. Haraldur Ólafsson hefur lyft 300 kg. alls í 75 kg flokki í ár. Lágmark íslensku nefndarinn- ar var 315 kg. en alþjóðalág- markið er 295 kg. Ingi Þór Jónsson keppir í 100 metra flugsundi og 100 metra skriðsundi. íslandsmet hans í skriðsundinu er 55,50 sek, en lágmark O.í var 52 sekúndur. íslandsmet Inga í 100 metra flugsundi er 1.00,44 mín, en lágmark OÍ var 56,50 sek. Áður hafði Olympíunefnd íslands tilnefnt fjóra frjáls- íþróttamenn á Olympíuleik- ana, Odd Sigurðsson KR, Þór- dísi Gísladóttur ÍR, Véstein Hafsteinsson HSK og Einar Vilhjálmsson UMSB. Öll höfðu náð lágmörkum. Þá til- nefndi nefndin tvo júdómenn, Bjarna Friðriksson og Kolbein Gíslason báða Ármanni, og tvo sundmenn, Tryggva Heigason HSK, og Guðrúnu Femu Ág- ústsdóttur Ægi, en hvorugt þeirra hefur náð lágmörkum O.L ■ „Úr því að hægt var að bæta við 20 manns í hópinn sem fer til Los Angeles fyrirvaralít- ið, tel ég að við hefðum átt að fá að senda tvo menn, það munar svo sáralitlu á því hvor á meira erindi“, sagði Guðmundur Þórarinsson formaður Lyft- ingasambands íslands í samtali við NT í gær. Maður er náttúr- lega ekki ánægður með að bara einn fari, því tveir eiga erindi“, sagði Guðmundur. Garðar Gíslason á best 330 kg í 100 kg flokki, Garðar varð í 11. sæti á EM en 4 austantjaldsmenn falla út. Lágmark OL í 75 kg flokki er 315 kg en lágmark Alþjóða- ólympíuncfndarinnar er 295 kg. 1100 kg flokki er íslenska lágmarkið 375 kg en alþjóða- lágmarkið 325 kg. Bæði Har- aldur og Garðar hafa því náð al- þjóðamörkum. „Vona að fleiri komist á OL“ - segir Örn Eiðsson form. FRÍ ■ „Ég er mjög ánægður með þessa viðbót, frestur til að til- kynna þátttöku frjálsíþrótta- manna á leikana er til 18. júlí, og ég vona að fleiri nái lág- mörkum fyrir þann tíma,“ sagði Örn Eiðsson formaður Frjálsíþróttasambands íslands í samtali við NT í gær. „Tíminn verður að leiða það í ljós, það getur allt gerst í þessu“, sagði Örn, í fyrra var talið að Oddur Sigurðsson stæði afar tæpt til þess að reikna með því að hann færi á OL, nú er hann okkar annar maður,“ sagði Örn.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.