Vikan - 18.02.1960, Qupperneq 14
ÁÐUR EN
*-^Ú eru liðin 10 ár, siðan þú byrj-
r'1 aðir búskap í tveggja herbergja
* * ibúðinni í kjallaranum, og á þeim
tíma hefur fjölskyldan vaxið, og þér
finnst af ýmsum ástæðum, að þú gætir
leyft þér að skipta á stærri ibúð. Þú
hefur lengi gengið ineð það i magan-
um að kaupa fokhelt, helzt fjögra her-
bergja íbúð i blokk, og reyna siðan
að létta á útgjöldunum með því að
vinna sjálfur að frágangi ibúðarinnar,
múrverki og málningarvinnu o. s. frv.
Siðan þú fékkst visan kaupanda að
kjallaraibúðinni, hefur þú skoðað fast-
eignasöludálkana i dagblöðunuin af
gaumgæfni. Svo var það um daginn,
að þú komst auga á hið gullna tæki-
færi: Fokheld fjögurra herbergja ibúð
við Hvassaleiti. Án þess að liugsa málið
nánar varstu jiotinn af stað til fast-
eignasalans, sera hefur skrifstofu i
miðbænum. Þú kemur inn i skrifstofu.
Grunnteikningar af húsum prýða vegg-
ina, og mjög elskulegur maður tehur
á móti þér.
— Góðan daginn. Nokkuð hægt að
gera fyrir yður?
— Það var út af fokheldri ibúð. —
Og svo dregur þú upp auglýsinguna til
nánari skilgreiningar.
— Já, þér eruð heppinn. Það er að-
eins þessi eina eftir. Það var byrjað
að selja ibúðir i þessu sambýlishúsi
um miðjan desember, og þær voru
næstum allar farnar um áramótin. En
sem sagt, það er erin eftir á fyrstu
hæðinni, og hér hafið þér teikninguna,
gerið þér svo vel.
Svo hefurðu teikninguna fyrir fram-
an þig, og hjartað hoppar i þínu göf-
uga brjósti. Þarna er forstofan svona
skinandi rúmgóð, eldhúsið með öllum
innréttingum og borðkrók, hjónaher-
bergi með innbyggðum skáp, glæsileg
stofa móti suðri og gengið út á svalir
og barnaherbergi. Þetta er stórkost-
legt. En barnalierbergið, já, — er það
bara eitt? Var þetta ekki fjögurra lier-
bergja ibúð? spyrð þú elskulega mann-
inn í djúpa stólnum.
— Jú, jú. Sjáið þér til. Það cr dregið
strik yfir stofuna hérna, og það væri
jú hægt að láta vegg þar, og þá væru
þetta fjögur herbergi.
Nú hefðum við getað sagt þér, kæri
vinur, að hér stóðst þú frammi fyrir
mjög algengu svindli: að draga imynd-
að strik þvert yfir stofu og kalla það
siðan tvö herbergi. En þú áttaðir þig
á þvi, sem betur fór. Annars áttir þú
auðvitað miklu frekar að spyrja um
fermetrafjöldann, þvi að það er hann,
sem máli skiptir. Og ef þú hefðir spurt
okkur álits, þá hefðum við getað sagt
þér, að skipulag ibúðarinnar var alls
ekki gott. Flestir milliveggir eru
steyptir sem burðarveggir og litlu sem
engu hægt að breyta. Svefnhluta og
daglegum iveruhluta var eins vendilega
ruglað saman og hægt var. Eldhúsið
var við hliðina á svefnherbergi hjóna,
en gangur á milli stofunnar og eld-
hússins. Þú hefðir átt að fá kopiu af
teíkningunni og athuga hana í góðu
tómi og fá einhvern hlutlausan arki-
tekt til þess að bera saman teikning-
una og þarfir fjölskyldunnar. En nú
heldur þú áfram að tala við fasteigna-
salann.
KARL SÆMUNDSSON
byggingarmeistari hef-
ur látið Vikunni í té
nokkur atriði, sem gott
er að hafa í þuga við
kaup á fokheldri íbúð.
1) í hvaða ástandi telst íbúð vera fokheld? Því má svara á þá lund, sé um steinhús að ræða, að mið-
að er við, að íbúðin sé að fullu steypt upp ásamt þjim innveggjum, sem teljast burðarveggir, nema not-
aðir séu bitar og súlur, gler sé komið í glugga, opnanlegir gluggar séu komnir á lamir og læsingar á
þeim í lagi, frá þaki sé gengið með klæðningu, pappa, járni ásamt rennuböndum, í útidyrum séu bráða-
birgðahurðir á lömum og Iæsing, — skólp- og vatnslögn sé komin upp úr kjallaragólfi.
2) Kaupandinn byrji á þvf að athuga teikninguna gaumgæfllega og bera saman við þarfir fjölskyld-
unnar. Bezt er, að hann hafi arkitekt eða byggingameistara með í ráðum.
3) íbúðir eru ýmist seldar með tvöföldu gleri í gluggum eða án þess. Einangrun húsa er mikilvægt
atriði, og kaupandinn ætti að leggja áherzlu á, að tvöfalt gler sé í gluggum, þar sem hann kaupir.
4) Kaupandi athugi, að ekki séu sýnilegir gallar á steypu, og einnig er mikilvægt, að veggir og loft
séu rétt, þar sem þau atriði munu koma niður á kaupandanum síðar í auknum kostnaði.
Byggingameistarinn segir: