Vikan - 03.09.1959, Qupperneq 14
F L U G
!
Á
í S L A N D
FYLGZT MEÐ FARÞEGUM LOFTLEIÐA TIL NEW YORK
Hinn 3. september árið 1919 hófs't islenzk flugvél
fyrsta sinn til flugs yfir íslandi. Þetta var Avro-flug-
vél, sem flogið var af grasvelli í Vatnsmýrinni í
Reykjavík. Flugvélinni stjórnaði brezkur maður, sem
Cecil Faber hét. Þessi flugvél var eign fyrsta íslenzka
flugvélagsins, sem stofnað var 28. marz 1919. Eini nú
lifandi forystumaður þess er Halldór Jónsson frá Eið-
um. Árið eftir, 1920, kom hingað vestur-íslenzkur
flugmaður, Frank Fredrickson og stjórnaði hann flug-
vél féiagsins. Hann kom nú til íslands, 39 árum sfðar
til þess að halda hér hátíðlegt 40 ára afmæli flugsins á
Islandi. Fjárskortur og skilningslseysi almennings
olli því aö fyrsta islenzka flugfélagið varð að gefast
upp.
Árið 1928 var stofnað íslenzkt flugfélag fyrir for-
göngu dr. Alexanders Jóhannessonar prófessors og
starfaði það til ársins 1931, en þá varð það einnig að
hætta rekstrinum af sömu ástæðum og fyrsta flug-
félagið.
Árið 1937 var flugfélag Akureyrar stofnað og síðar
flutti það aðalbækistöðvar sinar til Reykjavíkur og
nefnist eftir það Flugfélag fslands. Hinn 10. marz
1944 var flugfélagið Loftléiðir stofnað.
Engin þjóð í heimi notar nú hlutfallslega jafn mik-
ið af flugvélum til innanlandsferða og íslendingar og
íslenzkar millilandaflugvélar halda uppi flugferðum
milli Reykjavíkur og 10 erlendra stórborga.
í tilefni 40 ára afmælisins birtir VIKAN nokkrar
ljósmyndir af farþegum Loftleiða á leið til Banda-
ríkjanna. Sagan hefst er þeir eru á leiðinni til af-
greiðslu Loftleiða í Lækjargötu og lýkur, þar sem ljós-
in á Broadway blasa rið þeim.