Vikan - 29.12.1960, Qupperneq 19
óskamyndin
en að koma þér vel við kennarana?
T. d. stráka. Þú ert með einbaug, ertu
trúlofuð?
— Á ég að svara þessu öllu? Þá
er það svona: Jú, auðvitað. Kannske.
Ekki aldeilis.
■—■ Hvað áttu við, ekki aldeilis?
Ertu á móti trúlofunum?
— Ekki almennt, en það er ekki
þar með sagt, að ég geti ekki verið
á móti því fyrir sjálfa mig.
— Jæja, en hvers vegna ertu þá
með einbaug? Megum við sjá hann?
—• Gjörið svo vel. Amma okkar gaf
okkur systrunum svona hringi þegar
við fermdumst. Það eru þrír þriggja-
blaða smárar á þeim öllum.
— Táknrænt, ha?
— Einmitt.
— Hvernig er það. Er ekki amast
við því að þið mætið í síðbuxum í
skólann?
— Nei. enda er varla hægt að am-
ast. við því. Það er ekki Þægilegt að
arka í pilsum í öllum veðrum.
— Heyr, heyr. E'n áhugamálin,
hvernig er með Þau, ekki megum við
gleyma þeim?
— Það er nú svo margt sem hægt
er að kalla áhugamál. Ég hef t. d.
gaman af klassískri tónlist, fer gjarn-
an í leikhús, það er hitt og Þetta og
eitt. og annað.
— Jæja, við skulum sleppa þessu
fyrst þú safnar ekki frímerkjum.
— En framhaldsnámið?
— Það er óráðið, eins og gefur að
skilja. Þar kemur sitthvað til greina.
Þið eigið við háskólanám, er það
ekki?
— Jú, eiginlega.
— Annars fer ég í máladeild, ef
ég næ prófi.
— Má bjóða þér sigarettu?
— Nei takk, ég reyki ekki.
— Og smakkar ekki áfengi?
— Ekki heldur.
— Það er gleðilegt að heyra, þá
væri meira að segja stórsparnaður
að bjóða þér út, ef við hefðum efni
á því.
Arndís er farin að ókyrrast, lík-
legast leiðist henni þófið. Enda spyr
hún allt í .einu hvort ekki sé komið
nóg. Við litum á punktana og sjáum
að svo er, þökkum, kveðjum og höld-
um heim til ritstjóra vors og herra.
Ellert Schram.
1 þetta skipti birtum við mynd af
Ellerti Schram. Hann hefur lengi
verið á lista hjá okkur, sérstaklega
hafa ungir drengir út um land og
stúlkur líka, beðið um mynd af hon-
um. Ellert er með þeim fremstu í
KR-liðinu og ekki ber að efa að hann
eigi eftir nokkur frægðarspor þar.
Hann er sem stendur í Háskólanum,
en stundar samt knattspyrnu af
kappi. Við fengum að taka myndina
heima hjá honum, rétt áður en hann
fór á sefingu.
Karlmennirnir þurfa ekki að
kvarta, því nóg er til handa þeim og
þar á meðal þessir munir á meðfylgj-
andi mynd. Mappan er úr mjög fínu
svínaskinni, fóðruð öll að innan og
er með rennilás og mörgum hólfum
' enda er verðið ekki dónalegt, 800 —
900.00 kr.
Ekki halda menn berhentir á slik-
um gripum og því eru hanzkarnir
fóðraðir og mjög mjúkir á einar
180.00 kr.
Seðlaveskin eru heldur ekki af lak-
ari endanum, úr geita- og kálfskmni
með myndahólfum, frímerkjahólfum,
renniláshólfum og mörgum íleiri.
Bæði veskin kosta um 200.00 kr.
Seðlabuddan er úr sama efni, einn-
ig mjög smekklega unnin, nýju seðl-
arnir komast vel fyrir og hún kostar
um 160.00 kr.
Nú skaltu láta bjóða þér út og sjá
hvort þú takir þig nú ekki vel út.
varð ekki mikið um og skipaði okkur
að koma okkur í gagnið. Þá er við
tiplum í hálkunni dettur okkur í hug
að leita æðri menntunar og skjót-
umst inn i íþöku, en svo nefnist hús
eitt í miðbænum og þar er kaffistofa
menntskælinga til húsa. Strax og
gáfnaljósin verða þess vör, að rollur
nokkrar eru komnar í túnið, kalla
þau á Möggu. — Magga, Magga,
komdu og láttu taka af þér mynd.
Þar sem Magga vill ekki koma,
var tekið Það ráð, að Ijósmynda aðra
stúlku. Sú er ekki alveg á því, að láta
taka myndir af sér, svona með frekju
og vill ekkert með okkur hafa. Við
Sidney Poitier hefur þegar getið
sér nokkurrar frægðar með leik sín-
um í myndunum — Flótti í hlekkjum
— og einnig í Hollywoodútgáfunni af
— Porgy og Bess. — Myndin hér að
ofan sýnir hann I hlutverki Porgys,
bæklaða betlarans. Hingað til höfum
við aðeins fengið að heyra í Sidney
sem Porgy, en vonandi verður þess
ekki langt að bíða, að myndin komi
hingað og við fáum að sjá hann lika.
bréfaviöskipti
Rósa Jónsdóttir og Aðalbjörg Karls-
dóttir, báðar að héraðsskólanum á
Laugum, óska eftir að skrifast á við
pilta á aldrinum 17 til 19 ára. —
Guðlaug Magnúsdóttir, Fagurhlíð,
Landbroti, Vestur-Skaftafellssýslu vilí
komast í bréfasamband við pilt á aldr-
inum 15 til 17 ára. — E'ftirfarandi
stúlkur allar að húsmæðraskólanum
Laugalandi, Eyjafirði, óska eftir
bréfasamböndum. Auður Öskarsdótt-
ir, Kristín Jónasdóttir, Kristín Hjalta-
dóttir, Þuriður Jóna Thorlacíus og
Jóna Jónsdóttir. — Margrét Stein-
arsdótir, Strandgötu 9, Hnífsdal, V,-
Isafjarðarsýslu óskar eftir bréfasam-
bandi við pilt eða stúlku 16—18 ára.
nytt
Svo er hér fréttatilkynning frá
Félagi Frímerkjasafnara.
Frá 1. desember 1960 mun Félag
Frímerkjasafnara i samvinnu við
póststjórnina hefja upplýsingasLarf-
semi fyrir almenning. Verður þessi
starfsemi rekin í herbergi félagsins
að Amtmannsstíg 2, II. hæð. Opið
verður alla miðvikudaga kl. 8—10 e.
h. og verða þar sérfróðir menn til að
veita upplýsingar um allt, er að frl-
merkjasöfnun lýtur. Þjónusta þessi
er ókeypis og sérstaklega ætluð yngri
söfnurum.
kvilcniyndir
Svo er nú eitthvað fyrir alla. Og
það er Bandi. En það er skautaleik-
ur sem er nokkuð skyldur hockey
Hann er að vísu ekki hugsaður fyrir
lið eins og í hockey, heldur geta eins
margir og vilja tekið þátt í leiknum.
Bandi er að Því leyti frábrugðið
Hockey, að notaðar eru kúlur en ekki
plötur. Svo má vera 1 hvers kon-
ar búningi sem er. Ekki þarf alls kon-
ar hlífar. Hann er mjög vinsæll í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð. Iðk-
aður þar á hvers konar svellum,
tjörnum og vötnum og hvar sem hægt
er að koma skautum við. Bandisteng-
urnar á myndinni kosta um og yfir
hundrað krónur. Kúlurnar 30 tií 40
kr. Skautarnir um 700.00 krónur.
Prjónatrefill á 130.00. Skíðablússa á
250.00 og skíðahúfur á 100.00 til
200.00, en það er mjög þægilegt að
vera klæddur einhverju léttu í þess-
um leik. Svo óskar Vikan ykkur góðr-
ar skemmtunar.
r hópnum
Það var ekki hundi út sigandi, en
blaðamenn teljast sem kunnugt er
tll lægri húsdýra, svo ritstjóranum
Arndís Gná.
snúum okkur undan og látumst
gleyma þessu, en lymskan prýðir
alla snjalla blaðamenn og þegar stúlk-
una minnst varir er tækið sett í gang
og búinn heilagur.
— Megum við ekki fá eins og lítið
viðtal?
— Nei, en fyrir hvern er þetta?
— Ef við megum taka aðra mynd
skulum við segja þér það.
— Allt í lagi.
Hópur menntskælinga hefur safn-
ast utan um blaðamennina og láta
góð ráð fjúka. Heiðurs okkar vegna
getum við ekki tekið mark á þeim,
þó sum ráð beri vott um furðulegt
gáfnafar. Að myndatöku lokinni fá-
um við stúlkuna til að setjast við
borð með okkur og leggjum fyrir hana
nokkrar fáfengilegar spurningar.
Hún kvaðst heita Arndís Gná Theo-
dórs og okkur setti hljóða, en settum
upp helgisvip.
-— Heyrðu annars, það er smáatriði,
sem okkur langar til að vita. Segjum
svo að við fáum hálsbólgu og förum
niður I Ingólfs Apótek, þá er það
segin saga að þú afgreiðir okkur þar.
Batni hálsbólgan ekki og við leggj-
umst á Landsspítalann, þá sjáum við
■ þér bregða fyrir þar lika. Hvernig
unvíkur þessu við?
— Ég á systur, tvær, önnur er
tvíburasystir mín og afgreiðir í Ing-
ólfs Apóteki og hin sem er ári eldri
og mjög lík okkur vinnur á rann-
sóknarstofu hjá Landsspítalanum.
— Þú segir nokkuð. En þú, í hvaða
bekk ertu?
— 3A.
— Eintómar stelpur, er það ekki?
— Jú, hvernig vissuð þið það?
— Leyndardómur blaðamennskunn-
ar, er ekki hundleiðinlegt í skólanum?
— Nei, það er bara reglulega gam-
an. Skemmtilegt félagslíf og mikið.
Svo eru kennararnir miðað við annað,
ágætir.
— Þetta segirðu bara til þess að
koma þér vel við þá.
— Ekki er það verra.
— Satt segir þú hin fróma. Nú,
áttu ekki eitthvert annað áhugamál,
«UC*N 19