Vikan


Vikan - 26.11.1959, Síða 10

Vikan - 26.11.1959, Síða 10
— SökuO um hvað? — Flæking. 1 bæði skiptin slepptu þeir henni daginn eftir, þegar læknir hafði skpðað hana. — Hafið þér orðið fyrir hinu sama? — Ekki enn sem komið er. Síminn hringdi. Það var Bordenave. — Ég sá engan úti fyrir. — Þakkir. Ég þarf ekki á yður að halda meira í kvöld. —- Viljið þér ekki, að ég bíði? — Nei. — Góða nótt. Ég girntist Yvette ekki þetta kvöld og vor- kenndi henni ekki heldur. Á ferli minum hef ég hitt of marga hennar líka, og enda þótt I henni væri eitthvert ákaflyndi, sem gerði hana frá- brugðna, virtist mér hún ekkert sérstök. Féll ég þá fyrir hrósinu, sem fólst í þvi trausti, sem hún hafði sýnt mér, jafnvel áður en hún hitti mig? 1 sannleika sagt hef ég ekki þá trú. Ég held, að þetta sé flóknara og að maður eins og Moriat til dæmis hefði vel getað komizt að sömu niður- stööu og ég Hvi ekki að túlka ákvörðun mína sem mótmæli og ögrun? Ég hafði þegar verið þvingaður til að ganga of langt, — allt of langt, — í þá átt, sem var fjarskyld skapi mínu og smekk. Álit mitt stóð föstum fótum, og ég var að reyna að láta það ekki bíða hnekki, — og það var einmitt þetta álit, sem olli heimsókn stúlk- unnar og hinu blygðunarlausa tilboði hennar. í starfi mínu hafði ég aidrei tekið aðra eins áhættu og aldrei heldur fengið til meðferðar svo erfitt, — iafnvel óleysanlegt mál. Ég tók áskoruninni. Ég er viss um, að þetta er sannleikurinn. og í heilt ár hef ég haft nægan tíma til að yfirheyra sjálfan mig um þetta atriði. Ég batt ekki trúss við Yvette Maudet, flæk- ingsdóttur skóiakennara frá Lyon og fyrrverandi afgreiðslustúlku í pósthúsi, heldur bar hér að höndum vandamál, sem ég féllst skyndilega á aö leysa Ég haföi fengið mér sæti aftur og skrifaði at- hugasemdir, jafnóðum og ég spurði nákvæmra spurninga. — Þér fóruð aftur til gistihússms aðfaranótt fimmtudags. en þér stiguð þar ekki inn fæti í nótt, sem leið Þetta veit hótelstjórinn, og hann mun láta lögregluna vita. — Það kemur fyrir að minnsta kosti tvisvar í viku, að ég sef ekki á hótelinu vegna þess að okkur er bannað að fara með karlmenn upp á herbergin. — Þeir munu spyrja, hvar þér sváfuð. — Ég mun segja þeim það. FORSAGA NÝIR LESENDUR GETA BYRJAÐ HÉR: Unya yieóikonan Yvette reynir að fremja rán. ÞaÖ mtstenst og liún leitar til þenKts logmans og býöur sjátfa sig aö launum, ef honum takist aö fá hana sýknaöa. Hann tekur boöinu, leggur lögmansferú sinn í hœttu. en fœr hana dcemUa sykna saka. — Síöan er liöiö ár. Gobiltot lögmaöur er aö skrifa niöur þaö sem boriö hefir viö, frá því aö hann kynntist Yvette. — Þaö er atls ekki óhugsandi aö einhvern tima veröi þessi skýrsla mín aö gagni. Eg hikaöi meira en tíu mínútur, áöur en ég skrifaöi fyrstu setninguna. 1 rauninni er þetta svipaö erföaskrá . . . JEtla ég aö halda því fram, aö ég hafi vitaö i tuttugu ár, aö þetta fengi illan endií Þaö myndu vera ýkjur, en þó ekki meiri ýkjur en ef ég segöi, aö þaö heföi byrjaö meö Yvette fyrir einu ári . . . Gobillot lögmaöur heldur áfram, og skýrir frá fyrstu kynum sínum af Yvette. Hún kemur til hans í skrifstofuna og biöur hann ásjár. Hann er kuldalegur í fyrstu og lætur hana segja sér alla mátavöxtu, en loks fellst hann á aö verja Yvette og vinstúlku hennar fyrir réttinum. Sögunni víkur heim til kunningjakonu Gobillot-hjónanna, Corinu de-Langelle. Lögmaöurinn og eiginkona hans eru þar stödd í kaffiboöi ásamt fleira fólki. Kvöldiö er lengi aö líöa, finnst Gobillot. Hann hringir á veitingahús, þar sem Yvette venur kom- ur sínar. Hún er þar stödd og skömmu síöar biöur lögmaöurinn gestina l kaffiboöinu aö hafa sig af- sakaöan. Hann þurfi aö fara til áríöandi fundar. Viviane, kona hans, spyr <hvort hún eigi ekki aö aka honum, en hann afþakkar. Síöan heldur hann til fundar viö Yvette á veitingahúsinu. Þaöan halda þau heim til hennar eftir skamma dvöl. Sögunni víkur til fyrsta fundar þeirra Yvette í skrifstofu lögmannsins . . . Án þess að líta á gest minn gekk ég til dyra og sagði um leið hranalega: — Verið kyrr þarna. Það var ef til vill til að æsa hana upp, sem ég bæti við, eins og sagt er við óþæg börn: — Ekki snerta neitt Ég gekk út í skrifstofu Bordenave. — Viljið þér fara niður og gæta þess, hvort stúlkunni í skrifstofu minni hefur verið veitt eftirför. — Er það lögreglan? — Já. Þér getið sagt mér það símleiðis. Þegar inn í skrifstofu mína kom, gekk ég fram — Hefur hún verið handtekin? — Naómí? Já, tvisvar, — kannski oftar, en tvisvar, sagði hún mér. og aftur um gólf með hendur fyrir aftan bak, en Yvette fylgdist með mér. — Þessi Gaston, hóf ég máls, — hefur hann komizt undir manna hendur? — Ég held ekki. Hann hefur aldrei minnzt á það. — Þekkið þér hann vel? — Ágætlega. — Hafið þið sofið saman? — Stöku sinnum. — Er Naómí, vinstúlka yðar, oröin myndug? — Hún er nýlega tvitug. — Hvað gerir hún? — Það sama og ég. — Hefur hún nokkurn tima haft fasta vinnu? — Hún hjálpaði móður sinni í verzluninni. Móð- ir hennar selur grænmeti við Chemin Vert. — Hljóp hún á brott að heiman? — Hún fór bara, sagöist vera búin að fá nóg. — Er langt siðan? — Tvö ár. — Reyndi móðir hennar ekki að leita hana uppi ? — Nei. Henni er sama. En stundum, þegar Na- ómí er alveg blönk, fer hún til hennar. Þær rifast eins og hundar og kettir og hella skömmum hvor yfir aðra, en það endar alltaf með þvl. að Naóml fær elnhverja penlnga. — Hvar? — 1 gistihúsi við Berry-götu, ekki sérlega vlrðu- legu. — Þekkizt þér þar? — Já_ Við Naómí skiptum oft um vinnustaði. Stundum förum við alla leið niður I Saint Ger- main, stundum erum við á Champs Elysées og stöku sinnum jafnvel á Montmartre. — Sá úrsmiðurinn vkkur báðar? — Það var skuggsýnt í verzluninni, þar að auki leit hann á okkur sem hverja aðra vlðsklpta- vini og beygði sig strax yfir úrið. 4. HLUTI — Taglgreiðslan yðar er óvenjuleg. — Hann veitti því ekki athygli af þeirri einföldu ástæðu, að ég var með skuplu yfir hárinu. — Þér hafið þá búizt við þessu. — Þetta var bara varúðarráðstöfun. Ég spurði hana I þaula í næstum elna klukku- stund, en hringdi þá til aðstoðarmanns eins vlna mlnna. — Hefur mál úrsmiðsins í Ábótagötu verið tekið fyrir ? — Viltu frétta eitthvað af stúlkunni? Hún er enn í vörzlu lögreglunnar einhverra hluta vegna. Ég veit satt að segja ekki, hver ástæðan er. — Þakka þér fyrir. Síðan sagði ég við Yvette: — Nú farið þér til Vavin-strætis, eins og ekkert hafi í skorizt, og sæki lögreglan yður, þá fylgið henni möglunarlaust, en nefnið mig ekki á nafn. Ég hélt á fund konu minnar og vina okkar um tíuleytið. Þau voru rétt að byrja á kjötréttinum. Ég minntist á þetta mál við fulltrúann og gat þess um leið, að ég mundi liklega taka það að mér. Morguninn eftir hélt ég til lögreglustöðvar- innar. Málið hafði vakið meiri athygli en mér þótti heppilegt, og Duret litli var mér til mikils gagns. Ég get annars ekki Imyndað mér, hvað verður úr honum. Faðir hans er efnaður maður, sem fór illa út úr fjármálabraski. Meðan Duret var laga- nemi, hékk hann iðulega á skrifstofum biaðanna og rétti þar stundum hjálparhönd. Þá kynntist hann nokkuð skuggahliðum Parisar. Á undan honum hafði ég aðstoðarmann, sem hét Auber. Hann var hins vegar farinn að halda, 10 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.