Vikan


Vikan - 18.02.1960, Page 5

Vikan - 18.02.1960, Page 5
ekki einu sinni taka eftir því, er aldurlinigin grið- kona dregur af honum böslin eftir bendingu frá húsmóðurinni, — karbætta, varpslitna kúskinns- skóna, blauta, leiruga og götótta skinnsokka, þrenna leirblauta sokkaræfla, — deplar ekki aug- um við fiss liepnar og svei, þegar bún nýr kulda- dofna fætur hans með sokkbolunum og ekki mjúk- lega. SauSáþykkni, hugsar hann, rjúkandilieitt, rauðseytt sauðaþykkni i tveggja marka spilkommu, angandi lifrarpylsuiður og blóðmörskeppir i trogi. Honum svelgdist á munnvatni sínu, og annað lífs- mark sést ekki með honum. — Nokkuð að frétta? spyr bóndi áhugalaust og aðeins til að fá það staðfest, að þessi flaklcari segi ekkert í fréttum frekar en endranær. Og þegar flakkarinn lætur á svari standa, brettir bóndi aftur upp aðra buxnaskálmina, bæði ytri og innri, leggur holdrosa sauðargærunnar á bert liné sér, spýtir í vinstri lófa og hvessir egg hnífsins, rennir henni eftir gærunni og skefur af ullina, bnitmiðuðum, stuttum strokum. — Hún er blaut, mýrin, tautar gesturinn lágt, en virðist ekki hafa heyrt spurningu bónda. — Eru ekki bæir líka hinum megin við hana? svarar griðkonan ónotalega og hverfur fram með böslin. Smalastrákurinn skilur sneiðina, sem griðkan réttir að komumanni, fer að hlæja, en hættir sam- stundis, þegar hann finnur alvarlegt augnaráð húsmóður sinnar hvíla á sér. Hann litur á einn af öðrum, hálfskömmustulegur, en sér, að engum hefur komið til hugar nema honum sjálfum að hafa gaman af skattyrðum þeirrar gömlu í garð flakkarans. Enn eitt ólánsmerkið, hugsar smalinn og finnur roða færast á vanga sér. Það má furðu- legt heita, hvað þau beinlínis sækja á hann, þessi ólánsmerki; það gerir bölvuð ekki sen fljótfærnin og flanið. Eins og hann liafi ekki vitað, að það er ólánsmerki að gera gys að flakkarvesiingum eða gabba þá og hrekkja, — eins og honum hafi ekki verið sagt það oft og mörgum sinnum, að þessir auðnuleysingjar verði að þola það ólán, sem guð hefur á þá lagt. Fyrir bi-agðið eru þeir — á ein- hvern óskiljanlegan hátt — undir sérstakri vernd guðs á þessu flaklci sínu. Hann kemur fram hefnd- um við hvern þann, sem gerir þeim eitthvað til miska, jafnvel þótt maður geri sig ekki sekan um mcira en það að hlæja að þeim eða henda gaman að þeim á bak, og eins umbunar guð öllum þeim, sem víkja góðu að þessum tötraklæddu skjól- stæðingum hans. Honum hafa verið sagðar ótal sögur því til sönnunar. — Hvernig var það ekki með niðursetningsstelpúna, sem gaf soltnum flakkara í laurni harðfisksþunnildið sitt, eftir að húsmóðir hennar, sem var liarðlynd og svarlcur mesti, liafði elcki einu sinni unnað lionum sýru- sopa til að svala þorstanum, en vísað honum i lækinn, — varð ekki stelpan síðar prestsmaddama, en húsmóðirin harðlynda kaunum slegin verð- gangskerling, sem féll í læk og drukknaði, þegar hún skreið fram á bakkann til að svala þrosta sínum? Nei, maður inátti ekki einu sinni amast Framhald á bls. 34. Eingöngu elzta fólk núlifandi man flakk- arana, eins og þeir gerðust í sjón og raun, og áreiðanlega mun yngra fólki veit- ast örðugt að gera sér þessa lánleysingja og kjör þeirra og ör- lög í hugarlund, svo að það yrði í líkingu við veruleikann. í grein þessari er leit- azt við að bregða upp svipmyndum bæði úr lífi þeirra yfirleitt og af nokkrum einstök- um úr þeim hópi, sem munast öðrum fremur fyrir sér- kennilega framkomu og persónugerð, ef það gæti orðið til þess að vekja ein- hverja, — einkum af yngri kynslóðinni, — til nokkurrar hugs- unar um þessi oln- bogabörn sinnar tíð-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.