Vikan - 10.03.1960, Page 17
„Púðaaðferðin“ —
liggjandi á gólfinu
marflöt. Handleggir
niður með síðum.
Sá hægri er að verða
blýþungur .. .
AÐ eru aðeins fáir menn, sem eru frá nátt-
úrunnar hendi þannig gerðir, að þeir geti
hvílt líkamsvöðvana algerlega og einangrað
sig frá umhverfinu. Mikill hluti af hinu indverska
jóga-kerfi er einmitt í þvi fólginn að „slappa al-
veg af“, andlega og líkamlega. Flestir jógar taka
sér þannig hvíldarstund á degi hverjum, er sál
og líkami safna nýjum kröftum. Það er ekki
fyrr en á síðustu áratugum, að menn í Vestur-
Evrópu gerðu sér grein fyrir, hve mikilvæg slík
hvíldarstund er fyrir andlegt og líkamlegt
heilsufar.
Auðveldasta aðferðin við þessa afslöppun er sú
að liggja á bakið á góifinu með handleggina nið-
ur með síðunum. Maður byrjar á að ímynda sér,
að hægri handleggurinn sé alveg blýþungur. Með
því að halda nógu fast við þessa ímyndun kemur
það í ljós, að handleggurinn verður raunverulega
þungur. Við að endurtaka þessa æfingu nokkr-
um sinnum verður þetta mjög auðvelt. Á sama
hátt má æfa alla aðra vöðva líkamans, þannig
að með því að leggjast niður eins og áður er
sagt má á nokkrum mínútum ná algerri hvíld.
Jafnhliða vöðvaafslöppuninni má gera öndun-
aræfingar, sem eru mjög mikilvægar. Það virðist
í fljótu bragði spaugilegt að fullyrða, að fólk
kunni ekki að draga andann á réttan hátt. En
það er víst þannig um flesta, að þeir fara ekki
alveg rétt að því, en það er bót í máli, að fljótlegt
er að læra það. Norskur læknir, Braatöy að nafni,
hefur sýnt fram á, að innöndun og útöndun eigi
ekki að vara jafnlengi. Innöndunin eigi að vera
styttri. Innöndun og útöndun eiga að fylgjast að,
en á eftir útöndun á að vera aðeins hlé. Ef þessar
öndunaræfingar eru gerðar jafnhliða afslöppun-
inni, næst mjög skjót og gagnleg hvíld fyrir tauga-
kerfið.
Fyrir byrjendur í afslöppun er „púðaaðferðin"
ágæt. En hún er þannig, að smápúðum er stungið
undir hnakka, handleggi og hnésbætur. Púðarnir
verka þannig, að maður eins og svífur í lausu
lofti, og það auðveldar afslöppunina.
Að snyrta sig á hálflíma
T> ÉR hafið aðeins hálftíma til
þess að klæða yður og snyrta,
áður en þér farið í leikhúsið. Er
það nægur tími? Já, auðvitað, svo
framarlega sem þér getið verið ró-
leg, en ef þér æsið yður upp, fer
ullt i handarskolum. Ilér er tíma-
áætlun, þar sem reynt er að láta
þessar 30 dýrmætu minútur end-
ast svo lengi sem unnt er.
Fyrsta skilyrðið var víst að vera.
róleg, og það er enginn vandi, ef
þér eruð búin að ákveða nákvæm-
lega, í hverju þér ætlið að vera.
Það er alveg tilvalið að hugsa um
þetta á lieimleiðinni í strætisvagn-
inum. En þér verðið að halda fast
við það, sem þér eruð búin að
ákveða, þoi að jafnvel smábreyting
getur tekið s\o langan tima, að hún
eyöileggi áætlunina.
Byrjið á því að setja klukkkuna,
þar sem þér getið séð á luma. Tin-
ið saman fötin, sem þér ætlið í,
ásamt skartgripum, veski, hönzkum
og slœðu, og leggið allt á rúmið.
Ef til vill vantar hnapp, eða saum-
spretta kemur í Ijós. Því verður að
kippa í lag í flýti. Ekki skjálfhent,
— það dugir ekki að æðrast. Við-
gerffin teknr í hæsta lagi fimm
minútur.
Hreinsið andlitið með kremi, og
fjarlægið varalitinn. Næst er að
Framhald á bls. 21.
•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Baby-strauvélin er tilvalin fyrir fá-
menn heimili. Hún hefur það fram yfir
margar aðrar vélar að vera
fótstýrð.
Taska og skór fyrir dömu
á byrjunarstigi. Hvorutveggja
er úr svörtu leðri, með hvít-
um stungum. fsl.'framleiðsla.
Minerva-skyrtan er merk nýjung í
skyrtuframleiðslunni, þar sem hún losar
yður við hinar erfiðu strauningar.