Vikan


Vikan - 29.12.1960, Qupperneq 13

Vikan - 29.12.1960, Qupperneq 13
I heimi kvikmyndanna eru jafnan ærin tíðindi á ári hverju og eitthvað mun til tínast fyrir árið í ár. Gamlar hetjur af kvikmyndatjaldinu hafa lagt upp laupana fyrir aldur fram, svo sem Tyrone Power, sem deyði á Spáni á öndverðu árinu og síðar sjálfur kóngurinn í Hollywood, Clark Gable. Hann var aðeins 59 ára og átti barn f vonum í fyrsta sinn á ævinni. Hann hefur um langt árabil verið hjartaknúsari númer eitt, svo þar hefur eng- inn niegnað að veita honum samkeppni. f síðustu mynduni sín.um lék hann miðaldra elskhuga, en þótti ekki takast jafnvel og fyrr. <] Þeir hittust á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna í New York, allir meiriháttar leiðtogar, en þó standa þeir í skugga hinna stærstu. Frá vinstri: Nehru, Nkrumah, Nasser, Sukarno og Tito. Bandaríkjamenn völdu sér nýjan forseta að undangengnum löngum og kostnaðarsömum kosningaáróðri og næstum ofurmannlegu álagi á frambjóðendurna. Kosning Kenne- dys hefur mælzt vel fyrir um hinn frjálsa heim; menn búast við því að ungur maður hleypi fersku blóði í samskipti þjóðanna, en aðrir eru hræddir við reynsluskort hans í al- þjóðapólitík. Sænskt blað sagði ný- lega: Eiginlega ætti allur hinn frjálsi heimur að hafa kosningarétt í bandarísku forsetakosningunum. Það getur verið spursmál um líf eða dauða fyrir okkur öll — og ekki að- eins Bandaríkjamenn — hvaða mað- ur velst í þetta embætti. Á þessu ári giftist Margrét Breta- prinsessa loksins, en það var ekki öllum Bretum til óblandinnar á- nægju. Hinn hamingjusami var sem sé aðeins venjulegur maður, að visu góður ljósmyndari, en ekk- ert meir. Hann heitir sem kunnugt er, Anthony Armstrong-Jones og virðist hafa gaman af þvi að koma Framhald á hls. 34. V K f N A . í þessu fjölmennasta og þéttbýlasta landi jarð- arkúlunnar hefur sitthvað gerzt á árinu, og er það að vonum. Ef til vill hefur almenningur þó einna helzt tekið eftir því, að kommúnistaforinginn Mao Tse Tung hefur borið sig til að standa uppi í hár- inu á hinum vísu feðrum í Moskvu, og sums staðar hefur komið fram nokkur uggur um það, að Kín- verjar hygðust ná heimsyfirráðum til handa hin- um gula kynstofni. Eyjarnar úti fyrir ströndum Kína hafa einnig verið mjög til umræðu, ekki hvað sízt í sambandi við forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum, þegar forsetaefnunum varð mjög tíð- rætt um varnir þeirra. Á árinu fylgdist allur heimurinn með ástamálum Sharsins af Persíu. Hann fann, sem kunnugt er, nýja konu vestur í París og gekk snarlega að eiga hana. Nú hefur hún alið drottnandanum son við mikinn fögnuð og sá verður keis- ari í Persíu einhvern tíma, ef ekki brýzt út blóðug upp- reisn í landinu út af misskiptingu auðs og þá er fjölskylda keisarans í mikilli hættu. Fyrrverandi keisaradrottningin, Soraya, ferðast á milli lúxushótela og skemmtistaða í Evr- ópu, en gengur illa að ná sér í nýjan eiginmann. Krússéf var samur við sig og beitti kjafti og klóm í samskiptum við aðrar þjóðir á mann- fundum. Hann leikur sér að heimsfriðnum eins og skessurnar að fjöreggjunum í gamla daga og bakhjallur hans er vopnastyrkur og vís- indaleg afrek þeirra í Sovét. Krússéf er leikar- inn mcðal stjórnmálamanna; hann kreppir hnef- ana, öskrar og roðnar í andliti, lemur í borð með skónum sínum og grípur fram í fyrir ræðu- mönnum. Af öllum stjórnmálamönnum ársins 1960 hefur Krússéf verið mest umtalaður, hann fer með aðalhlutverkið í heimspólitíkinni. yucAN 13

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.