Vikan


Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 2

Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 2
TRAUST MERKI Heildsölubirgðir ECGERT KRISTTANSSON & CO. H.F. Sími 1 14 00 HOLLAND Cloznne heflr hlotið sérstök meðmœli sem gott þvotta- duft f þvottavélar. M/rtM EZF/Ð/ Heildsölubirgðir: Eggert Kristjánsson & Co. h.f. ★ Pjásustíll eða — ★ Geðtrufluð af trúboðs- skóla ★ Skuld þjóðarinnar við knattspyrnumenn „PJÁSU STÍLLINN“. Iíæra Vika. Við skrifum þér vegna þess að við stöndum í hálfgerðu striði út af rokkbuxunum. Okkur finnst þetta svo þægilegur búningur að við vilj- um helzt ekki 1 annað koma, og okkur finnst að rokkbuxurnar geti gengið allsstaðar, nema kannski í kirkjum, ef þær eru heilar og hreinar. Við erum orðnar fjórtán ára og mömmur okkar segja, að við séum orðnar of gamlar til að ganga klæddar eins og strákar, en okkur stendur á sama um það, bara ef fötin eru þægileg. Við kærum okur ekkert um að vera fínar dömur, og okkur finnst að við þurfum ekkert að haga okkur ósiðlega eða verr en þær, þó að við göng- um í rokkbuxum og strigaskóm. Og við erum ekki að elta neinn stæl, við viljum bara vera í rokkbuxum af því að þá erum við miklu frjáls- ari og eigum betra með að hreyfa okkur. Hvað finnst þér um þetta? Ertu okkur ekki sam- mála? Bless, Vika mín. Skólasystur. Hjartanlega sammála — en þó innan vissra takmarka. Hversdagslega eru rokkbuxurnar svokölluðu áreiðanlega þægilegasti búningur fyrir telpur, og það eitt er víst, að framkoma telpna getur verið í alla staði til fyrirmyndar þótt þær gangi þannig klæddar. En það er Iíka eitt af einkennum góðrar framkomu, bæði hjá telpum og drengjum, að taka tillit til allra aðstæðna hverju sinni — einnig hvað klæðaburð snertir, og þótt rokkbuxur séu hinar þægilegustu flíkur, er ekki þf r með sagt að þær eigi alltaf og allsstaðar við, og eins, að þær fara ekki öllu kvenfólk' v;d ... EINGÖNGU ÍSLENZK DANSLÖG ÞANN SEYTJÁNDA JÚNÍ ? Iíæri póstur. Seytjándi júní er okkar þjóðhátiðardagur. Hann á að vera helgaður fslenzkri menningu og menningararfi, öllu því, sem íslendingar hafa unnið og afrekað. Og um leið á hann að mynda sem traustasta undirstöðu að varnarmúr gegn erlendum áhrifum, vera í senn islenzkur þjóð- hátíðardagur og þjóðræknisdagur. Með tilliti lil þessa ber að velja eingöngu íslenzkt og þjóðlegt dagskrárefni þennan dag, bæði til flutnings á samkomustöðum og í útvarpi, og vanda það val sem bezt. En á þessu hefur jafnan orðið nokk- ur misbrestur. Á ég þar einkum við danshljóm- listina. í seinni tíð hafa íslenzkir dægurlaga- og textahöfundar unnið mikið þjóðþrifaverk og þar höfum við eignast sanna afreksmenn og listamenn, eins og til dæmis Tólfta september meðal dægurlagahöfunda, Hauk Morthens meðal söngvaranna og Jón Sigurðsson meðal texta- höfunda, svo nokkrir séu nefndir.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.