Vikan - 26.05.1960, Síða 11
Kjartan Á. Kjartansson sýndi mjög ný-
tízkuleg dagstofuhúsgögn með stíl, sem
._lítiö hefur sézt hér á landi enn sem
komið er. Þessi húsgögn voru úr reyktri
eik með hinu nýja Gefjunaráklæði, sem
Danir kaupa af okkur. Stólseturnar und-
ir púðunum og sömuleiðis fótaskemill
voru úr fléttaðri hamplínu.
isjenzk Inisgögn að útflutningsvöru.
Þeir sögðu, að Danir fJyttu út í stór-
um stil ltúsgögn, sein væru litið frá-
brugðin þeim gripum, sem sýninguna
prýcidu. Og það, sem meira er um vert:
Danir kaupa Gefjunaráklæði til þess
að klæða húsgögnin, sem flutt eru til
Bandarikjanna. Hvers vegna getum
við l)á ekki keypt harðvið austan frá
Síam eins og Danir, smíðað húsgögn
hér eftir teikningum innlendra arkí-
tekta, klæti þau með áklæði úr islenzkri
ull og gert að listrænni prýði á heim-
ilunum í landinu og jafnframt að verð-
mætri útflulningsframleiðslu? Það
virðist aðeins vera framkvæmdaratriði
að hrinda fram málinu, og vonandi
verður ekki lengi látið á því standa.
Hjalti Geir Kristjánsson. Hann
sýnir skrifborðsstóla úr tekki,
klædda svörtu skinni, einnig borð-
stofuskáp, sem sést líka á mynd-
inni, sófa og sófaborð. Hjalti Geir
teiknar húsgögn fyrir Húsgagna-
verzlun Kristjáns Siggeirssonar,
og þessi húsgögn voru smíðuð þar.
Hann er formaður Félags hús-
gagnaarkítekta.
Framh. á bls. 32.
Helgi Hallgrimsson vakti athygli fyrir
einstaklega fágaða muni, einkum stól-
inn, sem hann hefur hönd á hér á mynd-
um i. Hann er úr palísanderviði, klæddur
svörtu skinni, og sömuleiðis fótaskem-
illinn, sem fylgir honum. Að öðru leyti
sýndi Helgi tvo armstóla úr mahóný og
handofnu áklæði og sófaborð úr alúmíni
með plötu úr slípuðu gleri.
Sveinn Kjarval er lesendum Vikunn-
ar kunnur af viðtali i þættinum um hús
og húsbúnað fyrir skömmu. Hann sýndi
skrifborð úr tekki, sömuleiðis skrifborðs-
stól með handunnu áklæði, armstóla,
sem ekki sjást á myndinni, og svonefnda
staflastóla, létta stóla úr málmi, sem
stafla má hverjum ofan á annan. Þeir
eru smíðaðir 1 Merkúr h.f., en aðrir
gripir Sveins í Nývirki h.f.
Gunnar H. Guðmundsson sést
hér ásamt tveimur sýningargrip-
um sínum. Það er borðstofuborð
með fremur nýstárlegu sniði úr
olíubornu tekki. Stólarnir eru úr
sama efni, og á þeim eru lausir
púðar, klæddir leðri. Auk þessa
sýndi Gunnar lágan stól úr vax-
bornum aski, einnig með leður-
klæddum púðum.
Halldór Hjálmarsson sýndi borS-
stofuskáp úr aski, og stóð hann
á lágum bekk. Þá sýndi hann hæg-
indastól úr tekki og eik með hand-
ofnu áklæði. Formspenntir stafla-
stólar vöktu athygli hjá Halldóri.
Þeir hafa ekki sézt hér áður í þessu
formi, en Danir framleiða mikið
af þeim. Hann sýndi líka borð-
stofustóla úr tekki.
n
VIKAN