Vikan


Vikan - 04.08.1960, Side 21

Vikan - 04.08.1960, Side 21
fór að fitla við kögrið á dúknum, eins og annars hugar. Allt í einu kallaði hann upp: — Hvað er nú þetta? Undan borðdúknum dró hann fram tvo samanbrotna peningaseðla, braut þá sundur og sýndi félaga sínum. — E’kki svo afleitt, það verð ég að segja. Nú fyrst sneri hann sér að Phyllis: — Viljið þér nú segja okkur, hvaðan þessir hlutir eru komnir? Phyllis starði stórum augum. Hún hafði aldrei séð svo stóra peningaseðla fyrr, vissi ekki einu sinni að fimm hundruð dollara seðlar voru til. Hún stóð með opinn munn og stamaði svo: —■ Ég veit það ekki . . . ég hef aldrei séð þá fyrr . . . Ég . . . ég hef ekki hugmynd um . . . — Svona ,svona, kona góð, ekki að verða ótta- slegin. Við trúum orðum yðar. Þér hafið ekki fali ðpeningana hér, en hver hefur þú gert það? Kannski elsku, hjartans maðurinn yðar? Phyllis náfölnaði. Páll hafði sagt henni að hann ætti peninga í bankanum . . . Nei, nei . . . Allir aðrir. Ekki Páll. Aldrei! Hún var svo skelfingu lostin, að jafnvel lög- regluþjónarnir kenndu i brjósti um hana. Annar þeirra klappaði vingjarnlega á öxl hennar. — Ekki að láta sér verða svona um þetta! Það er enginn sem grunar yður. Bara rólegar! Hann hvíslaði að hinum: — Þetta er synd og skömm. Svona lítil og lagleg hnyðra! Hinn svaraði með því að yppta öxlum. — Það eru einmitt þær, sem falla fyrir hvaða þorpara sem lítur á þær. Phyllis rétti úr sér. Veikindakenndin var liðin hjá. Hún kreppti hnefana og hrópaði: — Nú segið þið mér hvað um er að vera. Ég á heimtingu á að vita það. Og þið skuluð ekki dirfast að gruna manninn minn, — að þið vitið það. Annar lögreglumannanna stakk seðlunum í veski sitt, og skrifaði eitthvað upp á blað hjá sér. Siðan mælti hann: — Ef þér viljið fara að mínum ráðum, ættuð þér að leggja yður stundar- korn. Þér fáið nógu snemma að kynnast mála- vöxtum. Phyllis greip ihandlegg honum: — Ég vil fá að vita það núna undir eins! Heyrið Þér það, núna! Núna! — Gott, sem yður sýnist! Hann ræskti sig. — Staðreyndin er sú, að maðurinn yðar er sem sé . . . í stuttu máli sagt, hann var staðinn að verki. Peningaskápurinn opinn og tómur ... og nætur- vörðurinn skotinn. Phyllis fálmaði fram fyrir sig, eins óg til Þess að grípa í eitthvað, svo reikaði hún til og féll áfram yfir stólbak. Lögreglumennirnir báru hana upp á legubekkinn og biðu, Þangað til hún rankaði við sér. Þá læddust Þeir út. PHYX/LXS gat ekki staðið á fótunum. Hvert sinn er hún reyndi Það, hringsnerist herbergið fyrir augum hennar. hún féll aftur yfir sig og vitundin hvarf henni. Það var ekki fvrr en farið var að dimma, sem hún vaknaði að fullu til hins hræði- lega veruleika. Hún var foreldralaus. Hún átti enga ættingja, hvorki fiær eða nær, sem hún gæti leitað til og spurt ráða. Hún vissi ekki einu sinni hvert Þeir höfðu farið með Pál Það hlutu að vera margar lögreglustöðvar um hina miklu borg. Það var þvi ekki um annað að gera fyrir hana en að ganga milli Þeirra, Þar til hún rækist á Þá réttu. Páll morðingi ... ! Það var mikið að Þeir sökuðu ekki hana sjálfa um að vera morðingi? Gatan, húsin, allt var gerbreytt. Hún þekkti það ekki aftur. Hún gekk beint af augum og náði að lokum til einnar hinna minni stöðva. Lög- regluþjónarnir voru hinir vinsamlegustu, simuðu fyrir hana til aðalstöðvanna og tilkynntu komu hennar. Þangað var löng leið og hún var þreytt, dauðþreytt. En hún kom sér ekki að þvi að fara inn í strætisvagn eða neðanjarðarbrautina. Bara ganga heldur, ganga, ganga, ganga ... Enn var hún yfirheyrð, og enn var það greini- legt að menn trúðu framburði hennar. Hér komst hún að því, að peningaskápurinn hefði verið skor- inn upp með acetylengasi, að innihald hans var horfið og að Páll hefði verið með seðlabunka innan undir vestinu, þegar hann fannst. — Sagðist Páll . . . hafa . . . hafa . . . drepið manninn? Maðurinn brosti vorkunnlátlega. — Glæpamenn eru ekki vanir að játa verk sín, meðan þeir geta samið einhverjar skröksögur. Nei, hann hefur ekki kannast við neitt ennþá. En það liður ekki á löngu. Áður en tuttugu og fjórar stundir eru liðnar, mun honum finnast það ráðlegast sjálfum, að segja sannleikann! — Sannleikann .. . Og Phyllig spurði: — Má ég fá að sjá Pál? — Auðvitaö getið þér fengið að sjá hann. Bn gætið að, hvað þér segið. Ummæli yðar kunna einnig að verða notuð gegn honum. Phyllis var nú vísað inn í gæsluvarðhaldið, og þar sá hún gegnum járngrindur. hvar Páll stóð milli tveggja fangavarða. Þetta var Páll, Páll hennar, og þó allt annar maður. Hann leit út eins og árabil væri liðið siðan hún veifaði til hans í kveðjuskyni síðast. Hann rétti hendurnar móti henni, en mælti ekki orð. Grindurnar voru milli þeirra, Augu hennar blinduðust af tárum, serri ekki svöluðu, köldum örvæntingartárum. Andlit Páls var grátt og guggið, líkt og visið. Annað auga hans blátt og bólgið. Hann laut áfram. Annað veifið komu kipþir í munninn, eins og hann vildi mæla, en varir hans luktust aftur án þess orð kæmi út yfir þær. —• Loksins tókst henni að stama: — Páll, ég veit ... ég veit, að þú hefur aldrei ... Höfuð hans hneig niður á bringuna, en hann Þagði. Allt í einu mundi hún eftir áríðandi atriði. Hún var hrædd við að minnast á það, en gat þó ekki annað. Hún hvíslaði: -— Páll, hvaðan eru peningarnir? Undir dúknum? Hann horfði forviða á hana. Hún tók orð sín upp aftur og bætti við: — Þessir tveir fimm hundruð dollara seðlar? Svar- aðu mér Páll, svaraðu mér, hvaðan eru þeir? Harin leit á hana eins og hann vissi ekki hvaðan á sig stæði veðrið: — Peningar . . . Fimm hundr- uð dollara seðlar ... Ég veit ekki um hvað þú ert að tala ... Hún spurði ekki neins framar. Hið eina sem hún þráði, var að láta hann vita, að í hennar aug- um væri hann sá sami, hinn einasti eini, ástvinur hennar, á hverju sem gengi. En hún fann ekki orðin. Grindurnar voru á milli þeirra. Þeir fylgdu henni út. Páll hafði ekki reynt að fá hana til að vera kyrra. Engin kvörtun hafði komið fram yfir varir hans. Ilún muldraði fyrir munni sér: — Ég veit ekki um hvað þú ert að tala ... Hún stóð úti á gtöunni að nýju. Aftur gekk hún bara beint af augum. Hún fór framhjá ein- hverri blaðasölu og varð litið á fyrirsögn með stóru letri: „Gluggahreinsari svrengir upp peningaskáp og myröir næturvörö. Aöeins einn bófanna varö grip- inn á staönum." Hún var svo skjálfhent, að hún gat ekki náð í peninginn sjálf, en varð að láta blaðsölumann- inn ná í hann fyrir sig úr pyngjunni. Hún þrýsti blaðinu fast að sér og fannst sem það brenndi sig, gegnum fötin. Hún drógst áfram af veikum burðum, fæturnir voru máttvana. Þegar heim kom, kveikti hún ljós og fór að lesa. Stafirnir dönsuðu fyrir augum hennar, en þó skildi hún meiningu orðanna. Þau stungu hana eins og hnífsoddar. Hún kinkaði kolli. Þetta stóð allt heima við það sem lögreglan hafði sagt henni: Gluggahreins- arinn hafði beðið þess, að allar skrifstofur yrðu mannlausar, þá hafði hann gefið hinum meðlimum bófaflokksins merki Til þess að réttlæta sjálfan sig hafði hann spunnið upp sögu um það, að hann hefði misst fótanna við vinnu sina, og hangið milli himins og jarðar. þangað til ókunnir menn hefðu heyrt köll hans og dregið hann upp og inn. Til endurgjalds fyrir björgunina höfðu þessir ókunnu menn þvingað hann til að heita þeim þagmælsku. Þetta var allt og sumt, sem enn hafði verið hægt að ná út úr honum. Vitaskuld datt engum í hug að leggja trúnað á þessa skýringu, enda þótt Það kynni að reynast rétt, að hann hefði dottið út. Það voru skrámur á skrokk hans, er gátu bent til þessa, en hann gat hafa hrokkið út við það að verða hverft við. þegar hinir bófarnir úr hópnum komu inn. Ef til vill höfðu líka orðið áflog um þýfið. Allt myndi þetta koma i ljós við yfirheyrslu af þriðju gráðu, sem þegar var byrjuð. Það var að vísu ekki heldur upplýst að fullu, hvort hann hefði einmitt sjálfur veitt næturverð- inum banaskotið, en allt benti til þeirrar álykt- unar. Nokkuð af þýfinu hafði fundist falið á hon- um sjálfum. Eftir venju höfðu bófarnir unnið verk sitt með hanzka á höndum, og var því ekki um nein fingraför að ræða, er sannað gætu þátt- töku glæpamanns þessa. Blaðið birti myndir af Páli, eins og Phyllis hafði séð hann. niðurlútan, með annað auga lokað og bólgið. Samanbitnar varir. Phyllis tók utan um höfuð sér. Henni fannst það ætla að springa. Og hún varð að geta hugsað. Hún varð að hugsa bæði fyrir hann sjálfa sig. Hún varð að finna einhverja skýringu, sem frí- kenndi hann. Hvernig stóð á peningunum sem þeir höfðu fundið á honum? Og hvernig stóð á stóru seðlunum tveimur, undir borðdúknum? Nú var um að gera að byrja á byrjuninni. Pen- ingaseðlarnir undir dúknum? Hún hélt höfðinu undir vatnskrananum og lét hálfvolgt vatnið renna þangað til það var orðið ískalt. Þetta dugði. Það skýrði hugsanirnar. Hvers vegna hafði hún ekki séð þessa peninga fyrr? Hún hafði lofað Páli að gera ekki hreint á laugardaginn, eins og vant var, og Páll hafði ekki gert nema það allra nauðsynlegasta. Hann hafði áreiðanlega ekki lyft borðdúknum upp í síðustu viku. Ekki siðan þau höfðu farið til lækn- isíns. Og það var .. . það var daginn eftir að menn- irnír komu til að taka festina. . . . Já. iá! Svona lá í því. Nú mundi hún það. Gráklæddi maður- inn hafði gengið um gólf og fitlað við margt. Nú minntist hún þess svo greinilega, hvernig hann hafði staðið og vafið kögrinu um fingur sér ... Hann hafði lagt þé ''arna. Hann hafði skam' ~st sín fyrir aðdróttunina. Skammast sin, þegr~ Páll vildi ekki taka við fundarlaunum. Hann var auðugur meður. Já, hann hafði auðvitað lagt peningana ''arna. Svolitil fróun. Nú var hún komin betta á leið. Næst reið á að finna manninn. Þegar hún hefði haft. upp á honum. myndi hún fá hann til að fara sjálfan og segia lögreglunni söguna um Pál. Þá myndu þeir skilja að svo stoltur maður sem Páll, myndi aldrei. aidrei að eilífu geta eignað sér stol’ð fé, hvað þá heldur tekið líf annars manns. Hún neyddi ofan í sig einum bolla af tei og tók nú eftir því að hún var glorhungruð. Nú gat hún farið að borða aftur. Hún varð að hugsa eitthvað um sjálfa sig, svo að hún gæfist ekki upp. Eigandi perlufestarinnar varð að finnast, enda þótt hún vissi hvorki nafn hans né heimili. Hún ætlaði að segja hinum gráklædda heiðurs- manni, hve duglegur Páll væri. Verið gat að hon- um dytti Þá í hug að veita honum stöðu við fyrir- tæki það hið mikla, sem hann hlaut að eiga. Nú mátti ekki eyða timanum til ónýtis. Þó hún ætti það á hættu að verða að leita um borgina þvera og endilanga, gerði ekkert, bara að hún fyndi hann að lokum. Skyldi svo skartklæddur maður ekki hafa eitt- hvað með kauphöllina að gera. Það var víst iðu- lega svo. Þar bröskuðu menn og græddu mikið fé á skömum tíma. Fyrst af öllu ætlaði hún að fara niður í kauphöll, bíða þar fyrir utan og sjá til, hvort hann kæmi ekki þangað. Þá komst hún að því, að kauphallirnar voru tvær, og í tvo daga samfleytt gekk Phyllis milli þeirra. E’n gráklæddi maðurinn kom aldrei út, og rann þó óslitinn straumur manna þar sífellt út og inn, og allir liöfðu svo ósknplega mikið að gera. Það gat verið að hann ætti alls ekki heima í New York. Það voru svo margir sem bjuggu utan við borgina, á stóreflis búgörðum, höfðu gróður- hús og stofuþernur og drukku vin með öllum mál- tiðum. Nú gekx frúin auðvitað með perlufestina og vissi víst ekki að hún hafði legið í svaðinu. En þótt hann kynni að búa i stóreflis skraut- hýsi þarna fyrir utan, hlaut hann þó að verða að fara í borgina öðru hvoru, til Þess að líta eftir fyrirtæki sínu, hvers konar fyrirtæki sem það nú var. Phyllis leit á alla hávaxna menn í gráum fötum. Hann var ekki neinn af þemi. Framh. í næsta blaði. VIKAN 21

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.