Vikan - 26.05.1960, Blaðsíða 31
Pðstnrinn
Framhald af bls. 3.
Svona er það, sfnum augum lítur hver í
silfrið, og ekki er gott að gera svo öllam
líki — sízt af öllu í útvarpinu.
SKYLDU ÞEIR ÆTLAST TIL EINHVERS ...
Kæra Vika.
Á hverju sumri auglýsa karlmenn eftir stúlk-
um sem félögum i sumarferðalög og bjóða allt
ókeypis. Finnst þér að ungar stúlkur geti svarað
slfkum auglýsingum og tekið boðinu, eða held-
urðu að þeir ætlist til einhvers annars, sem
ekki er þá gott að neita, ef maður hefur þegið
boðið?
Með þökk fyrir svarið.
Tvær i vafa.
Til hvors skyldu mennirnir svo sem ætlast?
Allt sr nú svo sem lagt út á verri veginn ...
Lærið að hvílast
Framh. af bls. 16.
Reynið nú að gleyma handleggjum yðar og fót-
um, — látið þá liggja máttlausa. Ef þetta reyn-
ist erfitt, skuluð þér lyfta hverjum fæti og hand-
legg dálítið og láta síga hægt. Það hjálpar til.
Andið rólega og ekki djúpt, af þvi að það örvar
taugastöðvarnar.
Nú, er þér hafið lokað augunum, skuluð þér
telja sjálfum yður trú um, að augnalokin séu
svo þung, — brátt svo þung, að þér gætuö alls
ekki opnað augun, jafnvel þótt þér vilduð.
Hafið engar áhyggjur, enda þótt þetta heppnist
ekki strax. Kveikið ljós, lesið eitthvert skemmti-
efni í nokkrar mínútur, en reynið þá aftur. Þetta
hefst smátt og smátt. Sannið til, að áhyggjurnar
og erfiðleikarnir virðast ekki eins slæmir, er þetta
hefur verið reynt nokkrum sinnum.
Ef þér um nokkurt. skeið haíið verið tauga-
spenntur og svefnlítill, getið þér vart búizt við,
að líkami yðar og sál venjist þessu strax. Hafið
hugfast, að öll auglýsingastarfsemi grundvallast
á sífelldum endurtekningum, og sú staðreynd, að
hundruðum milljóna er varið til þeirrar starfsemi,
sannar, að áhrif þeirra eru geysileg.
Þér megið alls ekki hefja þessa aðferð
með því að segja við sjálfan yður í önugum tón:
„Ég skal sofna" — eða: „Ég skal hvilast", ef
undirmeðvitundin spyrnir á móti og segir: „Hvaða
helv.... vitleysa! Það get ég aldrei."
Er þér hafið lært að hvílast á nóttunni, mun
yður veitast það auðveldara að deginum.
Reglulega góð hvíld, þar sem likaminn og heil-
inn „slappa af“, er í rauninni afbragðs-taugameð-
al, hvort s'em notaður er djúpur hægindastóll,
garðstóll eða farið í sólbað úti í guðsgrænni nátt-
úrunni.
Ef þér viljið auka á hamingju yðar og áhrif,
verðið þér fyrst að læra að hafa fullkomna stjórn
á yður. Óþörf orkueyðsla er ekki vænleg til ár-
angurs, en hins vegar hafa engin afrek verið
unnin með því að halda henni í skefjum.
Reynið að hvílast bæði andlega og líkamlega
eins oft og þér getið, og yður mun furða á þeirri
orku, sem þér getið safnað á stuttri stund, og þér
munuð finna aukinn kraft til þess að glíma við
hin hversdagslegu vandamál, er að steðja á hverj-
um tíma.
Góð hvíld er lykillinn að góðri og varanlegrl
heilsu og háum aldri.
Séuð þér áhyggjufullur og taugaspenntur og
andardráttur yðar stuttur og tiður, andið þá
nokkrum sinnum mjög djúpt. Með því að hægja
á andardrættinum og dýpka hann, getið þér einn-
ig hvílzt. +
Þú og barnið þilt
Framhald af bls. 15.
þvi oft, sem eigum auðvelt með nám, hve mikið
strit sumir nemendur verða að leggja á sig
til þess að ná örlitlum árangri. Við miðum
námskröfurnar við getu sjálfra okkar og ætl-
um þær svo öllum börnum og unglingum. Af-
Dragist ekki afturúr ...
Það getur dregið dilk á eftir
sér að vita ekki full skil á nýj-
ungunum sem daglega koma
fram á sviði tækninnar.
Það er auðvelt
að fylgjast með flestu sem ger-
ist siðan tímaritið „TÆKNI
fjTÍr alla“ hóf göngu slna, því
það birtir fréttir, myiidir og
lengri greinar um allt það sem
máli skiptir. Þér þurfið enga
tækniorðabók til þess að skilja
greinarnar i „TÆKNI fyrir
alla“.
leiðingin er sú. að sumir nemendur standa í
þrotlausu námsstriti alla sina skólatíð og leggja
svo hart að sér, að vinnudagurinn verður ó-
hæfilega langur og heilbrigði þeirra stafar
hætta af.
LEYND TILHLÖKKUN.
Sameiginleg öllum er gleðin yfir tilbreyting-
unni, að losna undan fargi hins reglubundna
náms og að leyfa nýjum viðfangsefnum að kitla
hugann. En undir þessari gleði yfir skólaslitum
og tilbreytni leynist hjá mörgum dýpri þrá, sem
þeir gera sér eklci ljósa, en blandar þó ofur-
litlum saknaðarkeim í tilhlökkunina. Fjölmargir
nemendur lita á skólann sem tryggan vin, sem
þeir skilji að vlsu við um stund, en hitt aftur
á tilteknum tlma. Það er hinn fjölmenni hópur
barna og unglinga, sem hefur yndi af náminu
og þráir að fá að lialda því áfram. Sú þrá truflar
ekki gleðina yfir sumarleyfinu né lætur hana
sljóvga sig. Þegar liður á sumarið, verður til-
hlökkunin til skólans ráðandi i liug barn* og
unglings.
Heilbrigð æska flýr ekki þá áreynslu, sem
námið krefst. Þörfin fyrir áreynslu er þvert á
móti fólgin I vaxtarhæfni mannsins. í öllu at-
ferli sinu leitast barnið við að finna sér tilefni
til áreynslu. Upp af þessari viðleritni eru leikir
barna sprottnir. í þeim finnur barnið tækifæri
til þess að reyna á sig og leggja sig af alefli
fram við að leysa einhverja þraut .Við full-
orðnir, sem erum að verða ofurlitið værukærir
og hóglífir, mættum oft undrast, hve mikið börn
og unglingar geta lagt á sig i leik. Þá brýzt
fram hjá þeim sálræn orka, og þau sýna
viljastyrk og þolni, sem við hefðum naumlega
trúað, að þau ættu til.
Vandi kennarans er fólginn í þvi að gera þessa
orku virka i náminu. Hún er óvirk hjá þeim
hluta nemenda, sem situr sljór og daufur undir
kennslunni. Kennsla, sem ekki fær vakið barnið
til áhuga og þátttöku, er þvi að vissu marki
andstæð meginlögmáli mannlegrar þróunar og
kemur að engu gagni. Eftir slika aðbúð i skóla
skilja nemendur við hann án saknaðar. Þelr
þykjast hólpnir að slappa. ★
VIKAN