Vikan - 20.10.1960, Síða 22
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumspakur maður ræður drauma íyrir lesendur Vikunnar
Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning kostar ekki
neitt, nema menn vilji fá skriflegt svar, beint frá draumráðningamanninum. Þá kostar ráðn-
ingin 50 krónur og bréfið verður að láta í ábyrgð.
Hr. draumráðandi.
Fyrir nokkru dreymdi mig draum, sem mér
leikur forvitni á að vita hvort hefur nokkra
þýðingu fyrir framtíð mína. Og draumurinn er
svona: Eg þykist vera á vinnustað mínuin og er
með kunningja mínum, sem vinnur á sama stað.
Og finnst mér við vera með sína áfengisflösk-
una hvor og erum að drekka úr þeim og tæmum
þær á svipstundu. Verður félagi minn mjög
drukkinn en ég finn ekki nokkra breytingu á
mér. En einhverja hluta vegna finnst mér mjög
leiðinlegt hve hann er illa á sig kominn og
kenni í brjósti um hann og vil reyna að hjálpa
honum og er mjög kviðinn hans vegna og þá
vaknaði ég. Mér þykir draumurinn einkcnniieg-
ur þvi ég smakka ekki vín og það skuli standa
í sambandi við Vinnustaðinn.
Með fyrirfram þökk.
Baddi.
Svar til Badda.
Draumur þessi er talinn merkja að þú
hljótir hinn mesta frama af starfi þínu. Þetta
mun stafa af því að áfengi lyftir oft undir
geð manna og þeir verða ákveðnari og fram-
sækn.ir svo að túlkun draumsins verður
þannig.
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi nýlega, að ég væri stödd á sam-
komustað hér í hæ með vinkonu minni. Þar
hitti ég margar stelpur, sem við þekktum. Að
lokum varð ég ein eftir í snyrtiherberginu,
fannst mér ég vera að bíða eftir einhverjum.
Kemur þá strákur þar og fer að skvetta á mig
vatni með bursta. Ég þekki hann ekkert og
bað hann að hætta. Hann heldur áfram og að
lokum ræðst hann á mig og slær og ber frá
sér eins og óður væri. Ég kallaði á hjálp, en
enginn virtist heyra til mín, þá sé ég vin stráks-
ins, sem ég er með og kalla á hann. En hann
virtist vera svo fjarrænn og undarlegur og
svaraði mér ekki. Að lokum kalla ég nafn
stráksins, sem ég er með, en við urðum ósátt
um daginn. Þegar ég hef stunið nafni hans upp
líður yfir mig. En þó heyri ég að hann kemur
og árásarmaðurinn ætlar að ráðast á hann. Þeir
talast eitthvað við. Síðan segir hann vini sín-
um hvers vegna við urðum ósátt og fannst mér
hann koma til mín.
Með fyrirfram þökk. Eyrárrós.
Svar til Eyrárrósar.
Að dreyma sig á dansleik mundi í þessu til-
felli merkja ástarævintýri að fá á sig vatns-
skvettur merkir smá veikindi, og að lenda
í slagsmálum og fara halloka mundi tákna
vanvirðingu. Þar eð vinur þinn kemur í spil-
ið og skakkar leikinn þá mun hann bjarga
vanvirðu þinni við. Með öðrum orðum þá
merkir draumurinn áframhaldandi ástaræv-
intýri þitt, sem þó mun verða truflað af smá-
vegis veikindum og vanvirðu vegna vanhugs-
aðra athafna, sem þó munu fara vel á end-
anum fyrir tilstuðlan vinar þíns.
HvaÖ segja stjörnurnar um hæfileika yöar,
möguleika og framtíö? ViljiÖ f>ér fá svar viö
þessu þá sendiö uyplýsingar um nafn, heimilis-
fang og ár, fæöingarstaö og hvenær sólarhrings-
ins þér fœddust ásamt greiöslu í umslagi merkt
póslhólf 2000 Kóvavogi og svariö mun berast yö-
ur meö pósti.
Lauslegt yfirlit (sólkort) ........ kr. 50.00
Lauslegt yfirlit meö hnattaafstööum .. —- 100.00
Spádómar fyrir eitt ár kostar...... — 200.00
Nákvæmt yfirlit meö hnattaafstööum — 500.00
AÖ gefnu tilefni tökum viö fram aö fæöingar-
stund 'má helzt ekki skakka meira en 15 mínútum.
Þór Báldurs.
Hér ætlum við að kynna fyrir
ykkur stuttvaxinn, en hraustan karl-
mann, Bubba að nafni. Hann mun
heimsækja ykkur i næstu blöðum,
og við vonum, að þið hafið gam-
an af.
BARNAGAMAN
Bubbi er tápmik-
ill drengur. Hann
leikur sér úti hven-
ær sem hann getur.
Þegar hann er heima, þá leikur
hann sér oftast við gullin sín.
Hann býr til hús úr kubbun-
um sínum eða hann fer í ferða-
lag með bílinn sinn á gólfinu.
Þegar veðrið er gott fer
Bubbi í boltaleik með strák-
unum. Það finnst honum
gaman.
‘ amt er fótboltaleikurinn skemmti-
Þ:gastur. Bubba finnst mest gaman
a5 skora mark eða verja markið.
Hann tekur h'ka inn lýsi á hverjum
degi, því að hann veit að þá verður
hann stór og sterlcur.
Hann má ekki leika sér á Dag einn hitti Bubbi Sigga.
götunni. Það getur verið hættu- Þeim datt í hug að fara
legt. Þar er svo mikil bílaum- niður að sjónum.
ferð.
22 VIKAN