Vikublaðið - 03.03.1950, Qupperneq 7

Vikublaðið - 03.03.1950, Qupperneq 7
VIKUBLAÐIÐ 7 Hann kaus danðann Conur hennar hafði alltaf ^ sagt: „Ég vil heldur deyja en vera í fangelsi alla ævi.“ Já, þetta hafði hann alltaf sagt. Sara, móðir hans, braut blaðið saman og ýtti því frá sér með olnboganum. Blaðið datt á gólfið. Hún hafði enn yfir ummæli sonar síns: „Ég vil heldur deyja en vera í fangelsi alla ævi.“ „Það er eðlilegt,“ hugsaði Sara. „Menn þurfa að geta hreyft sig, jafnt á nótt sem degi.“ Charles fagri, en svo var sonur hennar nefndur, hafði verið úti flestar nætur. Á daginn var hann hjá móður sinni eða sat í innra herberg- inu hjá Simms og fylgdist vel með því, hvort nokkur hætta væri á ferðum. Sara var montin af því að eiga son, sem kallaður var Charles fagri. Hún var ekki í vafa um það, að hann líktist henni eins og hún var, á yngri árum. En því mundu nú fáir trúa. Auðvitað var faðir hans fallegur. Þau, Sara og hann, höfðu þótt fallegt par. „Sara,“ hafði hann sagt. „Þú ert fallegasta stúlkan í Chic- ago.“ Og hann vissi hvað hann söng. Sara hafði átt fleiri börn en Charles. En þau voru far- in út í veður og vind. Sum voru gift, önnur höfðu eign- ast börn án þess að giftast. Hún vissi, að hún hafði ekki breytt eins vel og skyldi.' En hún treysti því að himna- faðirinn fyrirgæfi öll hennar afbrot. Hún hafði talað við hann um það. Hann sagðist taka hana til sín, því að hún hefði haft sína kosti. Já, hún hafði syndgað. En ætíð verið góð við börn sín og barna- börn. Charles fagri var yngsta barnið hennar, og honum hafði hún unnað mest. Það var mynd af honum á fyrstu síðu blaðsins, er hún hafði brotið saman. Hann var 23 ára, hár vexti og glæsilegur. Hann var all- dökkur yfirlitum. En vegna þess sýndust tennur hans enn hvítari. Stúlkurnar höfðu verið skotnar í honum. Charles fagri ætlaði að verða atkvæðamaður. Hann hafði haft margt í huga. Hann hafði oft talað á þessa leið: „Mamma! Þegar ég hef komið þessu í kring, breyt- um við, ég og Simms, um strik. Þá hættum við. Við kaupum bíla og stóra bíla- geymslu og leigjum bíl- ana.“ Hann hafði oftast hugann við einhverjar vélar og tækni. Það voru víst margir ungir menn með þessu marki brenndir. Sara sparkaði í blaðið. Þá blasti við henni frásögnin um Charles fagra. Þar stóð meðal annars: „Langur glæpaferill rak- inn. Dómurinn hljóðaði upp á ævilanga fangelsisvist.“ Það var þessi síðasta setn- ing, sem kvaldi Söru nótt og dag. Henni hefði þótt það miklu betra, ef Charles fagri hefði verið látinn í „stólinn.“ Einu sinni sagði hann við móður sína: „Ef ég gæti mín ekki sem skyldi, lendi ég í stólnum og þeir brenna á mér afturend- ann.“ Að þessari fyndni höfðu þau hlegið. Charles hafði » ætíð verið léttlyndur og ekki hissa á tíðinni. Hann var eins og strákur, þótt hann væri kominn yfir tvítugt. Það sagði Charlotta. Sara heyrði létt fótatak úti á tröppunum. Charlotta var að koma. Hún opnaði dyrnar með miklum flýti og kom þjótandi inn. Sara hafði oft undrast yfir því, að Charlotta skyldi ekki vera búin að þeyta hurðinni af hjörunum eða brjóta hana með þessum látum. Hurð og dyraumbúnaður var heilt enn sem komið var. Charlotta var grátbólgin. Hún hafði verið fyrir rétti dag eftir dag. Hún

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/367

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.