Vikan


Vikan - 18.02.1960, Síða 2

Vikan - 18.02.1960, Síða 2
ORÐSENDING. „Ein óttaslegin“ er beðin að hafa samband við póstinn, sími 35321. FLEST UM ELVIS ... Vikan Rvk. Þið voruð eitthvað að vandræðast yfir upp- lýsingaskorti á Elvis Presley. Ég er nu svo sem enginn tilbiðjandi hans en mér finnst reglulega gaman að sjá myndir með honum og lieyra plöt- urnar hans. Þar sem ég kann nú dálítið fyrir mér um leikara og þessháttar skal ég gefa þér nokkrar upplýsingar um El. Hann er tvíburi, fæddur í Tupelo, Missisippi, 8. janúar 1935, og var nefndur Elvis Aron. Tvíburabróðir hans dó fáum mínútum eftir fæðingu en samt hafði gefizt tóm til að nefna hann Jesse Garon. Þegar E1 lítur aftur á liðinn tíma segist hann ekki geta skilið hvað kom honum til eða hvern- ig það atvikaðist að hann fór að koma fram og syngja fyrir fleiri hundruð manns. „Hann var alltaf svo feiminn“, sagði Gladys móðir hans, „það var ekki honum líkt að gera hluti sem hessa“. E1 elskar móður sína mest af öllu. í ágúst 1958 barst E1 skeyti frá föður sínum þar sem hann segir G'ladys liggja fyrir dauðanum. E1 flaug strax að fengnu leyfi heim þótt hann yfir- leitt forðaðist allt flug. Sömu nótt dó móðir hans og i fleiri vikur á eftir var sem hann væri ekki með sjálfum sér. Hann og Vernon faðir hans létu reisa stórt marmara minnis- merki á gröf hennar. Þar stendur: Gladys Smith Presley April 25, 1912 August 14, 1958 Beloved wife of Vernon Presley and mother of Elvis Presley She was the sunshine of our life. E1 hefur verið með mörgum stúlkum en hann segir: „Þegar ég kvænist, verður það ævi- langt ...“ E1 losnar bráðlega úr hernum og þá megum við fara að búast við nýjum myndum og plöt- um. Það er ekki gott að segja um heimilisfang hans nú sem stendur því hann er enn í liern- um og áður lék hann til skiptis hjá Paramount eða 20th Century-Fox. Það er bara bezt að biða og sjá til hjá hvaða félagi hann leikur næst og skrifa svo bara þangað. Ég vona svo að þetta nægi í bili. Nina (Presley). Kærar þakkir fyrir upplýsingarnar. Áreið- anlega verða margir lesendur þeim fegnir__ FLUG MEÐAL VIÐ ASTMA? Kæra Vika. Mig langar til að spyrja þig einnar spnrn- ingar, sem ég vona að þú getir svarað mér sem fyrst. Hefurðu heyrt þess getið að astmasjúkl- ingum geti batnað, sé flogið með þá hátt í loft upp, eins og 't. d. kíghóstasjúklinga. Og hvað Björn Pálsson mundi taka fyrir slíka ferð, með þvi að sækja mig út á land. Með fyrirfram þökk. Astmaveik. Iiæra Vika! Mig langar til að bera fram eina spurningu í sambandi við allt þetta fegurðarkeppniþras. Hún er á þá leið, hvort lteppnin um titilinn „Miss Universa“ og „Miss World“ er ein og sama keppnin, en bara kölluð mismunandi nöfnum, eða hvort liér er um tvenna keppni að ræða. Ein „Miss“. Ágæta „Miss“! Þannig er málnm háttað í þessu efni, að Bandaríkjamenn standa fyrir „Miss Universe“ keppninni, og fer hán fram á Long Beach í Kalifornía, en Englend- ingar standa hins vegar á hak við „Miss \Vorld“ keppnina, sem fram fer í London ár hvert. RAFGEISLAHITUN H.F. EINHOLTI 2 - SIMAR 14284 - 18600 - 18601 2 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.