Vikan - 19.05.1960, Síða 5
Sérfræðingum FBI-rannsóknarsafnsins
eru sendir tvær byssukúlur frá einum starfs-
manni stofnunarinnar við skyldustörf úti
á landi. Hvað geta þessir menn nú frætt
starfsbróður sinn um bær? Þeir hafa til
umráða geysistórt safn af byssum og öðrum
skotfærum, og á því byggja þeir niðurstöður
sinar. Á nokkrum mínútum geta skotfæra-
sérfræðingar safnsins skorið úr um, hvort
skotin séu úr sömu byssu, og ekki aðeins
það, heldur af hvaða tegund byssan sé og
jafnvel af hvaða árgerð. Oft er þeim send
byssa þess, sem grunaður er, og skotið, sem
skotið var. Er þá hleypt af úr byssunni, og
skotið síðan borið saman við hitt skotið,
sem sent var. Mikið af þessum niðurstöðum
sérfræðinganna er síðan sent FBI-full-
trúum og lögreglustöðvum úti á landi, sem
beðið hafa um aðstoð þeirra. En varla líður
svo vika, að einhverjir sérfræðinganna séu
ekki kallaðir fyrir dómstóla í borgum lands-
ins til þess að fylgja eftir upplýsingum sin-
um. Með árunum hefur veriö lögð æ meiri
áherzla á að kenna starfsmönnum FBI að
hafa skýrslur sínar stuttar og skorinorðar,
en þó á visindalegu máli, og leggja upplýs-
■
Bliiii
iÍÍÍÍ
i-iiiiii
■ ■
Msm
ÍiiíillÍi
Efst: Stundum komast lögreglu-
menn í hann krappann í viðureign
við harðsviraða óbótamenn.
í miðið: Leynilögreglan athugar
ljósmynd af fótspori og ber hana
saman við mynd af fótspori grunaðs
glæpamanns.
Neðst: Leynilögreglumönnum eru
kennd ýmisleg fræði um fingraför.
Hér er fingrafar á kvikmyndatjaldi.
Neðst til vinstri: Flugvélin sem
sagt er frá í greininni, eftir að búið
var að setja stykkin saman.
ingar sínar fyrir dómara eða kviðdóm ásamt
uppdráttum, ljósmyndum eða öðru því, sem
getur talizt frekari sönnun i þessu sam-
bandi.
En það, sem skiptir mestu máli í starf-
semi FBI, er leikni og kunnátta sérfræðing-
anna í starfinu og hæfileiki þeirra til að
finna staðreyndir sjálfstætt, og velja þeir
þá oft hinar ótrúlegustu leiðir í rannsókn-
um sínum.
Hinir slyngu glæpamenn, ímyndaðir og
raunverulegir, hafa á öllum tímum að heita
má haft Það markmið að fremja hinn svo-
nefnda „fullkomna glæp“. Ætla mætti, að
fáir mundu vilja hætta á að taka hinum
hræðilegu afleiðingum af slíkum verknaði
nú, Þegar unnt er að tefla gegn þeim óteij-
andi nýtizku-vísindaaðferðum. En þeir eru
enn til, sem hætta á þetta.
Það var á stórum flugvelli við Denver í
Colorado-fylki 1. nóvember 1955, að verið
var að undirbúa brottför flugvélar, sem átti
að fara í næturflug. Verzlunarmaður veif-
Framhald á bls. 28.
VIKAN