Vikan - 26.05.1960, Blaðsíða 23
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumsptikur mudur rmður druumu fi/rir lesendur Vikunnnr
Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins.
Til Draumráðanda Vikunnar.
Mig dreymdi fyrir stuttu, að mér fannst ég
vera að koma úr skólanum, og er ég kem inn
í eldhús heima, situr gömul kona við borðið,
og luin segir strax við mig: „Ég verð nú að
leggja af stað heim. Ég á heima i Hafnarfirði,
en rata ekki á stoppustað sem Hafnarfjarðar-
strætisvagninn stoppar á og þú verður að fylgja
mér þangað. Ég varð undrandi, af því ég hafði
aldrei séð þessa konu fyrr. Ég fylgi henni að
stoppustaðnum, en ekki sagði hún neitt við mig
á leiðinni þangað (sem mér fannst löng), og
hún kvaddi mig ekki einu sinni þegar hún fór
inn í vagninn, mér fannst þessi kona eitthvað
skrítin. Siðan gekk ég heim, en á leiðinni fannst
mér vera mikið af rauða grjóti á veginum, og
gömul girðing var við veginn og fyrir innan
hana var grænt tún mjög stórt, þar voru 2 fuglar
með lítinn unga og voru ijósblágráir með hvítu
á. Ég varð svo lirifinn af þessum fuglum að ég
stoppaði og horfði á þá og litli unginn kom þá
í áttina til mín og kom mjög nálægt. Þá komu
fuglarnir tveir til hans cins og þeir væru að
gæta hans.
Síðan liélt ég áfram heim á leið og var kom-
in i svo gott skap að mér fannst mér aldrei
hafa liðið eins vel.
Með fyrirfram þökk,
Björk.
Svar til Bjarkar.
Þér mun óvænt verða falið ábyrgðarmikið
verkefni á næstunni. Það mun verða nokkuð
erfitt og vanþakkað, en þegar þú ert í þann
mund að ljúka því mun verða á vegi þínum
efnaður piltur, sem síðar mun kvænast þér
þrátt fyrir mótbárur skyldmenna hans. Oft
er það nú svo að elskendur eiga erfitt með
að ná saman, því foreldrum annars aðilans
þykir „barnið sitt taka niður fyrir sig“.
Auðvitað vilja allir foreldrar að börn sín
verði hamingjusöm, en eru hins vegar glám-
skyggnir á vilja „barnsins“. Frelsið er hins
vegar heppilegast í þessu tilfelli, því það er
„barnið“, sem giftist en ekki foreldrarnir.
í mörgum tilfellum mun vera ágætt fyrir for-
eldra að ýta undir kynni „barnanna“ því þá
eru meiri möguleikar á að benda á kosti eða
lesti hins aðilans. En að mínum dómi hafa
allar sundurskilnaðarathafnir gagnverkandi
áhrif.
Ég, í þessu tilfelli, spái því að þið náið
saman um síðir og muni þetta allt ganga að
óskum.
Til draumráðandans.
Þetta er mjög skritinn draumur en samt vona
ég að þú getii’ ráðið hann fyrir mig.
En það var svoleiðis að ég var að leggja /
ferð á skipi ásamt pabba, mömmu og einni vin-
konu minni. Á leiðinni (en ég veit auðvitað ekk-
ert hvert ferðinni var heitið) lentum við i ís,
svo að skipið festist. Einhvernveginn komumst
við að sveitabæ, sem hýsti oklcur, en mér fannst
að það væri bara ég og vinkona mín, pabbi og
mamma. Dag nokkurn fannst mér pabbi og
mamma fara eitthvað í bil og bíllinn sem þau
voru í féll frá háum kletti niður á isinn skammt
frá skipinu (og dóu þau), en ísinn sprakk allur
svo að skipið sökk (ekki skritið?) Eftir stóðum
við einar uppi ég og vinkona mín og komumst
ekki neitt i burtu. Á bænum var ungur, piltur,
sem við urðum báðar hrifnar af en vinkona
mín hremmdi hann fyrst, og á meðan mjólkaði
ég kýrnar. En ekki leið á löngu þar til ég fékk
hann. Mér fannst hann gefa mér hring og ég
gaf-honum men, stórt hjarta, sem ég hef látið
pilt liafa (áður en mig dreymdi) sem ég var
dálitið með, en á meðan mjólkaði vinkona mín
kýrnar.
Því miður gat ég ekki klárað alveg að dreyma
hann og sjá hvernig fór því að ég vaknaði.
Þakka þér svo fyrir fyrirfram,
Draumadís.
Svar til Draumadísar.
Foreldrar þínir munu á næstunni eiga í
vök að verjast vegna mannorðs síns. Þau
Frafhald á næstu síðu.
21.
VERDLAUHflKROSSGÁTfl
VIKONNAR
Vikan veitir eins og kunnugt er verð-
laun fyrir rétta ráðningu á krossgát-
unni. Alltaf berast margar lausnir. Sá
sem vinninginn hefur hlotið fær verð-
launin, sem eru:
100 KRÓNUR.
Veittur er þriggja vikna frestur til
að skila lausnum. Skulu lausnir sendar
I pósthólf 149, merkt „Krossgáta".
Margar lausnir bárust á 16. kross-
gátu Vikunnar og var dregið úr rétt-
um ráðningum.
ALDA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Bergstaðastræti 71, Reykjavik,
hlaut verðlaunin, 100 krónur og má
vitja þeirra á ritstjórnarskrifstofu
Vikunnar, Skipholti 33.
Lausn á 16. krossgátu Vikunnar:
°°TYLFT°VOLKSWAGENBlLA
°BOLUR0GlRÁRI0FARIR°UN
BUGURÁFRAMTANGILOFÁINN
IRARKARA0 0 °PAA°ASLINDI
LÁR°ARON°°HYGGJUÞUNGUR
AаHRASA°°ÁSYNJURNGUR°
R AMI ° R I S ° °L°S°SKEGLAAS
°NÝKOMNIR0AF°FÆRIBANDI
oooooANNIRoétA°UFINDAG
ooooosiLFURoHAFSINSARÐ