Vikan - 09.04.1959, Blaðsíða 2
LANDSI
NS MESTA
ÚRVAL
NYKOMIÐ:
Weltmeister harmonikur. Model 1959.
Píanóharmonikur
32 bassa, 2 hljóðskiptingar. — VerÖ kr. 1885,00.
48 bassa, 2 hljóðskiptingar. — Verð kr. 2045,00.
48 bassa, 5 hljóðskiptingar. — Verð kr. 2520,00.
80 bassa, 8 hljóðskiptingar. — Verð kr. 3970,00.
120 bassa. 16 hljóðskiptingar. 4 kóra. — Verð kr. 6.900,00.
Vönduð taska innifalin í verðinu.
Við höfum einnig mjög fjölbreytt úrval af lítið notuðum ítölskum og
þýzkum harmonikum. Margar sem nýjar. Seljast með miklum afslætti.
T. d. BORSINI (ítölsk), 120 bassa, 4 hljóðskiptingar í diskant, 2 í bassa.
Verð áður kr. 5.920,00 nú 3900,00.
Sabatini: 120 bassa. 4 hljóðskiptingar í diskant, 2 í bassa. — Verð áður
kr. 5865.00 - nú 3975.00.
Acordia Excelsior sem ný með 10 hljóðskiptingum, 120 bassa, verð kr.
5200,00.
Serinelli 120 bassa, 10 hljóðskiptingar. Verð kr. 5250,00.
Serinelli 120 bassa sem ný. 4 hljóðskiptingar. 2 á bassa. Verð kr. 4750,00
Scandali 24 og 32 bassa.
POSTURINN
Kæra Vika.
Mig langar til að biðja um upplýsingar um
Gitte og Lene, sem sýndu hér með Cirkuskabar-
ettinum. Hvað heita þær fullu nafni, hvar eiga
þær heima, eru þær systur og hvað gamlar?
Með fyrirfram þökk,
Didda.
SVA2S: Þœr heita Gitte og Lena Pyskow, eru
systur, fœddar í Danmörku. Gitte er 15 ára og
Lene er 12 ára. Nú búa þœr viö Klostervang 1S,
Roskilde, K.havn.
o-----o
Bréf frá 10 ára. /
Kæri póstur, ég er 10 ára gömul og fer kl.
8.50 i skólann. Ég fer seint að sofa á kvöldin.
Heldurðu að þú getir ekki sagt mér hvenær
er bezt að fara að sofa á kvöldin. Vertu svo
bless og þökk fyrir allt.
Sigríður.
Sigríður litla. Venjulegast veit mamma bezt,
og ef hún segir þér að fara snemma að hátta
þá er bezt að hlýða. Þegar þú ert búin að borða
• kvöldmatinn þinn, svona um klukkan hálf átta,
þá er gott að fara í rúmið, lesa kannski litla
stund og vera sofnuð klukkan átta. Vertu svo
blessuð Sigríður litla og þakka þér fyrir bréfið.
o-----o
Góða Vika.
Segðu mér eitthvað um Noel Coward.
Dísa.
SVAR: Noel Coward er enskur rithöfundur,
leikari og leikstjóri, fœddur í Teddington 1899.
Hann hefur skrifað mörg leikrit, óperettur og
einnig samið tónlistina. Auk þess syngur hann
sjálfur. Ein þekktasta kvikmynd hans er um
hafið og kallast á dönsku Havet er vor skæbne.
Hann samdi leikritið Ærsladraugurinn sem Leik-
félag Reykjavikur sýndi á sinum tima, og varð
mjög vinsœlt.
o-----o
Vika.
Hvernig stendur á því, að þið getið ekki komið
með skrýtlur á baksíðuna, svo hægt sé að brosa?
Viku eftir Viku komið þið með hundómerkilegar
skrýtlur, svo að maður hlýtur að spyrja: Hvers-
konar húmor hefur sá sem velur skrýtlurnar?
Þaö á nú að birta mynd og æfiágrip þess manns.
Við heimtum skrýtlur, sem geta talist það.
Reynir.
SVAR: Sá sem valdi skrýtlurnar, Reynir minn,
hefur nú sagt upp stöðu sinni sem skrýtlumeist-
ari. Staðan er þvi laus, ef þú hefur áhuga.
Weltmeister. Verð frá 1000,00.
Einnig margar aðrar úrvalstegundir fyrirliggjandi t. d. Honher, Scandali,
Sóprani, Artisti, Frontalini. o. fl.
Þetta er aðeins lítið sýnishorn af því, sem við höfum fyrirliggjandi. Ný
sending væntanleg. Við höfum einnig alls konar önnur hljóðfæri, svo
sem mandólín, gítara, blokkflautur (10 teg.), trompeta, trompetkassa,
trommur, trommustóla, nótnastóla, munnhörpur, tvöfaldar og krómatískar,
svanaflautur, harmonikutöskur, einfaldar og tvöfaldar hnappaharmonikur,
signalhorn, klarinettur, trommukjuða, trommubursta, harmonikunótur.
Væntanlegt næstu daga:
Trommusett, rafmagnsgítarar, saxófónar, rumbukúlur, „hí-hatt“, píanó o.fl.
Alls konar skipti
á hljóðfærum möguleg. Við tökum notaðar harmonikur sem greiðslu
upp í nýjar. Látið fagmenn hjá okkur aðstoða yður við val á hljóðfærum.
— Hljómlistin eykur heimilisánægjuna. —
Kæra blað.
Þakka þér fyrir komið efni. Magrir eru þeir
sem skrifa þér til að segja álit sitt á efni blaðs-
ins og kennir þar margra grasa. Ég tel, að þið
þurfið að birta meira um hverskona skuggahlið-
ar mannlegs lífs. Það hefur verið svo, að í hvert
sinn sem eitthvert blað hefur birt sögu sem
samrýmist ekki trú einfeldinga á það, hvernig
lífið sé, er það kallað sorpblað. Þið hafið gefið
okkur lesefni um eiturlyf, fóstureyðingar, og
margt annað. Þannig á það að vera. Hvernig í
ósköpunum á að vera hægt að bæta mein þjóð-
félagsins ef sannleikanum er stungið undir stól,
1 öllum bænum verið ekki hræddir við að segja
sannleikann, hversu sár sem hann kann að vera
einstökum stéttum eða þjóðfélaginu í heild. Spill-
ing er allstaðar, það vitum við, og þörf á því að
segja fólki sannleikann. Út með sprokið herrar
mínir.
P. H.
—O—
Kæra Vika!
Ég hefi tekið eftir því að margir lesendur þin-
ir kvarta yfir framhaldssögunni. Sammála er ég
um það að hún sé með afbrigðum leiðinleg. Stutt-
ar famhaldsögur er betra að hafa, og þið hafið
hitt vel í mark með Ofbeldi. Haldið þið áfram að
birta stuttar framhaldssögur. En þegar þessum
Kynlega arfi lýkur, hvernig væri þá að byrja með
framhaldssögu eftir íslenzkan höftmd? Því yrði
áreiðanlega vel tekið af lesendum.
Finnur
VERZLUNIN
R í N
Kæra Vika!
Ég sé að þið þarna hjá Vikunni hafið hvers-
konar milligöngu um kynni manna og kvenna,
jafnvel með hjónaband fyrir augum. Nú vildi ég
segja að ef menn geta ekki hjálparlaust komist
Njálsgötu 23. - Sími 17692.