Vikan - 14.07.1960, Síða 19
» *T (t
1ftiuAna%
it
segi
a,
&
m
HrútsrnerkiÖ (21. ,marz—20. apr.): Ekkl
er víst að allt gangi sam bazt í vikunni,
en þú mátt sar.it ekki missa móð.nn.
Þetta er aðeins afleiðing þess, að þú
hefur færzt allt of mikið í fang undan-
farnar vikur. Þú skalt reyna að hvílast sem mest
og safna þreki.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Nú
getur draumur þinn rætzt — en aðeins
ef þú leggur hart að þér. Vertu höfð-
inglegur í garð náungans, einkum
þeirra, sem lifið leikur ekki við. Líklegt
er að þig bresti þolinma'ði í sambandi við það
sem þú hefur verið að vinna að undanfarið.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní>: Þótt
þú sért í alla staði hinn hraustasti, máttu
ekki vinna allt of mikið í vikunni. Þú
verður að gera þér ijóst, að frístundir
eru einnig nauðsynlegar, þótt vinnan
gefi mikið í aðra hönd Þú ert nokkuð kröfuharð-
ur gagnvart kunningja þínum, mundu að hann
er breyzkur eins og þú.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú
munt kynnast persónu, sem hefur
margt á prjónunum og vill fá þig til
þess að taka þátt í áformum sínum,
en hætt er við að þau áform séu aðsins
draumórar og tyllivonir Þú ert nokkuð þrár og
vilt ekki sinna ráðieggingum annarra.
Ljórismerkiö (24. júlí—23. ág.): Hætt
er við, að samkomulagið verði ekki sem
bezt heima hjl þér um helgina, en það
ætti svo sem ekki að saka, því að eftir
helgina gerist dilítið, sem gerir það að
verkum, að allir gleyma þessum smáerjum og at-
hyglin beinist einung's að einu. Heillatala 7.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Pen-
ingavandamál kasta ef til vill skugga á
vikuna, en allt bendir til þess. að þú
eigir launahækkun skilið, og er ekki
úr vegi að fara fram á hana Einkalíf
þitt verður viðburðasnautt en þó ánægjurikt. Á
þriðjudag kemur einkennilegur gestur í heimsókn.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. október):
Verið getur að ailt gangi ekki sem
skyldi á vinnustað, en endalokin verða
samt alit önnur en þig óraði fyrir. Hætt
er Við að einhver kunningi þinn særi
stolt þitt. en ef þú hugsar þig vel um, er það
sem hánn sagði um þig einmitt sannleikur.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Vin-
sældir þínar munu aukast talsvert í
vikunni, og listrænir hæfileikar þínir
fá að njóta sín svo um munar í viku-
lokin. Treystu ekki kunningjum þínum
samt of miklð i vikunni. Þú skalt ekki segja nein-
um frá því, sem þú hefur i hyggju í sambandi
við peningamál. Heillatala 4.
Bogtnaöurinn (23. nóv.—21. des.): Allir
þeir, sem vinna undir umsjón annars
manns, ættu að fara að öllu með git i
vikunni. Varastu að skrifa þýðingar-
mikið bréf, ef þú kemst I uppnám. Vik-
an verður einkum kvenfólki til heilla, en karl-
mönnum kann að leiðast í vikunni.
Geitarmerkið (22. des.—20. jan.): Þú
skalt ekki taka á þig neina ábyrgð i
vikunni, því að það getur komið þér í
koll. Þú munt lenda í mjög vafasömum
félagsskap um eða eftir helgi, og er
þér bezt að sinna þeim félögum sem minnst. Góð-
vinur þinn hverfur af sjónarsviðinu um stundar-
sakir.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. íeb.):
Þú skalt ekki lofa of miklu i vikunni,
því ag erfitt verður um efndir. Margt
getur gerzt, sem breytir áformum þín-
um, en það verður vafaiaust ekki tii
hins verra. Þú lendir í einhverju klandri út af
gamalli skuld, en með aðstoð vinar þíns mun
rætast úr því. Heillalitur grænt.
Fiskamerkiö (20. feb—20. marz): Það
getur komið sér vel að koma sér i
mjúkinn hjá gömlum kunningja eða
skólafélaga. Hætt er við að upp kom-
ist um dllítið, sem þú og kunningi þinn
höfðu eitt sinn á prjónunum, og þýðir ekki annað
en að sætta sig vig það og reyna að gleyma því.
Gott
hvort með öðru
Nij stúlka í nýja bílinn eða nýr bill fyrir nýju
stúlkuna. Hvort hehlur er, þá virðist þaff
smekksalriði. Aðalatriðið er, að hvort tveggja
sé vlI heppnað. Þurna virðist mjög vel hafa
til tekizt og þaff nut segja, að hvort sé eftir
öðru, stúlkan og biltinn. Og þó, líklega er
stúlkan betri. Já, hvernig œtti bill að jafnast
á við fallega stúlku i mjúknm flauelskjól —
og með aðra eins fietnr og þessi hér. Nei, það
er auðvitað ómögulegk Hitt getur svo verið
spurning, hvort annað krefst ekki hins: Nýr
bill er fátœklegur, hafi ökuþórinn ckkert hjá
sér i frumsœtinu og á hinn bóginn er fátiek-
legt að vera með fallega stúlku upp á arminn
og geta ekki boðið hcani upp í sæmilegan far•
kost.
í Khyberskarðinu
1 Khyberskarði, milli Pakistans og Afganistans, d
hann heima, þessi skuggalegi náungi. Það má mikið
vera, e/ hann er ekki eitthvað skyldur Jóni Hreggviðs-
sgni, bónda á Rein — þeim svarta snærisþióf og böð-
ulsmorðingja, sem hljóp nálega berfættur þvert gfir
ísland og Holland, marg húðstrýktur og pindur.
Þarna í Iíhyberskarðinu er fjallvegur milli Kabul,
höfuðstaðar Afganislans og Peshawar í Pakistan. Þar
eru rán og morð daglegir viðburðir og aldrei að vita,
til hvers hinir skuggalegu íbúar skarðsins kunna að
grípa. En þeir eru gestrisnir, ef tekst að vinna vin-
áttu þeirra. Það kann að taka tima og þolinmæði,
því þeim hefur verið kennt að hata og tortryggja út-
lemUnga.
Þessi mynd er einkum oy sér í lagi ictluð karl-
mönnum og sérstaklega þeim, sem kunna að
bregða sér til Svíþjóðar á þessu sumri. Við getum
upplýst, að þessi stúlka er einhvers staðar i
Stokkhólmi, ef vel er leitað. liún er bráðfalleg,
eins og fjöldi sœnskra stúlkna, ótilgerö og hefur
þstta ferska, eðlilega útlit. En ef einhver skyldi
nú hitta hana, þá er vissara að taka þrð fram,
að stúlkan hefur œft hncfaleika. Já, glerharða
hnefaleika. Kvenlegt er það að vísu ekki, en þeg-
ar maður er svona ástleitinn á svipinn, þá sakar ekki
aö kunna eitVtivaÖ fyrir sér í hinni „göfugu sjálfs-
varnarlist".
Fyrst við ernm komin til Ilamborgar, þá
skulum við skreppa út fyrir Ijósadýrð gleði-
hwerfanna, þangr.ö sem enn eru sár eftir stríð-
ið. M'.klir erfiðleikur eru á því að fá húsnæði
og menn búa þar í húsnæði, sem e.kki þætti
fært fyrir skepnur hér. í þessum arma skúr
lýr fjölskylda, lijón með þrjú börn. Hann er
áþekkur meðal-garðkofa, nálega gluggalaus og
stendur auk þess algerlega á bersvæði.
Nei, þelta er ekki París. Það er ekki að marka það, þólt hér standi Moulin Rouge ofar dyrum.
Rauðu myllan er til víðar en í París og við höfam meira að segja eina hér á Laugaveginum. 1
gleðihverfum flestra stórborga sjást sömu nöín n, sem virðast hafa unnið alþjóðlega hylli. Lido
er haðströnd á Italíu, en siðan var einn frægasti næturklúbbur Parisar nefndur eftir lienni og
þaðan héfur nafnið breiðst út. Hér eruni við stödd á Reberbhan i Hamborg — þar er Zigauna-
kjallari og Rauð mylla, að því er virðist. Sjálfragt kannast íslendingar við sig þarna og eiga
sælar endurminningar úr þessari borg gleðinnar.
Og rétt tyrir utan
g§j|
'
■Íi