Vikan


Vikan - 18.02.1960, Síða 31

Vikan - 18.02.1960, Síða 31
Áður en þú kaupir fokhelt Framhald af bls. 15. Jœja, kunningi. Hvar ætlar þú svo að fá þessi 100 þúsund, sem þú telur mismuninn? Reyta saman hingað og þangað, — aukavinna, víxlar kannski. Gott og vel. Það kann að takast. En mundirðu nú eftir því að spyrja háttvirtan fasteignasalann að því, hvort þessi 50 þúsund, sem lánuð voru til 5 ára, byndu ekki veðrétt 1 íbúðinni, — ef til vill 1. veðrétt. Það er að minnsta kosti jafngott að vita það. En við verðum því miður að hryggja þig, kunningi. Þú lánaðir jú stóran hluta af söluverði kjallara- íbúðarinnar og getur ekki gert ráð fyrir því nærri strax. En það er þó ekki hið versta. Þú lézt fasteigna- salann beinlinis Ijúga að þér. Við' skulum ekki halda þvi fram, að hann sé svo fákænn að búast við þvi, að: öll innrétting, tréverk, eldhússinn- rétting, hurðir, málning, dúkar og' raflagnir, kosti ekki nema i inesta lagi 82 þúsund. Slikir utreikningar eru hrein fásinna og styðjast ekki við reynslu. Við höfum haft tækifæri til þess að gera samanburð að atliugun !ijá nianni, sem keypti fokhelda 100 fer- metra íbúð og gekk frá hcnni á mjög: venjulegan hátt. Hann þurfti 135 þúsund til þessa frágangs, sem þú átt eftir, kunningi sæll, og þá er ekki talin með allmikil vinna, sem þessi maður innti sjálfur af hendi. Við fórum yfir byggingavðru- og vinnunótur frá þessum manni og gátum staðfest, að allt var rétt. En þessi ma'Sur byrjaði að ganga frá íbúð sinni fyrir þremur árum, og gera má ráð fyrir, að byggingarefni hafi hækkað talsvert siðan. Sem sagt: Það var reynt að gj'lla þetta fyrir þér á þann hátt, að kostn- aðurinn yrði 50—80 jiúsund krón- um minni en ætla raá, að hann geti minnstur orðið. Þú ert að visu búinn að kaupa, og það er of seint að iðrast eftir dauðann. En ef þú hefðir verið gæt- inn maður, sem vel kunni fótum sínum forráð, þá hefðir þú ekki lát- ið hrifast af fortölum manns, sem var mikið í mun að selja þér. Og raunar mátt þú ekki ásaka manninn. Það er hans bisnis að selja, og það cr mannlegt að gylla hlutina fyrir kaupandanum. F þú ræður ekki við það, sem þú liefur færzt i fang, þá er engan að ásaka neina þig sjjálfan. Þú hefðir gjarnan mátt tala við einhverja kunnuga menn á þessu sviði og þá ekki sízt menn, sem voru búnir að byggja sjálfir. Þeir •eru þó reynslunni rikari. Þú þekktir •ef til vill fagmenn i byggingariðn- aðinum, og þeir hefðu gert sann- gjarnar áætlanir fyrir þig. Svo má benda þér á það, að arkitektafélagið hefur komið upp stofnun, sem heitir Byggingarþjónustan, og þar eru ýmsar notadrjúgar upplýsingar gefnar. Þegar þú varst búinn að afla þér raunhæfrar þekkingar á áhjákvæmilegum útgjöldum, var timi til þess kominn að rannsaka láns- fjármöguleika og fjárreiður þinar. Þá hefðir þú ef til vill komizt að þeirri niðurstöðu, að þig vantaði alldrjúgan skilding, sem engir mögu- leikar væru á að útvega í náinni framtíð. Með þá niðurstöðu dugir ekki að leggja af stað, — að minnsta kosti ekki i svo mikið fyrirtæki sem 100 fermetra ibúð er. Þú hefðir þá fremur klofið það að byggja þriggja herbergja ibúð, 70—80 fermetra. Það hefði verið betra en kjallarinn og hefði nægt þér fyrst um sinn. Ef þú byrjar á framkvæmd, sem kostar rúmlega 400 þúsund og hefur 300 þúsund til umráða, þá má líkja þér við mann, sem önglaði saman nokkr- um krónum og tók sér far með flug- vél til útlanda, en þar þraut féð, og hann komst ekki heim. Þú verður að sjá svo um, að þú komist lieim. Þú skalt ekki heldur reikna dæmið þannig, að það hafist, ef þú vinnur aukavinnu til miðnættis á hverjum virkum degi. Það er einskis virði að selja kjallaraibúð og kaupa aðra betri, ef þú getur ekki lifað lífinu næstu ár. Þá ert þú sjálfur orðinn þræll. Þá mælum við frekar með því, að þú takir ibúð á leigu, ef þú get- ur alls ekki sætt þig við gömlu íbúðina, — og minnizt þess, að mað- urinn er aðeins einu sinni ungur og það er hart að þurfa að hneppa sig i þrældóm á bezta aldri, þegar þú ættir freniur að nota tómstundir þinar til þess að víkka sjóndeildar- liring þinn á sem flestum sviðum. Að lokum þetta, kunningi sæll: Ef ])ú getur ráðið við þetta, sem þú hefur lagt út i, og ert ákveðinn i því að berjast til þrautar, þangað til allt er klappað og klárt, þá viljum við ráða þér að byrja á þvi að fá innanhússarkítekt til þess að líta á íbúðina með þér og leggja þcr ráð. Hann kann að hafa ýmsar góðar hugmyndir i pokahorninu, bæði um útlit og hagkvæma innréttingu. og hann tekur ekki nema 100 krónur fyrir ómakið. Það er næstum þvi víst, að þær krónur færð þú borg- aðar tífalt. G. S. — Kæri viðskiptavinur! Ég verð að hryggja yður með því, að sætið fylgir alls ekki með í kaupunum þegar útborgunin er engin! ILM Karmelhi-sósa er það sem ffthBV vantar í rjómahjúpinn á tertuioai, f búðinga eða aðra ábætisrétti. Fleira gott í túpum: Kryddsfld Sykursíld .Tarðarberjaeulfo > Mayonnese Lplukaka með ILII4 raspi og rjoma er lausnin á vandamálinu um kaffitertuna eða ábætisrétt, sein vekja mun ánægju gestanna og fjölskyldunnar. nýtt ILMA Ávaxtahlaup f túpum til - .reyta með tertur, kökur, ábætisritti o. fl. Gult — Rautt — Grænt Heildsölubirgðir Sltiphðlt Vr SKIPHOLTI 1 • REYKJAVÍK Sími 2-37-37. Ilma raspurinn er ómissandi við ýiniskonar pönnusteikur, kótelettur, fisk o. f 1.; gefur matnum óviðjafnanlegt bragð og fallegan rauðgullinn lit. VIKAN 31

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.