Vikan


Vikan - 04.08.1960, Page 4

Vikan - 04.08.1960, Page 4
Öll dreymir okkur eitthv Furðulegar uppgötvanir vísindamanna kollvarpa gömlun dreymir með vissu millibili á vissum tíma í einu Nú á tímum eru vísindamenn fyrst að upp- götva, hvers eSlis draumar eru. Þeir hafa kom- izt að raun um, hve oft flest okkar dreymir, hvenær draumarnir koma og hve langir þeir eru. Þeir vita nú, að rótgrónustu skoðanir okkar á draumum eru hreinar kerlingabækur. Uppgötvanir þeirra geta komið að miklum notum i sálarfræði og við rannsóknir á geð- veiku fólki og munu geta leitt margt mikilvægt í ljós um hugsanastarfsemi manna, þótt merk- ing drauma sé enn á huldu. Undirstaða þessara uppgötvana er þróun nýrrar rannsóknaraðferðar, sem gerir vísinda- mönnum kleift að segja nákvæmlega til um i fjórum dæmum af fimm, hvenær mann er að dreyma. Vísindamenn, sem liöfðu hug á að lcanna draumheiminn, höfðu hingað til átt allt undir stopulu minni dreymandans morg- uninn eftir. Nú geta þeir fylgzt með draumi manns, vakiö hann i miðju kafi og skráð drauminn, meðan hann er enn ferskur i minni og áhrif hans skýr. „Fyrir okkur, sem höfum verið að reyna að skýra leyndardóma hugsunarinnar og heilans, er þetta sögulegur áfangi,“ segir sálfræðingur í New York. Undirstöðurannsóknirnar, sem hafa leitt til þessarar þróunar, voru hafnar við læknisfræði- deildina í Brooklyn við ríkisháskólann í New York. Hér á eftir verða taldar upp nokkrar algengustu skoðanir manna á draumum, sem vísindamenn halda fram, að þeir hafi af- sannað: Suma dreymir aldrei. Sannleikurinn er sá, að öll dreymir okkur á hverri einustu nóttu, hvort sem við verðum vör við það eða ekki. Af sex stunda óslitnum svefni dreymir venjulegan mann alls í 64 mín- útur. Draumatímabil koma öðru hverju með vissu millibili alla nóttina og standa yfir frá 8 eða 9 mínútum upp i 30 mínútur eða meira. . . Tr ' mn jlÍHfli WBm s í mmm mSSIBsSmá ■ '' ' :■■■:■::: ‘ ' Þetta skemmtilega kort yfir rás draum- anna á einni nóttu er teiknað af Ricliard Erdoes og sýnir næturstundir venjulegs manns, sem um daginn hefur verið skamm- aður af yfirmanni sínum á skrifstofunni og sldpað af konunni að fara út með kött- inn (til vinstri). Þegar hann er að sofna, sér hann óljóst ketti. Síðan er svefninn eins og sýnt er á dökka fletinum neðst á myndinni. Þar sést, hvernig hann fellur i djúpan, draumlausan svefn, en losar um svefninn, þegar draumarnir koma. Fyrsti svefninn er fastastur. Á annarri klukkustund losar hann um svefninn, og fyrsti draumurinn kemur. Er hann um það, 4 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.