Vikan - 26.11.1959, Blaðsíða 30
Sólar-rcnnibraui
IINDARGOTU 25 SIMI13743
Sdxoin Arnason
og hálfopln ferOataska ft gólflnu, — fCt ft strjál-
Ingi hér og þar.
— Það er dálítil óreiða hér. Ég fór 1 rúmið,
strax og ég kom.
Þaö var vínlykt af henni. en hún var ekkl
drukkin. Hvernig skyldi ég annars hafa litið út,
alklæddur þarna á miðju gólfi?
— Viljið þér halla yður?
Erfiðast var að afklæðast. Ég vildi það ekki.
Ég vildi ekkert lengur, en hafði ekki heldur
kjark til að fara.
— Komdu, skipaði ég.
Hún kom til min og hállaði höfðinu aftur, eins
og hún byggist við kossi, en ég hélt aðeins utan
um hana án þess að snerta varir hennar. Siðan,
allt í einu, ýtti ég sloppnum fram af öxlum henn-
ar, en undir honum var hún nákin.
Ég þeytti henni ruddalega niður á rúmbríkina
og lagðist sjálfur, en hún starði upp i loftið. Ég
var þegar farinn að athafna mig, eins og ég væri
að h'efna mín, þegar ég tók eftir því, að hún
horfði undrandi á mig.
— Hvað er að þér? hvíslaðl hún og þúaði mig
nú í fyrsta skipti .
— Ekkert!
En hængurinn var sá, að ég gat ekkert gert.
Ég stóð upp skömmustulegur á svip og stamaði:
— Fyrirgefðu.
Þá sagði hún:
— Þú hefur hugsað of mikið um það.
Það hefði getað verið skýringin, en svo var þó
ekki. Þvert á móti hafði ég neitað sjálfum mér
um að hugsa um það. Ég vissi Það, en hugsaði
ekki um Það. Hvað sem því líður, — þetta hafði
komið fyrir mig hjá fleiri konum en henni.
— Farðu úr fötunum, og leggstu hérna hjá mér.
Mér er kalt.
Þurfti ég að gera það? Hefði framtíðin orðið
öðruvisi, ef ég hefði sagt nei og farið mína leið?
Ég veit ekki.
Vissi hún fyrir sitt leyti, hvað hún var að gera.
þegar hún litlu seinna rétti út handlegginn til
að slökkva ljósið og þrýsti sér að mér? Ég fann
grannan og lifandi likama hennar fast upp við
líkama minn, fann, hvernig hann náði smám sam-
an, eins og hikandi, tökum á mér.
Framhald í næsta blaöi.
Einar Benediktsson
Framhald af bls. 23.
Hugmyndaflug hans og tilfinning
bentu honum á, að rétt væri að taka
við fé auðugra heimskingja, sem
ætluðu sér að verða enn þá rikari
en þeir voru. Hann vildi síðan gjarna
miðia af fé þvi, er hann þannig
græddi, fátækum mönnum, — og
það var ein af hugsjónum hana að
auðga mannfélagið yfirleitt á kostn-
að heimskra auðmanna.
Einar samdi glæsilegar lýsingar
á náttúruauðæfum íslands, og kom
þar ekki sízt til greina fossaflið.
Hann bauð mönnum að taka þátt i
fyrirtækjum, sem stefndu að þvi að
nota slikar auðlindir, — bauð þeim
að kaupa hlutabréf. Hann hafði
skrifstofu bæði i City og i Southamp-
ton Row. Fé streymdi inn, svo að
hann varð að fjölga starfsmönnum
sinuni til að veita þvi viðtöku og
tala við alla þá, sem komu. Hann
tók strax að miðla efnilegum, en
félitlum mönnum, af hinum nýja,
en auðfengna auði sinum. Þegar
við vorum saman 1 veitingahúsi, þá
valdi hann ævinlega það dýrasta og
bezta. „Eásy comes — easy goes"
— er enskt máltæki (auðfengnu fé
er auðeytt). Einar hélt veizlur i 20
herbergja húsi i Kaupmannahöfn og
bjó i ey einni i Oslóarfirði. Hann
var svo stórhuga og hafði svo mörg
járn 1 eldinum í einu, að mér, sem
ofbauð þetla, þótti ástæða til að
vara hann við. Ég kvað hann ekki
geta verið alls staðar, frekar en
aðra menn, þótt hann væri afburða-
maður, og eitthvað kynni að fara
aflaga. Hann tók orðum mínum vel,
þakkaði msr meira að segja. En ég
hygg, að hann hefði reiðzt, ef ein-
hver annar hefði reynt að hafa vit
fyrir lionum. Hann vissi vel, hve
hollur ég var honum.
Þegar hlutafélag er hlaupið af
stokkunum l hinni miklu I.ondon,
þá vex það stundum eins og snjó-
flóð. Það er ómögulegt að ráða við
vöxtinn, nema þá helzt, að unnt sé
að stöðva það alveg, stemma stigu
fyrir þvi á einhvern hátt. Og það
er hægt að hætta að talca við hluta-
fé. En svo fara þá hluthafarnir að
búast við athöfnum, framkvæmd-
um. Einar gat dáleitt menn með
mælsku sinni og persónulegum á-
hrifum sfnum ,svip sinum og augna-
ráði. Erfiðleikarnir á að koma fram
fossavirkjun lágu f augum uppi.
Einar ýtti af alefli undir fram-
kvæmdirnar. En þá tóku landar hans
að rægja hann og spilla fyrir hon-
um á margan hátt. Sömu mennirnir,
sem þetta gerðu, játuðu það þó, að
ísland mundi hafa ómetanlegt gagn
af, að áætlanir hans og höfuðórar
næðu fram að ganga. En þeir sögðu,
að skáld, með öllum þessum höfuð-
órum, væri ekki rétti maðurinn til
þess að hafa slfkar framkvæmdir
með höndum. Eins og ég hef vikið
að áður, er það ekki nýjung, að ís-
lendingar rægi hver annan og spilli
hver annars gengi."
HPIm. Spftar Helðflðéttor
Höfum ávallt til fjölbreytt
úrval ai
GÍTURDM
Viðurkennt vörumerki
Útvegum einnig og seljum
allar tegundir hljóðfæra
EINK AUMBOÐSMENN:
30
VIKAN