Vikan


Vikan - 26.11.1959, Qupperneq 17

Vikan - 26.11.1959, Qupperneq 17
Saumspretta á hanzkanum, jú, œtli þaö liafi ekki komiö fyrir — og gengiö erfiölega aö koma þræö- inum í gegnum leöriö, þegar reynt var aö gera viö. Hér er mjög einfált ráö — en áhrifaríkt. TakiÖ sápustykki, og núiö því viö þráö- inn, og þá rennur hann auövéld- lega gegnum þykkt sem þunnt. Það má segja, að borðstof- an sé úr tízku sem slík, en Það skiptir ekki máli. Þetta fallega borð fer jafnvel í stofu sem borðkrók. Það tekur lítið pláss, og formið er svo einstaklega yndislegt, að það er engu líkara en að náttúran sjálf hafi verið að verki. En því miður eru svona borð ekki fáanleg hér — það er danskt — en ef til vill dettur einhverjum í hug að framleiða það hér. m m m ■ i Bókahilla og náttborð úr 9Ömlum ovnxtoUössum rykktu hengi komið fyrir að framanverðu. Kassinn er lakkaður hátt og lágt, eftir að veggfóðrinu hefur verið komið fyrir. „Borð- ið „rúmar auðveldlega hið nauðsynlegasta, náttlampa, bók og vekjaraklukku. 2. Bókahillan úr sama efni er úr fjórum kössum, sem eru settir saman og limt vegg- fóður á eins og náttborðið. Síðan er hillan máluð, — hliðar, sem snúa út, eru dökkrauð- ar, en hliðarnar að innan pastelbláar. Annars veljið þér auðvitað litina með tilliti til hús- gagna og litasamsetningar i þvi herbergi, sem hillan skal standa. f nnesto blndi hefst nýr þáttur: k m Við vonum, að yður „Læknirinn minn segir“ tiSunTreðe?'llr 3 r ^SrN'JjPRi hafið hugmyndaflug — sem enginn^máYláta framhjá sér og trékassa —, getið Þér auðvitað fundið margt fara, heilsunnar vegna. fieira svipað. Slys á ungum börnum veröa oftar á heimiLunum en f um- feröinni. Meðan barnið liggur i vöggu, er næðið fyrir þann, sem ann- ast það, a. m. k. tiltölulega gott. Seinna meir verður að hafa auga á hverjum fingri, þegar ungviðið fer að skriða, ganga og klifra um allar trissur, — inn og út, upp og niður. — Nei, ekki þetta! O, ó, þetta er hættu- legt! Vitið þér, að flest slys á smá- börnum verða á heimilinum, — heima hjá mömmu, en ekki i umferðinni, eins og margur heldur? Hið versta er, að flest slysin heiði mátt forðast, ef foreldrarnir hefðu gert sér grein fyrir þeim hættum, sem alls staðar liggja í leyni, og gert eitthvað til að forðast þær. Ekki getum við talið upp hér allt, sem stafað getur hætta af, en við getum bent á hið mikiivægasta. Það er ekki gert til að hræða neinn, — öðru nær, — en hvað stoðar að byrgja brunninn. þegar barnið hefur dottið i hann? I svefnherberginu mega meðul ekki vera á glámbekk, — ekki heldur töfiur í náttborösskúffunni. Lyf eiga að vera í læstum skáp hátt uppi á vegg. Þetta hafði þér heyrt fyrr, en nú er að láta hendur standa fram úr ermum og fjarlægja það, sem fjarlægja þarf. Lyf og vítamín barnsins eiga einnig að vera á öruggum stað. Öll ofnotkun er hættuleg. Smábórn eiga ekki að hafa of stóran kodda eða sæng eða teppi, — þau geta kafnað i þeim. Þó að aðeins eitt barn af 10 000 kafni þannig, er Það einu barni of mikið. Alls staðar verða innstungur að vera öruggar og vel frá Þeim gengið. Ef eitt- hvað er athugavert, skuluð þér kalla á rafvirkja. Allar rafmagnsleiðslur verða að vera í lagi. Hættið ekki á, að barnið fái straum. Engin simhringing eða dyrabjöllu er mikilvægari en hægt sé að gefa sér tíma til að taka úr sambandi rafmagns- áhöld eins og t. d. ryksugu. Eldspýtur, sigarettur og öskubakkar mega ekki vera við höndina, — enn einasti sígarettustubbur, sem kemst í munn barn- inu, er nóg. Burt með blýanta og penna, — Gluggar verða að hafa öryggisfestingar. Dúkur, sem hangir niður frá borði, er alltaf freisting fyrir barn, og Þungur vasi eða ávaxtaskál geta fallið í gólfið við kröftugt átak. Það getur einnig verið nógu slæmt að fá dúkinn yfir höfuðið. Eldhúsið er líklega skemmtilegasti leikvöllur barnsins, en það er þó hættulegasti staðurinn fyrir börnin til fimm ára aldurs. Þar verður að flytja ýmsa hluti á öruggan stað. Salmiak, ediksýra, blettavatn og þvottaefni verður að fara í efstu hillurnar. Handföng á skaftpottum og pönnum verða að snúa inn á eldavélina; yður finnst það dálítið undarlegt fyrst í stað, en þér venjizt því fljótt. Ekki er nóg að taka strokjárnið úr sambandi, því verður að koma fyrir á örugg- um stað að strauningu lokinni. Hugsið ykkur bara, ef horn af straustykkinu næði niður fyrir borðið eða strauborðið dytti . . . Við getum ekki flutt burt Framhald á bls. 31. þeir eru einnig eitraðir. a svuntuna Hér koma uppástungur um tvo skemmtilega svuntuvasa. Á svuntunni til hægri er vasi úr ljósu cfni, og á hann er applikeruð hanamynd, og lítið kokteilglas er saumað í með kontorsting eða lykkjuspori. Mittisstrengurinn og böndin eru úr sama efni og vasinn. Sannkölluð kokteilsvunta. — Svunt an til v. er alveg tilvalin fyrir konu bridge-spilarans, því það á svo vel við að setja hana upp, þegar spilamönnunum er gefið kaffi. Vasinn er svartur, spilalitina er óþarft að taka fram, spilin eru applikeruð á, hitt saumað með einhverju fíngerðu spori. Takið eftir dúskakögrinu neðan á, það er frumlegt og alveg tilvalið á svuntu.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.