Vikan - 26.11.1959, Qupperneq 4
Ifiaptl vi<>
dr. Signrd
89&s&að ' ■ '\ . j
I>orariu§'
Non um
Iiöilng:o8
w.fl.
r •*
Sigurður Þórarinsson.
F0>
T
Við litum inn til dr.
Sigurðar Þórarins-
sonar jarðfræðings
fyrir nokkru, en
hann kann oft frá
ýmsu merkilegu að
segja, svo sem
mörgum mun
kunnugt. I þetta
sinn var Sigurður nýkominn heim frá
París, en þar sat hann ráðstefnu
náttúrufræðinga og hefur sennilega
varla verið búinn að átta sig til fulls
eftir erfitt ferðalag.
— Ja, ég var nú að koma heim i
nótt . . .
— En þér vilduð kannske segja
okkur eitthvað frá umræðuefnum
ráðstefnunnar?
— Hún hafði það hlutverk að ræða
tvö viðfangsefni, sem bæði hafa
nokkurt gildi fyrir okkur. Annað er
þetta: Eru nokkrir möguleikar á því
að segja fyrir eldgos, og hvað er hægt
að gera í því sambandi? Hvaða tæki
er hægt að nota? Hefur þetta verið
gert með nokkrum árangri? — Hitt
atriðið var nýting jarðhitans.
— Hjá okkur er þetta þannig, að
hér eru ýmis eldfjöll, sem maður
getur alltaf búizt við. að fari að gjósa.
Það, sem er mest rætt núna, er Katla.
— Bendir eithvað sérstakt til þess,
að hún muni gjósa á næstunni?
— Á síðari árum hafa aukizt tals-
vert jarðhrærir.gar í kringum hana.
Eitt af þeim tækjum, sem eru notuð