Vikan


Vikan - 13.11.1958, Blaðsíða 2

Vikan - 13.11.1958, Blaðsíða 2
Höfum ávallt fyrirliggjandi flestar tegundir af bílum með allskonar greiðsluskilmálum Talið við okkur ef þér þurfið að kaupa eða selja bifreið BILLINN Varðarhúsinu Sími 18-8-33 WE SEND SOUVENIERS ALL OVER THE WOBLD VIÐ SENDUM MINJAGRIPI UM ALLAN HEIM. — 7jS%>faunJ fiqFqS£//D/*fyA ~7íi. (1 Tl/J/tDrf f*?EÐ Sá^srefrun? 'f?quTS£DLu./ri\ Roykjavík — RAMMAGERÐIN — Icclcmd PÓSTURINN 1 afmælisblaðinu birtum við hér í póstinum bréf og auglýsingu frá þremur föngum á Litla- Hrauni, þar sem þeir óskuðu eftir að komast í bréfasamband við stúlkur. Auglýsingin gaf góða raun, eftir því sem við höfum frétt, bréfin tóku að streyma til þeirra, og þeir hafa varla und- an að svara — nema einn þeirra. Hann fékk ekkert bréf. Ástæðan liggur i augum uppi. Hann hafði nefnilega verið svo óheppinn að bera ó- happatöluna 2213. Nú getum við skýrt stúlk- unum frá því að þessi fangi er fluttur i ann- an klefa og ætti því engin að láta óhappatöluna fæla sig frá lengur. Núverandi númer hans er 2212 og væntum við þess að einhver verði til að senda honum línu til þess að stytta honum stundirnar í dauflegri vistinni. Og hér er enn eitt bréf frá tveimur öðrum föngum þar eystra: Kæri póstur: Við óskum eftir að komast í bréfasamband við stúlkur á aldrinum 16—20 ára. Við erum fang- ar á Litla-Hrauni. Númer okkar er 1617 og 1718. Kærar þakkir fyrirfram. Kæra Vika: Ég er búin að ganga mig upp að hnjám um allan bæ til að fá afmælisblaðið en það virðist allstaðar uppselt. Eru engin tök á að hægt sé að útvega mér eitt eintak? Ég hef keypt Vikuna í 4 ár og safna henni en hef þó aldrei haft rænu á að gerast áskrifandi. Óþolinmóð. SVAR: Afmœlisblaöið seldist upp á tveimur dögum þótt upplagið vœri meira en tvöfaldað. Það var vieð mestu lierkjum að okkur hér á rit- stjórninni tókst að tryggja okkur eintak áður en blaðið flaug út. — En við slculum hafa þig í huga ef okkur áskotnast eitt eintak. —o—- Ritstjóri Vikunnar: Mig langar rétt að skrifa örfáar línur til að þakka fyrir afmælisblaðið. Ég hef aldrei keypt Vikuna áður en ætla að mér heilum og lifandi að kaupa hana hér eftir. Mér voru boðnar 20 krónur í afmælisblaðið daginn eftir að ég keypti það, en datt ekki í hug að láta það. Þó mér væru boðnar 100 krónur. S. B. —o—- Ritstjórablók! Ná engin lög yfir fanta og illmenni sem voga sér að birta myndir af fólki í opinberu blaði sem ekkert hefur til saka unnið annað en bregða sér á ball eina kvöldstund? Það ætti að setja ykkur alla í steininn og taka svo mynd af ykkur .... k. SVAR: Er það hlaðið eða fóllcið sem hefur brugðið sér á ball eina kvöldstund ? Við búumst við að þér eigið við fóllcið. ■— Við erum á sama máli og hœstvirtur bréfritari að það sé engin synd að bregða sér á ball eina kvöldstund og þessvegna engin synd að birta myndir af fólki sem hefur brugðið sér á ball eina kvöldstund. Kæra Vika: Þú hefur aldrei verið eins skemmtileg eins og upp á síðkastið. Meira af svona afbragðsgreinum eins og „Kátt er á kvöldin“ og krassandi hjóna- skilnaðarsögum. Nú þarf maður eltki lengur að stauta sig fram úr útlendum vikublöðum. Hafðu kæra þökk og haltu strikinu. Kæri póstur, Ég hef tekið eftir því að þú ert farinn að gefa fólki ráð í ýmsum vandamálum og veit ég að slíkt er vel þegið. Nú vildi ég biðja þig að skera úr einu fyrir mig sem mér liggur þungt á hjarta. Svoleiðis er að stjúpi minn, sem vinnur á skrifstofu í bænum, er farinn að bjóða mér á bíó og böll en lætur þó ekki mömmu mina vita og fór þess á leit við mig að ég léti mömmu ekki vita heldur. Þú mátt ekki skilja þetta svo að hann sé neitt að leita á mig eða slíkt, hann hefur aldrei sýnt mér neitt svoleiðis en verið mér ákaflega góður og mér þykir vænt um hann. Finnst þér rétt að ég segi mömmu frá þessu? SVAR: Það er vitaskuld viðlcunnanlegra að mamma þín viti allt um samskipti þín ag stjúpa þíns, þótt þau séu ekki önnur en þú greinir frá. Annars cru upplýsingar þœr sem þú gefur í bréfi þínu alltof Jáorðar og stuttaralegar txl þess að ég treysti mér til að skera úr þessu máli. VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.