Vikan


Vikan - 01.10.1959, Page 17

Vikan - 01.10.1959, Page 17
- Skólaklæðnaður barnanna þarf líka að fylgja tízkunni. — Það er þó margt annað, sem hafa þarf f huga, þegar skólafatnaðurinn er saumaður — eða valinn fyrir veturinn. Fyrst og fremst er það, að hann sé hlýlegur, þar sem börnin sækja skólann, hvernig sem viðrar. Annað atriðið er, að fötin séu rúm- leg, en ekki þröng. Hér óður fyrr var það mjög óberandi, hversu ný föt barna voru höfð „vef við vöxt“, eins og það var kallað, en það var stundum þannig, að þau voru eins stór og mögulegt var að hafa þau. Nú er komið annað upp á teninginn, sfðatr þjóðin fór að hafa meiri fjárráð. Þetta eins og annað vill jafnvel fara út í öfgar. Föt eru höfð þannig, að þau endast ekki börnum, sem eru í örum ve,xtv meira en 2—3 mánuði og eru strax alveg ný svo lítil og þröng, að þau eru barni, sem er að leik, óþægileg og óhentug, því að börnum líður miklu betur,, þegar fatnaðurinn er það rúmur, að hann háir þeim ekki við minnstu hreyfingu að kalla. Þegar sú fyrirtekt, — sem foreldrarnir kalla, — hleypur í börnin, að þau vilja kannski alls ekki klæðast einhverri flík, sem nýlega er búið að sauma á þau, væri ekki úr vegi að athuga, hvort flíkin þrengdi ekki að þeim1 einhvers staðar eða væri úr þungu og fyrirferðarmiklu efni. Börnum líður bezt í fatnaði, sem er léttur og rúmur, en hlýr. , Þið skuluð athuga, að það er oft ein- jgj hver ein yfirhöfn, sem börn vilja helzt ^ Éri- alltaf vera í, og oftast er hún þannig f Æ3h sniði, að hún kemur að heita má hvergi við þau. Fatnaður á börn má ekki passa á tBMKmSœ&tfmSL ÆifcWf það eins og verið sé að klæða fullorðna /jvÉiMíF manneskju, — ef barninu á að líða vel KV ’ _ vjr /JhISiIIL >' flíkinni. . ^ ->/ Þessi kjóll er úr rauðköflóttu ullarefni. Aðrir litir eru hvítt og svartir teinar. Kraginn er hafður hvítur, en slaufan svört og hnapparnir svartir. Þetta snið, kjóll með víðu pilsi og bolero- jakka, er mjög klæðilegt á telpur, sem komnar eru á níunda ár, og eldri. Vítt pils með stórum fell- ingum og úr þykku efni, svo að það slær sér vel út, ein» og allar ungar stúlkur vilja láta það vera nú á tímum, er draumur unglingstelpnanna. Blússan er með hálflöngum ermum, kraga, vösum og upp- slögum, — hneppt að framan. Hann er ekki óglæsilegur þessi ungi maður, í dokkbrúnum buxum og eins konar úlpu-jakka úr köflóttu efni í brúnum og gráum lit. Slauf- an er brún, sem höfð er við hvíta skyrtuna. Jakkinn er tekinn saman með rennilás að framan, og renni- lás er einnig hafður á brjóstvösun- um. Þessi fallegi skokkur, eða heil-pils, er jafn- fallegur, hvort heldur hann er hafður sem skólaútbúnaður eða sunnudagsflík. Ef hann er spariflík, er fallegt að hafa hann úr flaueli, annaðhvort rauðu eða bláu, eftir því sem klæðir þann sem á að nota það, og hafa svo hvíta blússu við. . .. Skóladragt er þetta nú varla nema þá allra fyrstu skóladagana. Annars fer að verða of kalt hér hjá okkur til að koma í Aragt í skólann, nema þá því aðeins að verið sé í kápu eða jakka utan yfir. En dragtin er falleg fyrir unglingstelpu með þessu fellda pilsi og jakkanum, sem nær rétt niður að mjöðmum.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.