Vikan


Vikan - 18.02.1960, Síða 33

Vikan - 18.02.1960, Síða 33
TAPAÐ AÐ EILÍFU er það fé sem ekki kemur inn í fyrirtæki yðar í dag. TAPAÐUR ágóði kemur ALDREI aftur. Komið í veg fyrir ágóðatap, liggið ekki lengur með vöruna en frekast er unnt, vextir eru háir og dýrir fyrirtækinu, umsetjið hraðar. Náið til kaupendanna á einfaldasta og ódýrasta hátt, auglýsið í VIKUNNI. V I K A N kemur V I K U eftir V I K U inn á flest heimili landsins og er lesin af flestum þeim sem kaupa vörur og þjónustu í landinu. -TuiJiJiJTJxrunjxnjnjTj^^ IHinnkandi vclta Framli. af bls. 18. — Það verður auðvitað að fara að þessu með mikilli gætni. — Ég vil taka það skýrt fram, að við ger- um ekkert, nema við séum aiveg vissir i okkar sök og getum nefnt hlutinn, sem tekinn hefur verið, og hvar hann hefur verið látinn. Oftast er það tilviljun, að maður leiðir grun að ein- hverjum, því að 99% viðskiptavina koma hingað í heiðarlegum tilgangi. En hins vegar er ég alveg viss um, að allir þeir, sem stunda þessa iðju, eru teknir fyrr eða síðar. Þeir hafa öðruvísi framkomu en gengur og gerist um heiðarlegt fólk. — Hvernig bregzt fólk við því, þegar það er staðið að verki? — Flestir brotna, en sumum finnst þeir ekkert afbrot hafa framið. Þið getið ekki ímyndað ykkur, hvað það er leiðinlegt, þegar svona lagað kemur fyrir, — já, maður er ein taugahrúga á meðan. En það kemur aldrei fyrir, að maður sé yfirheyrður frammi í búð- inni. Eg kalla ævinlega á viðkomandi hingað inn fyrir. Langoftast hefur verið um nokk- urra króna verðmæti að ræða, og margir bera sig ákaflega aumlega, sem von er, en við látum ekki frá okkur neinar upplýsingar um þetta fólk til annarra aðila. — Heldur þú, að fólk leiðist út í hnupl fyrir fátæktar sakir eða af öðrum orsökum? — Það er ekki að sjá, að þetta fólk sé fátækt, nema síður sé, en þó kemur það fyrir, að borið sé við slæmum ástæðum og veikind- um. Manni finnst sumir iðrast, — en verið getur, að það sé leikaraskapur, og ef til vill eru þeir forhertastir. Sumir hafa komið hing- að seinna til þess að verzla, en yfirleitt lætur þetta fólk ekki sjá sig framar, og ég hef trú á því, að það hafi fengið þá lexíu, að það leggi ekki mannorð sitt í sölurnar fyrir fá- einar krónur. VIKAN 33

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.