Vikan


Vikan - 06.08.1959, Síða 5

Vikan - 06.08.1959, Síða 5
Hann fór frá fósturjörðinni, pýzkalandi, með seglskipi á unga aldri, varð siðar loftfimleikamaður, bórari, slátrari. bakari og kokkur, bann kafaði eftir perlum í Kyrra- hafinu og leitaði að gulli i Nýju Guineu. Árið 1911 kom hann til Tyrklands og vegna likamshreysti sinnar og meðfæddrar þýzkrar her- mennsku varð liann brátt majór i tyrkneska hernum. Pað heyrðist sagt i Tyrklandi i |)á daga, að Otto Witté hefði hseglega getað verið Iviburabróðir tyrkneska prinsins, Halim Eddin. Báðir voru sex fet og einn þumlungur á hæð, báðir voru dökkir yfirlitum, jjótt Eddin væri með brún augu en Witte blá, báðir gengu jafn reigingslega, og þeir gengu i sámskonar einkennis- búningi — aðeins axlaskrúðið sýndi muninn á majórnum og hershöfð- ingjanum. Hlutverk Witte var að kenna tyrk- neskum hermönnum meðferð nýrrar þýzkrar fallbyssu, en Tyrkir létu það ekki uppi, hvort verkið myndi taka langan tíma cða hvort honum yr-ði sparkað úr he'rnum um leið og tyrknesku hermennirnir hefðu kom- izt að þvi, sem hann gat kennt þeim. Að þessu komst hann fyrst, þegar hann var leiddur fyrir Eddin og honum sagt, að hann gæti farið úr eirikennisbúningnum, l)ar eð tyrk- neski herinn þyrfti ekki lengur á honum að lialda. Þegar Witte krafðist launa sinna, til þess að komasl heim til Þýzka- lands, skelltu þeir við honum skolla- eyrum og sögðu honum að snáfa burl úr Tyrklandi hið skjótasta. Otto Witte fór burt frá skrifstof- unni i einkennisbúningsjakka án alls skraúts, með nægilega mikið af peningum í vasanum til þess að komast til Konstantinópel. þar sem hann varð sjálfur að sjá um að kom- ast heim upp á eigin spýtur. Hann kom til Konstantinópel með sáralitið af peninguin i vasanum og fór inn á ódýran veitingastað til þess að fá eitthvað ofan i sig, áður en hann hélt niður að höfninni, til þess að gá að þvi, hvort þar væri þýzkur bátur, sem vantaði vanan sjómann á. Undirgefinn veitingahúseigand- inn kom i loftköstum til hans og bukkaði sig og beygði. — Það cr okkur sönn gleði, að Yðar hável- borinheit komi i heimsólui til okk- ar. sagði hann hátjðlega. Witte skildi í fyrstu hvorki upp né niður, þvi að farið var með hann að bezta borðinu i veitingasalnum. En að vanda var hann konunglegur i framkomu og virti fyrir sér mat- seðilinn á meðan eigandinn hneigði sig i sifellu og endurtók orð sin um það, hvílikan heiður Hans hável- horinheit sýndi honum með þvi að koma á þennan vesæla stað. Þá rann ljós upp fyrir Witte: þeir höfðu •haldið, að hann væri Eddin prins! Hversu oft höfðu ekki hermennirnir kallað hann ,.Yðar hátign“, einmitt vegna þess að hann liktist Eddin prins! Witte greip lækifærið. — Ég hefi i hyggju að líta á nokkrar stofnanir í Konstantinópel og aðra staði al- gerlega að óvörum, sagði hann yfir- lætislega við veitingamanninn, — til þess að hafa auga mcð því að öllu sé sem haganlegast fyrir komið. Ég æski þess ekki, að starfsbræður yðar meðal veitingahússtjóra fái nokkra vitneskju um þessar heim- sóknir minar. Einungis með þvi að koma að óvörum og ókynntur get ég rannsakað hvort þessum málum er sómasamlega háttað. Witte hesthúsaði beztu máltíð, sem nokkurn tíma liafði verið borin á borð á veitingahúsinu, og allir hneigðu sig fyrir honum, um leið og hann hugsaði ákaft á leiðinni út. Hann þurfti að launa Tyrklandi lambið gráa, vegna þess að hann liafði ekki fengið peninga þá, sem liann hafði rétt á, og þegar ekki var hægt að afla peninganna laga- lega, varð hann að beita öðrum brögðum. Um þetta leyti voru Albanir laf- hræddir við Tyrki og voru auk þess konungslausir. Ef þeir gætu fengið Tyrkja i konungshásætið i Tirana, myndi Albania ekki þurfa að óttast neitt framar úr þeirri átt. Þjóða- bandalag við Tyrkland var ekki ein- ungis æskilegt, lieldur nauðsynlegt, og cnginn vissi þetta betur en Otto Witte. Otto vissi cinnig, að Albanir höfðu eitt sinn álitið Eddin prins hæfastan mann til þess að gegna konungsstörfum, þar eð hann var viljalaus ungur maður, sem þeir væntu að myndi lúta ráðherrunum i hvivetna. Ákvörðun Ottos i þá átt að látast vera Eddin prins var þaulhugsuð. Hann vissi, að Albanir myndu skjóta hann, ef upp kæmist um svikin, og ef honum væri skilað i hendur Tyrkja, myndi dauðinn einnig bíða hans þar, þótt þar yrði hann ekki eins skjótur og sársaukalaus. En hefnigirnin varð ofan á. Otto átti sáralitla peninga, en nú ákvað hann að nota þá út i yztu æsar. Hann fór inn i húð, sem scldi grímubúninga og annað slíkt. Hann keypti sér konunglegan tyrkneskan einkennisbúning, sem myndi hæfa prinsinum, ásamt orðum og borð- um. Hann sagði kaupmanninum, að hann væri á leið i samkvæmi, þar sem hann átti von á að hitta stúlku, sem hann vonaðist eftir að eignast. og þessvegna ætlaði hann að koma fram sem prins. Otto tók nú að spyrjast fyrir um Eddin prins og komst að raun um, að hann var í opinberri heimsókn i Bokhara og kæmi ekki aftur til Konstantinópel fyrr en eftir i minnsta lagi þrjár vikur. Hann hafði þessvegna nægan tima til stefnu. Menn lutu honum i lotningu á göt- um úti, þar eð allir héldu að hann væri Eddin prins, og það kom i ljós, að það var hlægilega auðvelt fyrir hann að gefa skipanir með að- stoð tveggja aðstoðarmanna, sem hann hafði dregið upp úr götunni og klætt i einkennisbúninga, sem hann hafði stolið úr herfatageymslu. Aðstoðarmennirnir voru ámóta kænir og Otto og náðu sér i fjóra hjóna, sem áttu að koma með þeim i sérstaka ferð. Og samkvæmt skip- un sendu þeir skeyti til albönsku stjórnarinnnr 10. fehrúar 1912: ..Tfalim Eddin prins mun koma til Tirana 12. febrúar. Undirhúið móttökuna“. Undir skeytið var skrlfað „Mohamnieð ofursti, kamm- erherra". Þcgar gamall flutningabátur kom til Durazzo 12. febrúar, tók enginn eftir háa manninum, sem steig á land, i horgarafötum með litla tösku í hendinni. Witte tók nú eftir þvi, að allir fánar voru við lnin og lúðrasveit beið eftir því að bjóða Eddin velkominn. Hnnn hafði þó slegið einn varnagla: hann hafði lát- ið „Mohammed ofursta" segja á við- urkvæmilegan hátt, að prinsinn ætti Framhald á bls. 24. a- Oílattfoas 3 6 o-aas&o-a Ómegö þjóðfélagsins Þú og barnið þitt sem SKATTURINN MIKLI. Þeir brugðust þverlega við forðum daga, frændur okkar i Noregi, þegar Haraldur lúfa hóf upp skattheimtu á hendur öllum mönnum. Tilraun hans til að efla rikið með almennri skattheimtu er þannig lýst frá sjónarmiði andstæðings: „Haraldr konmigr eignaðist i hverju fylki óðul öll ok allt land, byggt ok óbyggt, ok jafnvel sjóinn ok vötnin, ok skyldu allir búendr vera hans leiglendingar, svá þeir, er á mörkina ortu, ok saltkarlarnir ok allir veiðimenn, bæði á sjó ok landi, þá váru allir þeir lion- urh lýðskyldir. En af þessi á- þján flýðu marg- ir menn af landi á brott“ ... f raun gerðist það eitt, sem eðli- legt var, að víð- lent riki krafð- ist fjárfrekrar þjónustu, þegnarnir urðu að kosta. En forfeður okkar i Noregi skildu, að með almennri skatt- heimtu var liægt að þrengja að eignarrétti og athafnafrelsi ein staklingsins og leggja á hann byrðair, sem honum fannst sér með öllu óskylt að bera. Sú skoð- un ásannast i hverju menningar- þjóðfélagi nútímans. Kóngsskatt- urinn hefir vaxið og liggur nú eins og fjötur á athafnafrelsi einstaklingsins. Við myndum flýja land fyrir honum. ef skiln- ingur okkar á þvi. hvað ríkið veitir i staðinn, hefði ekki glæðst verulega frá þvi sem var á dög- um hins mikla norska einvalds. f gerð nútimaþjóðfélags ‘‘er fólgin hagfræðileg þverstæða. Þvi meir sem það þróast, þvi þyngri ómegðarbyrði hlýtur þvi að vaxa og hennar vegna eru gerðar siauknar kröfur til skatt- þols þegnanna. Að óbreyttri þró- un þýðir þetta. að hinir gjald- skyldu og gjaldfæru þegnar hverrar siðmenntaðrar þjóðar verða sifellt að leggja fram stærri og stærri skerf öðripn mönnum til framfærslu, og þurfa sjálfir að spenna hungurólina fastar þess vegna. Skyldi hina skattfælnu norskn óðalsbændur hafa órað fyrir þvi? Þrjár uppsprettur ómegðarinnar. Hin sivaxandi ómegð, sem sið- menntað þjóðfélag verður að framfleyta, er i nokkrum skiln- ingi ávöxtur siðmenningarinnar sjálfrar. í fyrsta lagi verður menntun æskunnar alltaf tímafrekari og kostnaðarsamari, þvi að sið- menningin gerir alltaf hærri ag hærri kröfur til þekkingar og leikni uppvaxandi kynslóða. Af þessum sökum verða skólakcrfi siðmenntaðra þjóða margbrotn- ari með hverjum mannsaldri. í sumum greinum eru menn ekki fullmenntaðir fyrr en um þritugt. Þá eiga þeir sjálfir fyrir fjöl- skyldu að sjá, og i einhverri mynd verður að kosta framfæri þeirra af almannafé. Sú þróun er þvi rökrétt, sem nú er hafin i nokkrum löndum, að námsmenn eru á opinberum launum. f öðru lagi er umhyggjan fyrir ellinni. Fyrr á tið varð hvert gamalmenni að strita fyrir lífs- viðurværi sinu, meðan þvi entist þrek og heilsa, cn dó fljótlega, eftir að það varð ósjálfbjarga. Við lifum aftur á móti á tið elli- heimila og eftirlauna. iÆknis- listin fer ekki i manngreinarálit né spyr, hvaða not verði að lifi, sein hún lengir uni stund. Þvi vex her hinna ellihrumu i si- fellu. f þriðja lagi er hópur vangef- inna og fáráðlinga af öllum gráðum, sem reynast ósjálfbjarga i kröfuhörðu atvinnulifi nútim- ans. Sá hópur er tvimælalaust i örum vexti. Fyrr á tið, meðan lögmálið, að sjá sér sjálfur far- borða eða deyja að öðrum kosti, var i fullu gildi, gat hann ekki orðið fjölmennur. Höfundur Gisla sögu Súrssonar lýsir meðferð á fávita, eins og hann hefir séð hana fyrir sér. „Helgi hét sonr Ingjalds ok var afglapi sem mestr mátti vera ok fifl. Honum var sú umbúð veitt, at raufar- steinn var bundinn við hálsinn, ok bcit liann gras úti scm fénaðr ok var kallaðr Ingjaldsfifl. Hann var mikill vexti, nær sem tröll“. Þarna er sýnd skuggalilið- in á sjálfsbjörg einstaklings- ins. Rammasta einstaklingshyggja okkar tima myndi veigra sér við að gripa til slíkra ráða. Ilin fámenna sveit. Þróunin til aukins öryggis fyr- ir samhjálp og samábyrgð er i fyllsta samræmi við grundvallar- Framhald á bls. 24. VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.