Vikan


Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 10

Vikan - 04.08.1960, Blaðsíða 10
Við dönsuðum saman allt kvöldið, og mörg önnur kvöld. Hann var hugulssamur og nærgætinn. Hann var hrífandi og ég var hrifin. Hrifin það var rétta orðið. - Hrifin úr hversdagsleikanum inn í n/jan töfrandi heim grárra augna, sem horfðu á mig spyrjandi, biðjandi, stundum nærri því skipandi Kaldur októberstormur leikur um andlit mitt, þegar ég lýk upp hurBinni. ÞaS logar ekki á næsta götuljóskeri, og ég staulast upp þessi fjögur þrep upp á götuna. Ég bretti upp kragann og bind skýluklútinn fastar um höfuOið. Engin dagsbrún er enn á lofti, og vindurinn gnauðar á húsaþök- um og rafmagnsvírunum, sem liggja eins og net. yfir borginni. Þegar ég beygi fyrir hornið niSur í EskihlfBina, kemur snörp vindhviöa og þyrlar framan í mig gulnuðum laufblöOum. Þau slá mig þéttingsfast i andlitiO og fjúka sfOan út í buskann. Þau eiga ekkert eftir nema aO vera troBin niOur í svaBiö. ÞaB er hálfdraugalegt úti, og enginn veit, hverj- ir kunna aB vera á ferli. Iskaldur fiOringur fer niður bakið, en ég ákveO aO ganga beint af aug- um og lita hvorki til hægri né vinstri. Skyndilega kemur fréttin i útvarpinu f gær- kvöldi fram í hugann. Einmitt þannig hlýtur veOrið að hafa veriB. Eg sé i huganum hvítfyss- andi öldur byltast viO skipssiðurnar, — skip, sem veltist í öldurótinu, stingst í öldudal, hefst upp á næsta freyðandi öldukamb, veltur til beggja hliBa, liggur augnablik kyrrt og stingst að nýju. Tveir menn koma upp á Þilfar. öörum skrikar fótur, þegar skipiB tekur snögga dýfu. Hann missir jafnvægiB og fellur útbyrðis. Félagi hans hrópar upp, hikar andartak, en stekkur síOan yfir borðstokkinn. Nokkur augnabiik sést ekkert nema hafrótiB, síOan kemur i ljós svart hár f hvít- um öldukambi og grá augu, sem rýna f gegnum sjávarlöðriO, hvöss og leitandi, — Hreinn. HiO fyrsta, sem ég hafði veitt athygli i fari hans, voru einmitt þessi gráu, leitandi augu, sem virtusl sjá í gegnum mann. Og í dag var eitt ár, síðan ég sá hann sfðast, en Þá voru augu hans ekki grá, heldur svört af hatri og fyrirlitningu. Eitt ár, — og þá haföi ég þekkt hann aðeins fimm mánuBi. Þei. Ég heyri greinilegt fótatak á eftir mér. Ég reyni að knýja sjálfa mig til að líta ekki viB, en ég verð. Ot úr dimmri hliBargötu kemur svart- klædd vera og gengur hrööum skrefum 5 áttina til mfn. HjartaO stanzar I brjóti mér, svo hendist þaO af staB með margföldum hraða, og ég verO magnlaus í hnjáliðunum. En ég verB að ganga rólega áfram, — ég verð. Hér er enginn nálægur, sem hægt er aö biöja um hjálp. Nú er veran rétt á hælum mér, nú ræskir hún sig. Ég verö að reyna að hlaupa. En — hvað? Hún hefur beygt út af götunni, og fótatakiö fjarlægist Ég lít viö í annaö sinn. Unglingsstúlka i svörtum nankins- buxum og svartri poplinúlpu gengur hröðum skrefum í áttina að biBskýli strætisvagnanna við Miklatorg. Hún ætlar auðsjáanlega að fara aO opna skýliB. Ég varpa öndinni feginsamlega og hraða mér yfir Miklubrautina, fram hjá torginu, yfir Snorrabraut og áleiBis upp á SkólavörOuholt. Eh hve ég man það vel, þegar ég sá Hrein fyrst. Ég var nýkomin til bæjarins, og vinkona min haföi tekið mig með sér á dansleik í „BúBinni". „Þú skalt svo sannarlega fá aO kynnast líflnu i borginni," sagði hún. „Ég skal sýna Þér, hvernig unga fólkiö hérna lifir og hvernig þú átt einnig að lifa. ViO getum til dæmis fariö f „BúOina." — Og svo fórum viB í Búðina. ViO sátum tvær einar við borð, og Þegar f fyrsta dansinum var henni boðiö upp, og ég varö ein viö borBiÖ. Ég litaBist um í ráðaleysi, og þá, — þá varð mér litiO beint inn í grá augu, og það var svo greinileg spurn- ing i þessum augum, að ég hlýt ósjálfrátt aö hafa kinkað kolli. ViO dönsuöum saman allt kvöldið og mörg önn- ur kvöld. Hann var hugulsamur og nærgætinn. Hann var hrífandi. Og ég var hrifin. Hrifin, — það var rétta orOiO, — hrifin úr hversdagsleik- anum inn í nýjan, töfrandi heim grárra augna, sem horfðu á mig spyrjandi, biðjandi, stundum nærri þvi skipandi. „Varaðu þig á honum," sagBi vinkona mfn, „hann drekkur." „Drakk,“ leiðrétti ég. „Hann drekkur," sagði hún með sérstakri áherzlu á seinna atkvæðinu. „Ég hef séð hann sjálf, slangrandi niðri í bæ. Eða ætlarðu kannski að telja mér trú um, að hann snerti ekki vin, þegar þið eruð saman?" „Hann fær sér einn og einn snaps?“ varð ég að viðurkenna, en hann veit, að mér þykir það miður, og ég veit, að hann hættir því einnig.“ „Bull og vitleysa. Hann drakk eins og svampur, áður en hann kynntist þér, þessum blessaða sveitaengli, og ég skil ekki, hvernig hann getur setiö á sér. Trúðu mér, hann byrjar fljótlega að nýju. Þetta er tilvalið efni i drykkjurút.“ „Þú lýgur," segi ég, en röddin er farin að titra. „Þú ert bara afbrýöisöm." „A-ha. Mátt eiga hann fyrir mér, góða,“ segir vinkonan. En ég var ekki róleg. Adda vissi, að ég hafði megna óbeit á áfengi og blátt áfram ofnæmi fyrir fullum mönnum. Ég vissi, að Hreinn hafði drukk- ið. Hann hafði að visu stillt sig, þegar hann var með mér, því að ég hafði gefiö honum f skyn, að ég fyrirliti fulla menn. En siðan lét hann ekkert tækifæri ónotað til að segja mér frá dásemdum vinsins, hve Það væri unaðslegt að gleyma sér og létta af sér áhyggjunum í félagi við Bakkus. „Adda," sagði hann eitt kvöld, „ég er oröinn þreyttur á þessari sérvizku þinni. Af hverju get- urðu ekki verið eins og annað fólk? Fáðu þér nú eitt glas með mér, vina mín. Það er blátt áfram niðurlægjandi að verða að drekka einn.“ „Ég fæ mér hvorki eítt glas né tvö,“ sagði ég ákveðin. „Ég hef séð of mörg heimili eyðilögð vegna þess, aö heimilisfaðirinn hafði einu sinni fengið sér eitt glas eða tvö og síðan fylgdu fleiri á eftir, og ég ...“ „Uss, þetta hefurðu tekið úr ræðu eftir ein- hvern siðferðispostulann," tók hann hlæjandi fram i fyrir mér. „En,“ — og hann leit b»int í augu mér, — „okkar heimili hefur ekki enn þá verið formlega stofnað. Eitt glas í kvöld eyOi- leggur það varla." Ég fékk hjartslátt. Hann haföi aldrei talað um „okkar" heimili fyrr. „Vertu nú sanngjörn," hélt hann áfram. „Þú veizt ekkert, hvaö þú ert að tala um. Þú hefur aldrei verið undir áhrifum, — mætti segja mér, að þú hefðir aldrei smakkað vín. Ef þú værir skynsöm stúlka, mundirðu fá þér ærlega neðan í því eir.u sinni, og þá fyrst gætirðu dæmt um, hver hefur rétt fyrir sér. Ha, — hvað segirBu um þetta? Og ég skal lofa þér þvi, að ef þú verður þá sama sinnis og áður, þá skal ég stein- hætta að drekka, — steinhætta, heyrirðu þaö.“ Ég leit í kringum mig í salnum. Við hvert ein- asta borð var skálað .Þjónarnir voru önnum kafnir við að skenkja í glösin. Alls staBar var ys og þys, glaumur og gleði. Við næsta borB sátu f jórir ungl- ingar. önnur stúlkan var varla meira en sextán. „Ég held ég fái mér tvo núna, takk,“ sagði hún og deplaði augum framan í herrann sinn. Og vin- ið freyddi í skyggðu glasinu. Hreinn sigraði. „Eh þú verBur að lofa mér tvennu. Ég vil ekki vera hér, og Þú mátt ekki smakka neitt sjálfur." „Allt í lagi, ég lofa því. Getum við verið í þínu herbergi?" ,,Já,“ sagOi ég. Herbergið, sem ég hafði á leigu, var lítiB súö- arherbergi með blárósóttu veggfóðri. „Ég leigi þetta ódýrt,“ hafði húsráðandi sagt, er ég kom til að líta á herbergiö, — „en ég krefst algerrar reglusemi. Það er hljóBbært i húsinu, og svefnherbergi okkar er hér beint undir. Og ég verð að biðja yður að stilla útvarpið lágt, ef Þér hlustið fram eftir." Við komum okkur fyrir við litla boröið. Litli vegglampinn lýsti dauflega, og frá útvarpinu bár- ust lágir tónar um herbergiO. „Þú ert indæl, Adda,“ sagði Hreinn lágt og blandaði í glas handa mér gin og greip. „Ég meina, þú ert svo skynsöm. Trúðu mér. Á morgun hef- urðu öðlazt allt aðra skoðun á lífinu og glldi þess.“ Og ég Vyfti glasinu aO vörum mér, Það er hvasst uppi á SkólavörOuholti, og storm- uiinn er beint. i fangið. Það er enginn bill hjá staurnum frá Bæjarleiöum, og engin mannleg vera sést á ferli. Ég halla mér í storminn og reyni að bæla niöur óttann viB myrkrið og nóttina. Þei. HvaB er þetta? Eitthvert þrusk, eins og einhver dragíst eftir götunni. Nú staðnæmdist það og svo — aftur. — Ég lít upp. Hvít vofa birtist á veginum beint fram undan. Hún stað- næmist aftur og tekur svo stökk í áttina til min. Blóðið frýs í æOum mér, og ég get ekki hreyft legg né lið. Og svo, — stærðar örk af umbúðapappír flækist um fætur mína og sviptist svo áfram fyrir vindinum. Ég heyri skrjáfið, er hann berst niður götuna í smástökkum. — Bölv- aður bjáni get ég verið. Ég hlýt að vera orðin meira en lítiö hjartveik. Ég held áfram móti st.orminum, og brátt er 10 VIK AN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.