Vikan - 18.02.1960, Page 16
KVENLEGA „TÝPAN“.
Fyrir hana eru ilmvötn eins og
t. d. Joy, en það er bara eitt allra
dýrasta ilmvatn í heimi. L‘air de
Temps hentar jafnt ungum stúlkum
sem eldri dömum. Einnig má nefna
Diorissimo og Belodga. Af Kölnar-
vötnum, sem hæfa henni bezt, eru
June night og Appleblossom.
„RAFFINERAÐA" DAMAN.
Mitsouko og Quadrille eða létt
ilmvatn eins og Femme henta bezt
fyrir hana. Ef hún vill aftur á móti
vekja sérstaka athygli, þá má benda
á Bandit og Shocking. Poivre og
Sirocco hæfa henni einnig vel, og
ekki má gleyma Noire, en það er
afar þungt og sterkt.
FRJÁLSLEGA KONAN.
Henni passar bezt Carnet de Bal,
því að hún vill vera sérstæð. Or et
Noir og Scandal eru vel til fallin,
og hið síðarnefnda lyktar ekki eins
skaðlega og nafnið gefur í skyn.
Fvrir konur, sem vinna úti, eru
Kölnarvötn eins og Shantung,
Moustache eða Fraiche alveg til-
valin.
Þetta er eitt af dýrustu
og íburðarmestu ilmvatns-
glösum sem framleidd eru
— gullslegnar rósir og
kristall.
SPORTLEGA STÚLKAN.
Hún ætti að taka Ma Griffe og
Zichy fram yfir flest önnur. Bæði
henta vel til notkunar að deginum.
Af öðrum ilmvötnum sem hæfa
henni, má nefna Le Dix, Gin fizz
og Baghari. Annars má geta þess,
að Kölnarvatn af góðri tegund á
bezt við að deginum til fyrir þessa
kvengerð.
■ffráfá',
tímoatii
il'eq
áðnifti
MIÐALDRA DAMAN.
Hún notar daufan ilm, helzt Köln-
arvatn eins og t. d. Yardley, 4711,
og Cordon vert. Ágætt er fyrir
rosknar konur að nota ilmstifti.
E'f þér viljið útbúa inniskó á barnið, þá eru þessir kattaskór
afar skemmtilegir. Stærðin á meðfylgjandi sniði er miðuð
vlð það, að ferningarnir séu stækkaðir upp í 2 sm hver, og
á sú stærð að passa á tveggja ára barn. Svo má auðvitað
stækka ferningana eftir því, hvað skórinn á að vera stór.
Efniö í þessum skóm er flauel, og þarf ca. 20 sm í þessa stærð
á tveggja ára. Fóðrið er úr poplíni, en innan á sólanum er
flauel. 1 augun eru notaðar palliettur og perlur, augnaum-
gerð og trýni saumað með svörtu garni, en kampar með gráu.
Sólarnir eru úr svampgúmmí eða pappa og lítil bjalla er fest
sin á hvorn skó. Ytrabyrði, fóður og stíft léreft, sem notað
er á milli, er klippt í einu lagi eftir sniðinu b, sem er hálfur
skórinn. Eyrað er þríhyrningur, sem þér getið sjálf ráðið
stærðinni á. Áður en skórinn er saumaður saman, er saumað
út i hann og augun fest á, en síðast eru eyrun saumuð við.
16
VIKAN
FYRIR KVENFÓLKIÐ