Vikan - 26.11.1959, Síða 35
Visnaþáttur
Sveinbjörn Benteinsson
tók saman
íslendingum er það tamt að yrkja
vísur við öll möguleg tækifæri. Af
slikum vísum fara sögur allt frá fyrstu
tíð íslands byggðar. En það form sem
okkur er nú tamast við vísnagerð er
ekki eldra en frá 14. öld, og varð
ekki algengt sem visnalag fyrr en um
og eftir siðaskipti á 16. öld.
Það er þetta fast mótaða lag sem
við köllum ferhendu, eða ferskeytlu
og aðrir skyldir hættir sem við nefn-
um rímnahætti, því þeir hafa skap-
ast og mótast í rimunum. Algengast-
ur þessara hátta er ferhendur háttur,
einfaldur og þó byggður eftir marg-
brotnu kerfi ríms og stuðla og hrynj-
andi:
Prestar hinum heimi frá
hulda dóma segja. —
Skyldi þeim ekki bregða í brá
blessuðum nær þeir deyja.
Svo mælti Sigurður Breiðfjörð.
Það er mikill þáttur í trúarbrögð-
um ýmissa þjóða að búa hinn dána
vel til hinstu ferðar, og víða er það
siður að leggja vistir á gröf látinna
skyldmenna. Þessi hugmynd kemur
skemmtilega i ljós í þessari draum-
visu:
Helltu út úr einum kút
ofaní gröf mér búna;
beinin mín í brennivín
bráðlega langar núna.
Þið munuð taka eftir því að vísan
er öðruvisi rímuð en venjuleg fer-
skeytla.
Svo er það hið sígilda vísnaform
hringhendan og enn kemur vísa um
dauðann. Visan er eftir Gísla Ólafsson
frá Eiríksstöðum:
Lífið fátt mér ljær í hag,
lúinn þrátt ég glími.
Koma máttu um miðjan dag
rnikli háttatími.
Hargir munu halda að þessi háttur
sé nær jafngamall hinni óbreyttu fer-
hendu, en svo er ekki. Það örlar
fyrst á hætti þessum á 17. öld og
hringhendur urðu ekki algengar fyrr
en á 19. öld.
Og svo skulum við í þetta sinn halda
okkur í nánd við dauðann og enda á
þessu stórhrikalega erfiljóði sem eign-
að er Ljósavatnssystrum.
Fjallakauða foringinn
fantur nauðagrófur
er nú dauður afi minn,
Oddur sauðaþjófur.
1500 m. hlaup
Framh. úr síðasta blaði.
51. Hörður Guðmundsson, 1B. Kefl.................... 4:23,2 — 1952
52. Árni Kjartansson, Á ............................ 4:23,4 — 1942
53. Rafn Sigurðsson, I.B. Vestm..................... 4:23,4 — 1951
54. Haukur Jakobsson, l.B. Ak....................... 4:24,0 — 1952
55. Þórhallur Guðjónsson, l.B. Kefl................. 4:24,0 — 1955
56. Hilmar Elíasson, Á ............................. 4:24,2 — 1950
57. Sig. Gunnar Sigurðsson, IR ..................... 4:24,7 — 1938
58. Kjartan Jóhannsson, lR ......................... 4:25,2 — 1945
59. Jón Bjarnason, IR .............................. 4:25,2 — 1946
60. Haraldur Björnsson, KR ......................... 4:25,4 — 1944
61. Skúli Skarphéðinsson, Ums. K.................... 4:25,4 — 1953
62. Guðjón Júlíusson, Ums. K........................ 4:25,6 — 1923
63. Skúli Andrésson, U.Í.A.......................... 4:25,6 •— 1954
64. Níels Sigurjónsson, U.I.A....................... 4:26,0 — 1954
65. Torfi Ásgeirsson, IR ........................... 4:26,4 — 1951
66. Haraldur Þórðarson, Á .......................... 4:26,6 — 1942
67. Haildór Sigurðsson, Á .......................... 4:26,6 — 1942
68. Kristinn Bergsson, l.B. Ak...................... 4:26,6 — 1953
69. Sveinn Jónsson, Ums. Ef......................... 4:26,6 — 1956
70. Gunnar Torfason, Á ............................. 4:26,8 — 1950
71. Ingi Þorsteinsson, KR .......................... 4:27,4 — 1948
72. Victor E. Múnch, Á ............................. 4:27,8 — 1950
73. Guðbjörn Árnason, KR ........................... 4:28.2 — 1938
74. Jón Andrésson, U.l.A............................ 4:28,2 — 1948
75. Gunnar Jakobsson, I.B. Ak...................... 4:28,2 — 1951
76. Guðfinnur Sigurvinsson, I.B. Kefl.........*.... 4:28,2 — 1956
Nýtíxku RSFHft el4dvél
í nýtíxku eldbús
H.f. RflFTÆKJAVERHSHIDjflH
HAFNARFIRÐI — SlMAR: 50022 OG 50023