Vikan - 09.04.1959, Page 14
Er hann tilvonandi eiginmaður
)
Margrétar prinsessu?
LORD PLUNKET
UNGUR maðiu’, sem er dótturson-
ur söngleikastjörnu, sem var
uppáhald Broadway og London,
er sterklega talinn vera líklegur sem
eiginmaður Margrétar prinsessu.
Hann er Patrick Terence William
Span, 35 ára gamall, sjöundi barón
Plunket, Deputy Master við heimili
drottningar. Hinn hávaxtni og laglegi
írski aðalsmaður hefur verið nátengd-
ur konungsfjölskyldrmni siðan hann
var barn. Þó að það sé hluti af
skyldustörfum Plunkets lávarðar að
vera fylgdarmaður konungsborins
fólks — eins og Peter Townsend gerði
—■ segir fólk, að aldrei hafi Patrick
og prinsessan sézt jafnoft saman
og nú. Hver yrðu viðbrögð drottn-
ingarinnar í þessu máli ? Sem tilvon-
andi eiginmaður Margrétar prinsessu
hefur Patrick Plunket engan af hin-
um augljósu göllum, sem hindruðu
Peter Townsend í að öðlast ná fyrir
augum ensku konungsfjölskyldunnar.
Hann hefur aldrei verið kvæntur —
ekki eínu 'sinni trúlofaður. Hann er
auðugur, titlaður og hefur lært í
Eaton. Hann var höfuðsmaður í írska
lífverðinum og hefur verið óaðfinn-
anlegur hirðmaður í 11 ár. Hann er
einlægur meðlimur Ensku Biskupa
kirkjunnar, og hann hefur verið vin-
ur drottningarinnar og systur henn-
ar, síðan hann var lítill drengur. Allt
þetta gerir hann mjög ákjósanlegan
ungan mann. En það, sem er gott
t.alið í Mayfair, er ekki víst, að sé
eftirsóknarvert við hirðina. Því að
Plunket titillinn er mjög ungur að
konunglegu mati. Fyrsti baróninn
var lögfræðingur, sem fékk titil sinn
1827 sem laun fyrir störf sin sem
yfirdómari og ráðherra Irlands. Þó
að drottningin, hertoginn af Edin-
borg og drottningarmóðirin fari ekki
í launkofa með vináttu sína við
Patrick, gæti verið, að þeím þætti
ættleggur hans nokkur hindrun, ef
liann kvænist inn í fjölskylduna.
Sem þriðji i-íkisarfi ensku krúnunn-
ar kynni Margrétu prinsessu að finn-
ast það dálítið óþægilegt að segja
börnum sínum: „Langamma ykkar
var söngleikastjarna, og langafi ykk-
ar var demantakonungur í Suður-
Afriku. Móðir Patricks var einka-
barn hinnar frægu Fannie Ward af
fyrsta hjónabandi hennar og mill-
jónamæingsins Joe Lewis. Þessu
h iónabandi lauk í skilnaðarréttinum
1913, þegar skilnaður var litlnn horn-
auga. Annar og fjórði barón Plunket
voru biskupar og hinn fimmti var
landstjóri í Nýja Sjálandi, en heiðar-
leika er ef til vill ekki nóg að leggja
á metaskálarnar fyrir Patrick. Það
kann að vera vegna þess, að þótt
bæði Georg konungur VI. og hertog-
inn af Glouester kvæntust út fyrir
raðir konungsætta, voru konur þeirra
báðar af gömlum og göfugum ættum.
Elísabet drottning, móðir núverandi
drottningar er af hinni aldagömlu
ætt jarlanna af Strathmore, Bowes-
L.yon. Hertogaynjan af Gloucester er
af ætt, sem var öðluð fyrir nærri 400
árum.
En þrátt fyrir hina hugsanlegu
agnúa, er það trú náinna vina kon-
ungsfjölskyldunnar, að trúlofun
Margrétar og Plunkets mundi gleðja
drottninguna, þó að það mundi koma
illa við afturhaldssama hirðmenn.
Patrick hefur alltaf verið aðnjótandi
sérstakrar ástar konungsfjölskyld-
unnar. Þegar hinir ungu foreldrar
hans fórust í flugslysi í Kalifomiu
1938, tók drottningarmóðirinn — sem
þá var drottnlng — hina þrjá mun-
aðarlausu Plunket drengi, Patrick,
Robin og Shaun að sér. Upp úr 1920,
þegar hinir þjóðfélagslegu múrar 1
Englandi fóru að hrynja, voru her-
togahjónin af York — síðar Georg
VI. og Elisabet drottning — nýgift.
Þau urðu þá miklir vinir hinna auð-
ugu Plunket hjóna, og sú vinátta ent-
• ist, þangað til slysið varð. Þá hét
drottningin því að reyna að bæta
Plunket bönunum hinn mikla missi
þeirra. Hún var guðmóðir Robins, en
það var þó, einkum Patick — hinn
friði, hrokkinhærði skóladrengur —
sem varð fyrir koninginum og drottn-
ingunni sonurinn, sem þau aldrei
eignuðust. Og fyrir dætrum þeirra,
Elísabetu og Margréti, var hann
bróðirinn, sem þeim hafði alltaf lang-
að til að eignast. Ljúfmennska hans,
hógværð og gáfur höfðu áhrif á hina
12 ára gömlu „Lillibet," en hin ó-
viðjafnanlega glaðværð hans og
fyndini heillaði hina kátu og þrlflegu
litlu systur hennar, Margréti — sem
er sjö árum yngri en hann.
Móðir þeirra sagði oft vinum sínr
um frá ástúð Patricks í garð yngri
bræðra sinna tveggja. „Hann er þeim
eins og faðir," sagði hún og skýrði
frá því, hvernig hann vandaði um
við Shaun og gerði sér far um að
breiða ofan á litla bróður sinn og
bjóða honum góða nótt með kossi.
Það var sama ábyrgðartilfinning,
sem gerði Patrick staðráðinn í því að
endurgjalda hinum konunglegu fóst-
urforeldrum sinum alla ástúð þeirra.
Frá þeim degi, er konungurinn sál-
ugi gerði hann að meðreiðarmanni
sinum fyrir 11 árum, hefur hann ætið
verið fullkominn hirðmaður, alltaf
við hinn konungiega olnboga, aldrei
í sviðsljósinu. Nafn hans hefur aldrei
verið tengt neinu hneyksli. Einkalíf
hans hefur alltaf verið eins mikið
tileinkað hinni konunglegu þjónustu
og opinbert líf hans.
1 frístundum sínum fer hann á lax-
veiðar með drottnigarmóðurinni, á
dýraveiðar með hertoganum af Edln-
borg og í útreiðar með drottningunni.
Hinum stuttu stundum, sem hann
er fjarverandi frá konungsetrunum
að Balmoral, Landringham eða Wind-
sor, ver hann til að líta eftir hinum
blómlega garði sínum við heimili sitt
að Mount Offham, West Malling,
Kent. Þegar skyldustörfin valda þvi,
að hann kemst í auglit almenninga í
fylgd með Margréti pinsessu í leik-
hús eða á næturklúbb, spyrja alltaf
einhverjir: „Hver er þessi laglegi
ungi maður, sem lætur prinsessuna
hlægja svona mikið?“ Fátt fólk get-
ur svarað þvi, því að Patrick Plunket
hefur alltaf forðazt að láta á sér
bera.' Hann er sjaldan ljósmyndaður,
aldrei er haft við hann blaðaviðtal,
og hann hefur mjög sjaldan sézt í
fylgd með konu. Meðal hinna ó-
kvæntu manna, sem væru hugsan-
legi eiginmenn Margrétar, er það ein-
ungis Plunket lávarður einn, sem
aldrei hefur verið tengdur neiruii ann-
arri konu. Mörg metnaðargjörn móð-
ir í Mayfair, sem man, að Plunket
drengirnir erfðu hálfa milljón ster-
lingspunda við dauða foreldra sinna,
sem hann hefur erft frá Fannie
Ward, ömmu sinni, sem veldur ást
Patricks á leiklist. Hin fagra leik-
kona, sem var fædd Fannie Buc-
hanan í St. Louis, Missouri, Banda-
ríkjunum, var á leiksviðinu, þegar
hún var 12 ára, var orðin stjarna 20
ára og átrúunaðargoð alla ævi. Hún
fór fram og til baka yfir Atlants-
Lord Plunket (í miðju) og Margrét prinsessa á leið i leikhús.
hefur borðið í brjósti hjúskaparvon-
ir fyrir hönd ungrar ólofaðrar dótt-
ur sinnar. En sjöundi baróninn hefur
gefið þeim litla uppörfun. Háborin
Katherine Smith, systir bezta vinar
hans, Hambleden greifa (af W. H.
Smitli ættinni), er eina stúlkan, sem
hefur sézt oft í fylgd með honum.
En aldrei hafa sézt nein merki um
ástarsamband þeirra á milli. Áður
en atburðurinn um Peter Townsend
gerðist, þegar þjóðin bókstaflega
stytti sér stundir við að „gifta Mar-
gréti,“ birtist nafn Plunkets láv^rð-
ar aldrei á skránni yfir „þá hugsþn-
legu“ ásamt Billy Wallace, mfJka-
greifanum af Blandford, Dalneith
lávarði og séra Simon Phipps. En nú
segja vinir prinsessunnar, að hún sé
aldrei jafn hamingjusöm í félagsskap
nokkurs annars. Hún og Patrick hafa
sameiginlega ástríðu á leikhúsum, og
þegar ungi aðalsmaðurinn tók þátt í
leiksýningu aðalsins, „Froskinum,"
hafði leikur Patricks mest áhrif á
prinsessuna. Henni þykir mjög gam-
an að ræða viö hann um leikrit, sem
eru sýnd, og ber mikla virðingu fyr-
ir áliti hans. Ef til vill er það blóðið,
hafið hvað eftir annað til að leika
aðalhlutverk í London og New York.
Hún dó fyrir 7 árum, 85 ára gömul,
og eftirlét dóttursonum sínum 14.000
sterlingspund. Fólk, sem þekkir elzta
dótturson hennar, segir, að Patrick
Plimket hafði erft töfra hennar og
glaðværð og verzlunarvit fyrsta
manns hennar. Joe Lewis var braut-
ryðjandi i Kimberleynámunum og
vgrð brátt milljónamæringur. Dótt-
ursonur hans lagði arf sinn í nokkur
fyrirtæki svo sem timburhús í Suður-
Rhodessiu, sem framleidd eru í hlut-
um og sett upp um allt land og hótel
á suðurströndinni. Patrick fær í árs-
laun um 2000 sterlingspund sem
Deputy Master við heimili drottning-
ar — starf, sem hann vinnur með
dugnaði og aga hins æfða lífvarðar-
foringja, en mildað af töfrum, sem
gera starfsfólk hallarinnar fúst til
að taka við fyrirskipunum hans. A
siðastliðnum jólum sá Patrlck um
hinar fögru blómaskreytingar í San-
dringhamhöllinni, sem dottningar-
móðirin dáðist svo mjög að. Aðals-
maðurinn ungi er duglegur garð-
yrkjumaður og þykir ekkert
skemmtilegra en að hjálpa garð-
yrkjumönnuhum í frístundum sínum.
Ást hans á blómum hefur gert land-
areign hans í Kent að fyrirmynd í
blómarækt, jafnvel í héraði, sem
nefnt er „Garður Englands.“
Þegar meölimir konungsfjölskyld-
unnar, þar á meðal Margrét prins-
essa, heimsækja hann um helgar,
þykir honum samt gaman að klæðast
baðmullarskyrtu og bættum leður-
jakka og vinna í garðinum. En 1
London hefur hann orð fyrir að vera
dálítill spjátrungur. Hann er alltaf
fullkomlega klæddur, hann er vel
vaxinn, og eru þau Margrét prinsessa
glæsilegt par, þegar þau dansa sam-
an. 1 samkvæmi í Holkham Hall,
heimili jarlsins og greifafrúarinnar
af Leicester dönsuðu þau cha—cha
snilldarlega saman. Allir gestirnir
veittu þvi athygli, að laglegi, ljés-
hærði, ungi aðalsmaðurinn með bláu
augun var sjaldan fjarri hlið prins-
essunnar. 1 jólaleyfinu i Sandring-
ham sáust þau nokkrum sinnum fara
saman í ökuferð út í Norfolk sveit-
ina, og var þá Plunket lávarður við
stýrið. Þau snæddu hádegisverð sam-
an á hverjum degi og fóru í reiðtúr
flesta morgna. Ef Patrick fær
hönd systur drottningarinnar,
mun það verða vinsæll ráðahag-
ur. Það mundi gleðja þá, sem
vilja fá nýtt blóð í konungs-
ættina með fleiri þjóðlegum
hjónaböndum, en þó mundi
það ekki verða of hneyksl-
anlegt í augum hinna eldri
ætta höfðingjanna, Sam-
veldisins og erkibisk-
upsins af Kantaraborg.
■
Giftist hún
Lord Plunket ?
14
15
VIKAN