Vikan - 26.05.1960, Page 25
Þau
skemmta
fyrir
norðan
mennastar vinsældir af hljómplötum sín-
um, þá hefur hún einnig getið sér góðan
orðstí fyrir söng sinn í samkomuhúsum
liér i bæ, svo ekki sé nú minnst á Alcur-
eyri, þar sem hún hefur starfað sem dæg-
urlagasöngkona mörg undanfarin sumur
og nú siðast samfleytt í lieilt ár. Á Akur-
evri liefur Helena ávalll verið i sinu bezta
„formi“ og má segja að bæjarbúar liafi
tekið hana í dýrlingatölu sína. Þvi bæri
lienni með réttu litilinn „Söngdrottning
Norðurlands“.
Fyrir mörgum árum kom ungur piltur
frá Akureyri fram á „jam-session“ á Röðli
með nokkrum hljóðfæraleikurum héðan
úr Reykjavík. Hann var þá aðeins 14 ára,
en vakti athygli áheyrenda fyrir skemmti-
legan klarinetleik, og þótti hann gcfa hin-
um eldri og reyndari lítið eftir. Þessi efni-
legi hljóðfæraleikari hét Finnur Eydal.
Tveim árum seinna sjáum við Finn leika
af lifi og sál fyrir gesti Hótel Borgar, en
þar starfaði hann einn vetur ásamt bróð-
ur sínum, Ingimar, í hljómsveit Jónasar
Daghjartssonar. Næsta haust réðist hann
svo til Svavars Gests í Sjálfstæðishúsið og
setti þar brált nýstárlegan svip á hljóm-
sveitina — þá var Finnur farinn að eiga við
fleiri hljóðfæri en klarinettið, liann lék á
bassaklarinet, sem hefur verið alveg
óþekkt i dansmúsik hér, og bariton-
savófón, sem einnig er ekki á liverju strái,
enda stórt liljóðfæri og þungt í vöfum. Og
oft heyrðist fólk segja með hrifningu frá
„litla stráknum með stóra lúðurinn“, sem
spilaði í Sjálfstæðishúsinu.
Sumarið 1958 stofnaði Finnur Eydal svo
liljómsveit norður á Akureyri ásamt
nokkrum félögum sinum, „Atlantic-kvart-
ettinn“, sem brátt varð mjög vinsæll, ekki
einungis þar norður frá, heldur einnig hér
i hænum. Þeir félagar liafa spilað inn á
margar þekktar liljómplötur, með söngv-
urunum Óðni Valdemarssyni og Helenu,
sem einnig sungu með hljómsveitinni
nokkur sumur á Akureyri. Óðinn er nú
starfandi dægurlagasöngvari í Reykjavik,
en Helena hélt tryggð við Finn Eydal og
Co., ekki sízt af því, að fyrir ári síðan
ákváðu þau Finnur að standa saman hlið
við lilið, jafnt í músíklífinu og hinu raun-
verulega og leggja til atlögu við keppinaut-
ana og framtíðina með hring á hendi.
Þau Finnur og Helena heimsóttu okkur
fyrir hálfum mánuði, þá nýkomin til
Reykjavíkur eftir ársdvöl fyrir norðan.
Við spjölluðum svolítið við þau og spurð-
um um það helzta, sem á daga þeirra hafði
drifið síðustu mánuðina.
— Jú, við liöfum spilað í Alþýðuhús-
inu á Akureyri.
— Og liefur verið mikið að gera?
— Já, mikið meira á sumrin samt —- í
júlí og ágúst er venjulega opið á hverju
kvöldi. En svo á veturna er aftur á móti
mikið um prívatskemmtanir, árshátíðir
og' svoleiðis.
— Helena, við heyrðum að þú hafir eitt-
livað fengist við leiklist þarna fyrir norð-
an i vetur?
-— Ja — leildist var það nú víst ekki,
en ég lék þarna eitt hlutverk í „Ævintýri
á gönguför“, sem sýnt var á Akureyri
núna i vetur.
— Og geklc það ekki vel?
- Jú, sæmilega lield ég.
— Er það ekki í fyrsta skipti, sem þú
„treður upp“ sem leikkona?
— Jú.
— Varstu nokkuð nervus?
—- Já, ekki get ég nú neitað því — að
minnsta kosti fyrst í stað.
— Lékst þú ekki með líka, Finnur ?
— Það stóð nú til að ég hefði þarna eitt
hlutverk, en þegar til kom lagði ég ekki
í það. Enda hefði það ábyggilega endað
með skelfingu. En ég varð nú samt við
þessar sýningar riðinn, ég lék undir söngv-
ana í leiknum, ásamt Áskatli Jónssyni.
-— Stendur eitthvað sérstakt til hjá ykk-
ur í sumar?
— Það er ekki gott að vita. Það verða
nú bráðum breytingar í hljómsveitinni hjá
okkur, gítarleikarinn sem hefur verið með
okkur hættir, en í staðinn koma tveir ágæt-
ismenn, Gunnar Sveinsson vihrafónleik-
ari og Örn Ármannsson gitarleikari, sem
reyndar kemur til með að leika á svokall-
aðan rafmagnshassa.
— Er kannski verið að hugsa um að
fara eitthvað út fyrir landssteinana með
„bandið“ ?
— Það er ómögulegt að segja. Okkur
stendur nú til hoða vinna í Noregi og Svi-
þjóð, en að svo stöddu er ekkert hægt að
segja ákveðið um, hvort við leggjum út
í það.
— Ætlarðu að syngja inn á fleiri hljóm-
plötur i sumar, Helena?
— Nei, ætli það — þetta er nóg í bili!
— Þið eruð kannski að lmgsa um að
skella ykkur í hjónabandið?
— Ja, það liggur ekkert á — annars
hugsa ég að það breytti nú ekki miklu. ★