Vikan - 26.05.1960, Qupperneq 9
tröppurnar, kreppti hnefana í
buxnavösunum og þaut vestur
götuna. Það var kökkur í liálsinum
á honum og grátur í augunum, en
hann tárfelldi ekki. Það skiptust
á hylgjur í brjósti hans: sorg —
og hatur. — Ætli þetta atvilc hafi
ekki haft úrslitaáhrif á skapgerð
bilakóngsins? Að minnsta kosti
kom þetta fyrst af öllu i hugann,
þegar ég var að spyrja hann um
ævi hans.“
Gestirnir urðu þögulir. Þessi saga
hafði varpað ljósi yfir Steindór
Einarsson, — og þess vegna set ég
liana sér, hvort sem Steindór
sjálfur vill meðganga hana eða
ekki. Ég hef þó enga ástæðu til að
ætla, að hún sé ekki sönn. Stein-
dór Einarsson hefur aldrei verið
vinsæll maður. Hann hefur haft
það ólag á að lirinda fremur frá
sér en laða að sér. Hið bezta, sem
um hann er sagt, er á þessa leið:
,jHann er bezti karl innst inni, en
það er alltaf bölvaður hryssingur
í honum.“
n.
Steindór Helgi Einarsson er
Ölfusingur í aðra ætt, en Reykvík-
ingur í hina. Hann fæddist að
Ráðagerði 25. júli 1888, og voru
foreldrar hans Einar Björnsson
tómthússmaður frá Þóroddsstöð-
um í Ölfusi og Öxnalæk og Litla-
Hálsi í Grafningi. Steindór mun
því liafa verið frændi Marteins
Einarssonar kaupmanns, en sú ætt
í Ölfusinu hefur alltaf verið talin
fésæl, en þó engar hetjur þar í
bland, aðcins húrar og búhyggju-
menn. Hins vegar mun Steindór
liafa erft dugnað og hörku úr móð-
urættinni, en Guði’ún, móðir Stein-
dórs var dóttir Steindórs tómthúss-
manns á Bjargi í Reykjavík,
Matthíassonar, kaupmanns í Hafn-
arfirði, en margir i þeirri ætt hafa
verið taldir dugnaðarmenn og
frelcjudólgar, sem hafa ekki látið
sér allt fyrir brjósti brenna. Faðir
iSteindórs mun ekki hafa verið
forkur til vinnu eða útvégana, en
þeir, sem þannig voru af guði
gerðir í gamla daga, sáu sæng sina
útbreidda, þvi að tækifærin voru
fá og stritið og harkan aðalatriðið
til þess að geta haft i sig og á.
Þetta mun hafa sett sitt mark á
æsku drengsins, eins og sagan i
upphafi þessa máls bendir til. —
En dugnaðurinn sagði fljótt til
sin. Hann var þegar á barnsaldri
á sífellduin þveitingi út og suður
og setti sig aldrei úr færi um að
fá verk að vinna, svo að hann
eignaðist aura og gæti fært móð-
ur sinni. Mjög snemma eignaðist
hann reiðhjól — og mun fyrstur
manna hafa tekið upp á þvi að
leigja þau út, en síðar varð Valdi
rakari aðalreiðhjólaútleigjandinn
i hinni miklu borg. Næst mun
Steindór hafa eignazt vagn og
hest og farið að taka að sér að aka
út vörum, en töluvert bar á slík-
um ökumönnum í hernsku Reykja-
vikur. Fljótlega hætti hann þó
reiðlijóla- og hestvagnabraskinu
og keypti sér bát. Stundaði hann
þá alllengi þá atvinnu að flytja
farþega og smávörur frá skipum,
sem komu á núverandi ytri höfn,
og í land. Þessi atvinna gaf ýmis
tækifæri, sem Steindór stundaði
af kappi, útsjónarsemi og dirfsku,
— og hafa maigar sögur gengið
af því basli, sem erfitt er að lienda
reiður á. Þá mun Steindór hafa
mjög iðkað það að leggja ekki bát
sínum þar að skipi, sem kom frá
útlöndum, að vel sæist til atliafna
frá landi, heldur lagði honum við
hina siðuna. Þótti mönnum þetta
kynlegt í fyrstu, en málin skýrð-
ust og sýndu enn, að töluvert var
í piltinn spunnið. Þessi atvinna
varð til þess, að Steindór kynntist
Framliald á bls. 26.
hsrm og hœrro
Hástökk hefur lengi verið
vinsæl iþróttagrein. Það krefst
ekki mikils erfiðis, og sé efni-
viðurinn fyrir hendi, er sæmi-
legur árangur fáanlegur án
þrotlausra æfinga. En þeir,
sem ná „toppí'-árangri hafa
undantekningarlaust firnakraft
í fótunum og langa æfingu að
baki. Allar hástökksaðferðir
miða einkum að tvennu: kröft-
ugu uppstökki og því að koma
þyngdarpunktinum yfir rána
án þess að þuría að stökkva
með hann langt yfir rána. Til
þess þarf mikla tækni. Veltu-
stíll hefur rutt sér mikið til
rúms að undanförnu, og hinir
snjöllustu aðhyllast hann yfir-
ieitt. Með því að velta sér lögu-
lega yfir rána þarf þyngdar-
punkturinn litið að fara upp
yfir hana.
X vetur hefur komið fram á
sjónarsviðið ungur Bandarikja-
maður, sem farið hefur fram
úr öllum fyrri stökkvurum, og
er hann þó mjög ungur og ó-
reyndur. Hann heitir John
Thomas, og hæst hefur hann
náð að stökkva 2,196 m. En í
rauninni segir það ekki allt.
Það væri sanngjarnt að miða
við hæð. manna, þegar um há-
stökksafrek er að ræða. Það
hefur alltaf þótt mjög gott að
stökkva hæð sina, en það kem-
ur i ljós, að hinir beztu í heim-
inum gera mun betur. Hér á
eftir birtum við lista yfir
nokkra beztu hástökkvara
heimsins og svo hitt, hversu
hátt þeir stökkva yfir hæð sina.
John Thomas, Bandarikin 2.196
yfir hæð sína 22 cm
Juri Stepanov, Rússl. yfir hæð sína 33 cm 2.162
Vladimir Sitkin, Rússl. yfir hæð sina 35 cm 2.15
Charles Dumas, Bandar. yfir hæð sína 28 cm 2.149
Xgor Kashkarov, Rússl. yfir hæð sina 32 cm 2.14
Robert Shavlakadze, R., yfir hæð sína 27 cm 2.13
Walter Davis, Bandarikin 2.124 yfir hæð sina 8 cm
Richard Dahl, Svíþjóð yfir hæð sína 19 cm 2.12
Ernest Shelton, Bandar. yfir hæð sína 23 cm 2.115
Floyd Smith, Bandaríkin 2.115 yfri hæð sína 21 cm
Bengt Nilson, Svíþjóð yfir hæð sína 31 cm 2.114
Stig Petterson, Sviþjóð yfir hæð sína 21 cm 2.11
Lester Steers, Bandar. yfir hæö sína 24 cm 2.108
George Dennis, Bandar. yfir hæð sína 29 cm 2.108
Don Stewart, Bandar. yfir hæð sina 17 cm 2.105 ★
VIKAN
9