Vikan


Vikan - 29.12.1960, Side 12

Vikan - 29.12.1960, Side 12
K Ú B A . „Frelsishetjan“ Fídel Castró, ein- ræðisherra á Kúbu, reyndist vera harðstjóri í verra lagi. Á þessu ári hefur hann látið taka þúsundir manna af lífi fyrir litlar eða engar sakir. Hann lagði hald á svo til all- ar eigur Bandaríkjamanna í ríkinu, og nýlega lét hann svo um mælt í ræðu til sinna manna, að Kúbverj- ar mundu lækka versta rostann í Bandaríkjamönnum. Sovét styður við bakið á honum. KÓREA. > í Kóreu hafði Syngman Rhee komið á fót einræði sínu og stjórn- aði landinu harðri hendi. Hinn 20. apríl 1960 hófst blóðug uppreisn í Seoul undir stjórn stúdenta, sem þráðu frelsið, og þrátt fyrir harð- vítuga tilraun tókst lögreglunni ekki að bæla hana niður. Lýðræðið sigraði, en að sigrinum unnum lágu lík barna og kvenna um allar götur. Þau voru gjaldið, sem frelsið var goldið með. Myndin sýnir nokkrar mæður, sem eftir lifðu, gráta fallna syni sína. \ú árið er liðið TYRKLAND. Undir felldu yfirborði hélt Menderes Tyrkjum í heljargreip ófrelsis og ótta. Stúdentar voru teknir höndum og drepnir, svo að lítið bar á. Til þess að hylja yfir glæpina voru lík þeirra brytjuð í stykki og möluð í kjöt- kvörnum. í maí gerðu stúdent- arnir, sem eftir lifðu, uppreisn, og þótt Menderes léti setja járn- grindur fyrir dyr háskólans, tókst þeim að steypa honum af stóli, og herstjórn tók völdin í sínar hendur. Síðan er allt hljótt. JAPAN. > I lok maí urðu hörð stjórn málaátök í Japan, sem leiddu til þess, að ofstækisfullir verka- menn og stúdentar stofnuðu til óeirða og útifunda til þess að mótmæla sambandi Japana við Bandaríkjamenn. Hagerty, full- trúi Eisenhowers, sem var á ferð í Japan um þetta leyti til að undirbúa komu Eisenhowers þangað, var hætt kominn, og forsetinn varð að hætta við heim- sókn sína, þar sem japanska lög- reglan treysti sér ekki til að ábyrgjast öryggi hans. Myndin sýnir stúdenta og verkamenn gera aðför að þinghúsinu í Tókíó. A L S í R . > Hatur og tilgangslaus morð einkenna borgarastyrjöldina í Alsír, sem geisað hefur allt ár- ið. Pyndingarnar og hin illa meðferð í frönskum fangelsum er goldin af hálfu innlendra manna með ógeðslegum hrotta- skap. Nasser blæs að glóðunum til að halda Alsírbúum hæfilega heitum móti Frökkum. Á mynd- inni er liðsforingi úr liði upp- reisnarmanna að drepa bónda- grey í Alsír fyrir þá sök eina, að hann í sakleysi sínu sagði nokkrum frönskum hermönnum til vegar — og vísaði þeim rétta leið. Eftir 70 ára veldistímabil í Kongó gáfu Belgar loks í- búunum frelsi á árinu 1960. „Frelsið“ reyndist hins vegar verða til þess, að allt fór í uppnám í ríkinu, meðan reynslu- lausir leiðtogar eins og Lúmúmba og Tsjombe börðust um völdin. Það varð til þess, að allt fór í kaldakol í ríkinu, uppreisnir og óeirðir hófust og enginn var óhultur um > líf sitt. I febrúar og marz sauð upp úr í Suður-Afríku, og hinir <] undirokuðu svertingjar gerðu uppreisn gegn ráðríki hvítra manna. Þrátt fyrir það að allur heimurinn hrópaði á stjórn Suður-Afríku og bað hana sýna mildi, var uppreisninni drekkt í blóði svertingja af vopnaðri lögreglu, her, skrið- drekum og eldspúandi flugvélum. En alls staðar, — í Suður- Afríku, Rhódesíu, Súdan, Senegal, — ólgar undir niðri, og ógerlegt er að segja, hvenar falinn eldurinn gýs upp og verður að ofsalegu báli. Suður-Afríka. KONGÓ. 12 VIXAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.