Vikan - 29.12.1960, Side 2
Lokunartimi verzlana
Kæri póstur.
Viltu skýra það fyrir mér, hvers vegna
hætt er a'ð hafa búðir opnar til fjögur. Mér
finnst þetta ekki ná nokkurri átt. Hvenær á
fólk, sem vinnur allan daginn að verzla?
Það verður að fara að gefa sérstök verzlunar-
frí ef þessu heldur áfram og livergi nokkurs
staðar í heiminum mundi húðarfólki liðast
að vera með svona óliðleglieit. Gallinn er
hara sá, að íslendingar halda frá fornri tíð
að kaupmaðurinn sé iieilög vera, sem ekki
má segja styggðaryrði við. En þeir mega hafa
það hugfast, að kaupmaðurinn er til að þókn-
ast þeim og þeir snúa við honum bakinu, ef
þeim hýður svo.
Ein í tímaþröng.
Mér er Ijúft að svara þessu litillet/a. Það
er þá fyrst til að taka, að 'búðir eru opnar
lengur en til fjögur alla daga aðra en laugar-
daga, og meira að segja til sjö á föstu-
dögum Ég veit ekki, hvort búðarfólk er
svo sérstaklega óliðlegt, en öllum er okkur
þann vcg farið að við viljum gjarna hafa
fri yfir helgina, til þess að vera heima hjá
okkur eða fara út og skemmta okkur. Búð-
arfólk er engin iindantekning þar frá. Við
verðum að hafa það liugfast, að eftir að
búðum er lokað, á afgreiðslufólkið æði oft
eftir að gera eitt og annað, já, stundum
nokkurra klukkutíma verk, áður en það get-
ur farið heim. Kjötverzlunarmaður, t. d.,
sem lokar kl. 6, er sjaldnast kominn heim
fyrr en kl. 8.
Áður en sá siður var tekinn upp í
haust, að lmfa búðir ekki opnar nema til
eilt á laugardögum, höfðu afgreiðslumenn
boðið verzlnnareigendum að koma lil móts
við þá með þvv að vinna lil 10 eða jafn-
vel lengur einhvert eða einhver lcvöld vik-
unnar i stað þess tíma, sem fellur úr á
laugardögum, en samningar náðust ekki
um það.
Ég er því liins vegar sammála, að þetta
er heldur slæmt ástand eins og það er, og
full ástæða til að bæta. úr þvi á einhvern
hátt, og það sem fyrst.
Veðmál.
Kæra Vika.
Viltu ieysa úr veðmáli lijá okkur tveimur
vinkonum. Okkur kemur ekki saman um,
hvernig nafnið á ilmvatninu 4711 er til komið.
Hún segir, að sá sem byrjaði að framleiða
ilmvatnið, hafi verið nr. 4711 í stríðinu, en
ég segi að nafnið sé eldra. Hvor hefur rétt
fyrir sér?
„4711“
Þú munt hafa rétt fyrir þér í þessu efni.
Þegar Napoleon gamli kom lil Kölnar,
áttaði hann sig ekkert á þvi hvað var hvar
í bœnum, svo að hann skipti honum í reiti
og númeraði öll húsin í hlaupandi töluröð.
í liúsi nr Míí bjó fjölskylda, sem fram-
leiddi Kölnarvatn, og meira þurfti ekki til,
húsnúmerið yfirfærðist á framleiðslu þeirra.
2 VIKAN