Vikan - 19.05.1960, Page 4
Bandaríska leynilögreglan be’tir
Tækni
gegn
glæpum
1 bandarískum rétti er gert ráð fyrir, að
maður sé saklaus. Þar til sekt hans er sönn-
uð. FBI, bandariska leynilögreglan, er ekki
lögsækjandi í máli, heldur vinnur aðeins
að rannsóknum þess og verður þvi að miða
starf sitt í baráttunni gegn afbrotum við
það að safna sönnunum, sem eru svo óve-
fengjanlegar, að lögsækjandi geti annað-
hvort sannfært kviðdóminn um sekt ákærða
með nokkurn veginn öruggri vissu eða feng-
ið hann sýknaðan. Það er t. d. mikilsvert
sönnunargagn að leggja fram sýnishorn af
nákvæmlega eins fingraförum, — þ. e. af
ákærða og hinum, sem fundust. En margir
kviðdómendur munu ekki dæma mann á
þeim grundvelli einum. Þeir þurfa frekari
vitna við.
1 aðalbækistöðvum FBI i höfuðborg
Bandaríkjanna, Washington, er stærra og
flóknara safn glæparannsóknartækja en
víðast hvar annars staðar í heiminum, og
er það mikil stoð sérfræðingum stofnunar-
innar í starfi þeirra. Þar starfa sérfræðingar
i ýmsum visindagreinum, allt frá eitur-
lyfjafræði og efnafræði að blóðvatnsfræði,
litrófsfræði, málmvinnslufræði, bergfræði
og rafeindafræði. Og allir eru sérfræðing-
arnir sjálfir vel heima í vandamálum, sem
starfsbræður þeirra þurfa að leysa. Bílþjóf-
ur, sem ætlar að leyna Þjófnaðinum með
því að flýta sér að skella nýrri málningu
á bílinn, má t. d. búast við þvi, að litrófs-
sérfræðingur FBI, sem fær í hendur örlítið
sýnishorn af málningunni, geti á augabragði
ekki aðeins sagt, á hvaða biltegund hún hafi
upphaflega verið, heldur einnig árgerð bíls-
ins og hvort hann hafi verið inálaður aftur
og þá hve oft.
Oft er FBI send mjög smá sýnishorn. Er
þetta eitur? Og ef svo er, hvaða tegund?
E'r það eiturlyf eða eitthvert annað efni,
sem grunur leikur á, að komi við sögu i
glæpamáli? Ef þetta sönnunargagn væri
fengið efnafræðingi í hendur, mundi það
eyðileggjast. um leið og leyst væri úr því.
Enda er það óþarfi, því að hér er bezt að
nota röntgengeisla. Mjó rák af röntgen-
geislum er látin skella á efninu, geislatelj-
ari mælir ljósbrot geislanna. Nú brjóta öll
kristallsefni geislana við ákveðið og þekkt
horn, og því má greina þau án þess að eyði-
leggja sýnishornið.
Önnur tæki, sem sérfræðingar FBI-rann-
sóknarsafnsins nota, eru t. d. rafeindasmá-
sjár, ýmiss konar ljósmyndavélar, sjónsmá-
sjármælar og sérstök tæki, sem búin eru til
í safninu, þegar með þarf. Þar eð saman-
burður á mörgum hlutum er mikilvægur í
starfi rannsóknarlögreglunnar, er þarna
geysistórt samsafn af dýnamitumbúðum,
sjónglerjum á framljósum bíla, pappírs-
vatnsmerkjum, ritvélum, dýrahárum, bif-
reiðamálningu, hælaförum og förum eftir
bílhjólbarða, o. s. frv.
Iðulega eru sérfræðingunum send blóði
drifin föt og þeir spurðir, hvaö þeir geti
lesið úr þeim. Við blóðrannsókn kemur ekki
aðeins i Ijós, hvort blóðið er úr dýri eða
manni, heldur einnig úr hvaða blóðflokki
það er, ef það er úr manni.
Þetta er afar mikilvægur þáttur í rann-
sókn glæpamála, þvi að þræðir í fötum geta
losnað eða farið milli manna við snertingu.
Hár geta einnig borizt frá einum manni til
annars við stympingar. Ef hárin eru siðan
lögð undir mjög sterkar smásjár, getur sér-
fræðingurinn séð, hvort þau eru af manni
eða dýri, og ef þau eru af manni, þá af
hvaða kynþætti maðurinn er. Frekari athug-
un á hárum getur oft varpað ijósi á glæpinn,
eins og t. d. það, hvort hárin hafi losnað
af manninum við valdbeitingu eða þau dott-
ið af honum, hvort þau voru bæld, dreifö,
sviðin, rifin, klippt, lituð eða liðuð.