Vikan - 19.05.1960, Blaðsíða 2
veitir ySur fullkomið permanent og greiSslu aS eigin vali—og
það er Even-Flo hárliSunarvökvinn, sem leysir allan vandann
Hið dásamlega nýja Toni gerir yður ennþá
auðveldara en yður gat áður grunað, að
setja permanent í hárið heima og leggja
það siðan að eigin vild, — en það er Even-
Flo hárliðunarvökvinn, sem leysir allan
vanda: — því hann hæfir öllu hári og
gerir það létt og lifandi, sem í raun og
veru er aðalatriði fagurrar hárgreiðslu,
varanlegs og endingargóðs permanents.
HVAÐ ER AUÐVELDAUA?
Fylgið aðeins hinum einföldustu leiðhein-
ingum, sem eru á íslenzku, og permanent
yðar mun vekja aðdáun, vegna þess hve
vel hefur tekizt að gera bylgjurnar iéttar
og lifandi.
GENTLE fyrir auðliðað hár
SUPER fyrir erfitt hár
REGULAR fyrir venjulegt hár
VELJIÐ TONI VIÐ YÐAR HÆFI.
i
i Toni—plastspólur hæfa bczt hárinu ,
L -___________________________________J
0 Kaninn vill losna
# Afbrýðisemi
ut i dauðan mann
# Sagan af Þuriði
# Menningin flutt á teiginn
I
t
1
t
1
1
1
ENN ER ÞAÐ KANINN.
Kæri póstur.
Mig langar til að ráðgast við þig um dálítið,
sem ég hef áhyggjur af. Ég er hrifin af manni,
sem er Ameríkani. Hann er seytján áruin eldri
en ég, fráskilinn og á fimm börn af fyrra hjóna-
bandi. Við höfum verið saman i tæp tvö ár.
Hann hefur verið mér ákaflega góður, þangað
til um daginn, að ég sagði honum að ég væri
ófrísk; þá varð hann reiður og sagði að það
gæti ekki átt sér stað. Ég hef ekki séð liann
síðan, og allt, sem ég hef gert til að ná sam-
bandi við hann, reynist árangurslaust. Hvað
á ég að gera? Svaraðu mér fljótt.
Þin G. Á.
Þegar menn bregðast þannig við, er aðeins
ein leið fær — lagaleiðin. Itáðfærðu þig v*ð
lögfræðing, tafarlaust.
KAItLSON STÝRIMAÐUR.
Kæri póstur.
Mér datt í hug, svona að gamni minu, að
svara spurningu í 15. tbl. „Vikunnar" i sam-
bandi við danska leikarann, Fritz Helmuth.
Hann býr á Ordrupsgárdsvej 9, Köbenhavn.
Þakka margt skemmtilegt í „Vikunni“.
Með kveðju frá
Áróru Ásgcirsdóttur, Kaupmannahöfn.
Pósturinn þakkar. Þá hafa lesendur „Vik-
unnar“ einnig einkaheimilisfang hins vin-
sæla Karlsonar stýrimanns, sem þekkir að
öllum líkindum hvorki á áttavita né sjókort.
LÁTTU SAMVIZKU ÞÍNA ...
Kæri póstur.
Geturðu ráðlagt mér heilt í vandræðum mín-
um. Ég eignaðist telpu fyrir nokkrum árum.
Faðir hennar sá liana ekki nema einu sinni, en
vildi engin afskipti af henni eða mér hafa, og
svo þegar hann dó, gifti ég mig telpunnar vegna
manni á mínum aldri og í ágætri stöðu. Þetta
gekk allt mætavel fyrst og við þóttumst báðar
hafa himinn höndum tekið, en svo fór hann
að hafa ýmigust á telpunni og var eins og
hann væri afbrýðisamur út í föður hennar, sem
er þó löngu dáinn, og léti það bitna bæði á mér
og henni. Þegar við giftumst hvorki reykti hann
né drakk, en síðustu árin er hann farinn að
drekka talsvert og það ágerist, og þá er hann
2
1
VIK A N