Vikan


Vikan - 04.08.1960, Side 28

Vikan - 04.08.1960, Side 28
• • 011 dreymir okknr Framhald af bls. 5. fólkinu, sem bentu til, að það væri að dreyma. í 191 sinn, sem fólkið var vakið, var það að dreyma í 152 skipti, en það er um 80%. Ef það var vakið 160 sinnum, þegar augun lireyfðust ekki bratt, var það ekki að dreyma í 149 skipti — eða í 15 skipti af 16. Þetta sannaði kenninguna. Sú uppgötvun, að augun séu lyk- illinn að draumum okkar, hefur leitt til fjölda annarra stórkost- legra uppgötvana. í fyrsta lagi kom í Ijós, að augu dreymandans breyfðust í samræmi við það, sem Jiann horfði á í draumnum. Einn maður var vakinn, eftir að hann hafði sofið i eina mínútu, og hreyfðust augu hans upp og niður. Hann sagði, að sig hefði dreymt, að hann stæði við rætur kletts eins og væri að stjórna eins konar lyftu. Fólk var að klifra upp klett- inn, og hann var að horfa upp á það og niður á vélina, sem hann var að stjórna. Annar sagði, eftir að sézt höfðu hjá honum hraðar augnahreyfingar upp og niður i álíka langan tíma, að sig hefði dreymt, að hann væri að tína bolta upp af gólfinu og væri að kasta þeim í körfu fyrir ofan sig. í öðru dæmi, þegar láréttar hreyfingar sá- ust lijá manni, sagðist liann hafa dreymt, að hann væri að horfa á tennisleik, þar sem tveir menn voru að kasta tómötum hvor í annan. Aðrar tilraunir veittu i fyrsta sinn nákvæmar upplýsingar um lengd drauma. Þær virtust sanna, að við þjöppuðum að vísu saman og felldum burt tímann í draumr um okkar, eins og rithöfundar gera í sögum og leikritum. En samanburður á lengd eins draums og því, hve lengi augnahreyfingarn- ar stóðu yfir, sannfærði Kleitman og Dement um, að draumar taka álíka langan tíma og atburðirnir mundu gera í reynd. Dement og hjálparmaður hans leyfðu einu sinni manni að sofa óáreittum í 10 mínútur, meðan augu hans hreyfðust hratt, létu síð- an vatn drjúpa á bak hans úr lítilli handsprautu. Þeir létu ha. n dreyma í 30 sekúndur lengur og vöktu hann svo og spurðu: „Hvað var þig að dreyma?“ Maðurinn lýsti leikriti, sem hann hafði dreymt, að hann væri að leika í. „Allt í einu,“ sagði hann, „datt aðalleikkonan. Vatn lak ofan á hana. Ég hljóp til hennar og fann, livernig vatnið rann niður hálsinn Sáí oq KIVEA/ NIVEA- sólhlíf húííar y*5ar Óvernduð húð verður fljótlega hrjúf og skorpin I sólskininu, þvl sólargeislarnir brenna ekki einungis, heldur ofþurrka þeir líka húðina. NIVEA verndar sem sólgleraugu. Við notkun NIVEA- krems í sólskini verður húð yðar mjúk og slétt, þvl NIVEA-kremið kemur I veg fyrir ofþurrkun hennar. NIVEA-ultra-olfa verndar gegn brennandi sólargeislum. Vegna eiginleika sinna, sem hindro sólbruna, gerir hún lengri sólbóð möguleg og orsakar hraða lita- skiptingu. á mér og bakið. Þakið lak, en af hverju hafði hún dottið? Ég gerði ráð fyrir, að gips hefði dottið nið- ur úr loftinu á liana, og leit upp og sá, að það var gat á loftinu. Eg dró hana til hliðar á leiksvið- inu og gaf merki um að draga niður tjaldið. Svo vaknaði ég.“ Þeir báðu manninn um að leika athafnir sínar í draumnum frá því augnabliki, að hann fann vatnið drjúpa á sig. Þessi látbragðsleikur hans tók tæplega 30 sekúndur, sein sagt sama tíma og hann hafði fengið að dreyma áfram, eftir vatnssprautunina. En jiar sem það virðist svo, að okluir dreymi nokkra drau'ma á hverri nóttu, væri fróðlegt að vita, hvort nokkurt samhengi er á milli þeirra. „Draumar," segir Dement, „virðast hafa einhver innbyrðis tengsl . . . Framhald þeirra er ekki alltaf greinilegt, en einhver þráð- ur heldur þeim saman.“ Fyrsti draumur manns nokk- urs var þannig, að hann þóttist ganga niður göng full af fólki. Hann varð að gæta þess að detta ekki, því að ísmolar lágu á víð og dreif um gólfið. í næsta draumi sá liann mann, sem sat og var að veiða. „Hvað ertu að veiða?“ spurði hann. „Melónur," sagði veiðimað- urinn. En þegar hann fékk eitt- hvað á linuna og dró það upp úr vatninu, kom í ljós, að það var stór ísklumpur. í þriðja draumn- um þóttist maðurinn vera úti. Hann leit upp og sá stórar snjóflygsur koma úr loftinu. Næsta morgun, þegar hann hlustaði á það, sem hann hafði talað inn á segulband- ið, furðaði hann sig á því, hvernig is og snjór gengu eins og rauður þráður i gegnum draumana, — en hann gat ekki skýrt það. Hvítur shjórinn gaf þessari draumaröð serkennilegan litblæ. Flestir draumar eru daufir í lit- um, eins og allt hendi þar í grárri birfu dimmra og drungalegra daga. Einstaka sinnum koma fyrir draumar, þar sem allt virðist hafa ýmis litbrigði af sama litnum, ■— rauðu, grænu eða brúnu, eins og horft væri í gegnum litað gler. En draumar með mörgum litum eru mjög sjaldgæfir. „Þegar ég heyri um stórkost- lega drauma í öllum Iitum,“ segir Dement, „verð ég að efast um sann- leiksgildi þeirra. Fólki þykir gam- an að skreyta dálítið drauma sina og gera þá meira spennandi.“ Reqlan nm hæðir og lægðir. Umdeildasta og óljósasta atriði þessa máls var spurningin um, hvenær okkur dreymir. Dreymir okkur helzt, þegar við erum að sofna, —. eða á miðri nóttu — eða þegar við fálmum eftir vekjara- klukkunni? Kleitman og Dement réðust á þetta vandamál með rannsóknum á meira ne 30 mönnum. Fólkið svaf ótruflað í eina nótt eða fleiri, og vísindamennirnir mældu hreyf- ingar líkamans mcð tækjum, sem komið var fyrir í dýnunni. Heila- bylgjurnar og hreyfingar augn- anna voru mældar eins og venju- lega. Allar tilraunirnar áttu svo mikið sameiginlegt, að greinilegt var, að draumarnir koma öðru hverju á nóttu, en aðeins á vissu stigi svefns- ins. Hvenær það er, getur verið breytilegt eftir þvi, hver í hlut á, en hringrásin er hin sama, og regl- an um hæðir og lægðir i misdjúp- um svefni og drauma eftir því gild- ir hjá öllum. Þetta fer þannig fram: Við venjulegan, heilbrigðan næt- ursvefn þokuinst við smátt og smátt að barmi svefnsins. Höfgi sígur á okkur öðru hverju og ýmsum myndum, — leiftrandi ljósum eða andlitum eða einhverju öðru bregður fyrir eins og speglun á titrandi vatnsfleti og liverfa aft- ur. Enn koma engir reglulegir draumar. Við erum ekki sofnuð cnn. En allt í einu steypumst við fram af brúninni og niður i dýpsta svefn. Þar erum við ekki í tvær klukkustundir, eins og hingað til hefur verið haldið, heldur í um jiað bil 30 mínútur. Þá byrjum við að færast upp á við í léttasta svefninn og náum honum, þegar við höfum sofið i alls 70 mínútur. Þetta tímabil létts svefns er sá tími, sem okkur dreymir á. Það er aðeins á þessu stigi svefnsins, sem okkur dreymir, en sjaldan eða aldrei annars. Á þessu stigi svefnsins erum við í um 9 mínútur, og þar dreymir okkur fyrsta draum næturinnar. Svo föllum við aftur i djúpan svefn, en þó ekki eins djúpan og ,áður. Þegar við höfum sofið í hálfa þriðju stund, kemur aftur 19 mínútna draumatímabil. Síðan dreymir okkur i þriðja skipti aft- ur í 24 mínútur. Næst kemur draumatimabil aftur i byrjun sjö- unda timans, og þá dreymir okk- ur í 28 mínútur. Ef við sofum all- an þennan tíma, getum við búizt við liálftíma meðaldjúpum svefni i viðbót. Þá fljótum við enn upp í léttan svefn og dreymir, þar til við vöknum. Á nóttunni eiga draumarnir at- hygli okkar óskipta, eins og þeir væru spennandi leikrit eða kvik- mynd. Þegar við nálgumst drauma- tímabilið, setjum við okkur i nýj- ar og glæsilegri stellingar í rúminu. Við færum til fætur og handleggi og finnum okkur nýjan stað á koddanum fyrir höfuðið. Vísinda- mennirnir likja okkur við fólk i leikhúsi, sem iðar eirðarlaust í sætunum, áður en tjaldið er dregið upp. Þegar draumurinn hefst, hætt- um við að hreyfa okkur. Jafnlengi og draumurinn stendur yfir, liggj- um við grafkyrr. Aðeins augu okkar hroyfast, þvi að þau fylgja öllu, sem gerist i draumnum. Þegar draumurinn endar, hætta augu okkar að heyfast og við byrjum aft- ur að snúa okkur og bylta. Leikritinu er lokið, og áhorfendur eru aftur áhugalausir. Hvernig má það vera, að við getum legið kyrr, meðan okkur dreymir, að við séum að hlaupa, berjast og klifra? Eina skýringin, sem Kleitman og Dement geta gef- ið, er sú, að sá hluti heilans, sem stjórnar lireyfingunum, sé ekki virkur, þegar okkur dreymir. Það er ekki aðeins það, að draumarnir hafi engin áhrif á líkama okkar, heldur er eins og þeir hafi oft engin áhrif á huga okkar heldur. Milljónir manna vakna á hverjum morgni og muna ekki vitund eftir því, að þá hafi dreymt um nóttina. Okkpr virðist það órúlegt, að við höfum eytt klukkutíma eða meira í alls konar hugaróra um dýpstu 28 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.