Vikan - 18.12.1958, Qupperneq 5
BAK VIÐ TJÚLDIN
„Rakarinn44 í Þjóðleikhúsinuk
KLUKKAN er 10 um morgun, þegar ég legg
leið mína í Þjóðleikhúsið. Ég geng inn í
það helgasta, leiksvið, því þaðan berst óm-
iai' af tónlist. Á baksviðinu er myrkur, en fram-
.arlega er sviðið upplýst og þar er hópur manna
í kringum píanó, en sitjandi við hljóðfærið er
Róbert Abrahams Ottósson. 1 raun réttri er vart
hægt að tala um hóp manna í kringum píanóið,
því hinn ágæti Guðmundur Jónsson stendur við
eina hlið þess, einn, og rúm er ekki fyrir fleiri.
<Og ljósmyndarinn sem með mér er, smellir af.
Blossi — og Guðmundur snýr sér við og horfir
með undrun i svip á ljósmyndarann. •— Varstu
með breiðfilmu góði, — spyr Guðmundur.
Það er æfing á óperunni Rakarinn í Sevilla,
sem frumsýnd verður 2. dag jóla.
Róbert A. Ottósson söng- og hljómsveitarstjóri
tíuðmundur og Abraliam — Rakarinn og söng-
stjórinn.
gefur sér tíma mitt í starfsönnum
til þess að ræða við mig stutta stund.
Hann er mjög áhugasamur í starfi
og allt hans fas ber vott um kraft
óg úthald. Hann stjórnar nú í fyrsta
sinn óperuflutningi hjá Þjóðleikhús-
inu, en áður hefur hann stjórnað
óperunni Miðlinum eftir Menotti fyr-
ir Leikfélag Reykjavíkur.
— Það er vandasamt að setja hér
á svið óperu. Flutningur á einstök-
um óperum er enn ekki orðin hefð
liérlendis. Rakarinn t. d., hefur aldrei
áður verið fluttur hér og við verð-
um því að æfa allt frá grunni. En
vonandi verður unnt í náinni fram-
tíð, að sýna sömu óperur aftur og aft-
ur, svo sem gert er erlendis. óperan
verður sungin á íslenzku, í þýðingu
Jakobs Jóh. Smára. Margir telja að
óperur eigi að syngjast á frummáli,
cn ég er ekki þeirrar skoðunar.
— Persónur?
— Ævar Kvaran syngur hlutverk
Fiorella, þjóns Almaviva greifa, og
greifinn er sunginn af Guðmundi
Guðjónssyni sem nú syngur í fyrsta
skifti eitt af aðalhlutverkum í óperu.
Guðmundur hefur sungið nokkuð á
skemmtunum lítið eitt í útvarpi, og
nú, óperan.
Figaro syngur Guðmundur Jóns-
son, Þuríður Pálsdóttir syngur hlut-
verk Rosinu, Kristinn Hallsson, Bar-
toló, Sigurveig Hjaltested syngur
lilutvcrk Berthu, Jón Sigurbjörnsson
hlutverk Don.Basilíó, Hjálmar Kjart-
ansson herforingja, og auk þess er
12 manna karlakór. Við eigum gott
söngfólk, og þeir sem nú eru að
æfa, gætu flutt þessa óperu hvar sem
er.
'Ég geng til Guðmundar Guðjóns-
sonar.
— Ég er dauðhræddur, æfingar
mjög erfiðar, alveg uppgefinn eftir
hverja æfingu. Ég syng nú með
tveimur kennurum mínum, þeim
nafna mínum Jónssyni og Kristni.
Annars er maður alltaf að læra af
hinum sem lengra eru komnir. Ég
er húsgagnasmiður, og kannski á
maður að láta sér nægja að raula við
mublurnar.
Og æfingin heldur áfram. Söng-
vararnir eru flestir búnir að læra
Guðmundur Guðjónsson — að raula við mublur.
texta hlutverka sinna, einstöku sinnum syngur Guðmundur
Jónsson þó á gamlan og góðan máta, tra la lalala lahumm, en
hvað um það, þetta er æfing, og æfingin skapar meistarann.
Þó að gaman sé að fylgjast með æfingum, var ekki ætlunin
að dveljast langdvölum hjá söngvurunum og hlusta á hina
skemmtilegu óperu, heldur heimsækja nokkra þá starfsmenn
leikhússins sem eiga sinn stóra þátt í þvi að gera óperusýn-
inguna að veruleika. Þeir standa aldrei í sviðsljósunum, þeir fá
Framhald á bls. 22,
VIKAN
5