Vikan - 29.12.1960, Blaðsíða 23
y.v.y.v.
Útgefandi; VIKAN H.F.
Ritstjórl: '
Gisll Sígurösson (ábm.)
Auglýslngastjúrl:
jahannes Jörundssgn.
FramkvaBmdastjóri:
Hílmar A. Krlstjánsson,
Rltstjórn og auglýslngar; Sklpholtl 33.
Slmar: 35320. 35321, 35322. Pósthólf 149.
Afgrefðsla og drclfíng: Blaðad rclf I n g.
Mlklubraut. 15, stml 15017. Verð I fausa-
sölu kr. 15 Askrlftarverð er 200 kr. árs-
þrlðjungslega, grelðlst fyrirfram. Prent-
un: Hllmlr h.f. Myndamót: Rafgraf h.f.
lubtld l ^ðl
&
í næsta blaði verður m. a.:
♦
♦
Líf hins lamaða — sönn frásögn úr daglega lífinu.
Þau hlutu verðlaunin: Mynd og frásögn af ungu hjón-
unum, sem hlutu húsgögnin í verðlanasamkeppni
Yikunnar.
tít á lífið. Smásaga úr Reykjavíkurlífinu eftir
Elías Mar.
Þátturinn hús og húsbúnaður: 1 híbýladeild.
Markaðsins.
Leynivopn áróðursins. Grein eftir dr. Matthías Jónas-
son í greinarflokknum, Þekktu sjálfan þig.
Karlmannafatnaður í ógöngum. Myndir og grein um
þá sjálfheldu tilbreytingaleysins, sem karlmannafatn-
aður er kominn í.
Fimm þúsund milljón rakblöð á einu ári. Grein um
rakblöð og rakstur.
Hestamenning. Smásaga eftir Óla Ágústar.
?
Getið þið fundið leiðina
Þarna í miðjum skóginum hjó pabbi jólatré á jólunum,
en það var varla, að hann rataði þangað. Haldið þið, að þið
ratið? Þið skuluð reyna.
i r ."*v
.v.v.v.v
v.v.v
ijl
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl): Þú ert staddur
á krossgötum í lífi þínu, og nú riður á að þú beitir
skarpskyggni þinni og veljir rétta leið. Þetta er mun
__ mikilvægara en þú gerir þér grein fyrir nú, en síðir
mun það koma þér í koll, ef þú velur ekki rétta le:ð.
Þú skalt varast allar þær freistingar, sem krefjast meiri pen-
ingaútláta en fjárhagurinn leyfir. Heillatala 5.
_______ Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þú tókst skyn-
samlega ákvörðun i síðustu viku. 1 þessari viku er
hætt við, að einhver, sem vill þér miður vel, reyni
_______að fá þig til þess að skeyta þessari ákvörðun engu.
Láttu ekki ókunna menn hafa of mikil áhrif á á-
kvarðanir þínar. Þér hættir dálítið til Þess. Þú kynnist ung-
um manni, sem þú munt umgangast talsvert næstu vikur, jafn-
vel enn lengur. Heillatala kvenna 4, karla 9.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júni): Það gerist frem-
ur lítið í þessari viku. Láttu ekki óþoiinmæðina ná
á þér tökum. Þú skalt aðeins varast eitt — að takn
þér trúnaðarstarf, sem þú megnar ekki að rækja tii
fulls. Það er að vísu erfitt að sætta sig við misbresti
sína, en þú ert svo sem ekki einn um misbresti. Atburður um
helgina veldur þér miklum heilabrotum.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júli): Þér hefur orðið
fremur lítið úr verki undanfarið, en ef viljinn er
annars vegar, getur þú bætt úr þessu svo um munar
í þessari viku. Á miðvikudag væri heppilegast að
ráðast. i þetta fyrirtæki, sem þú og góðvinur þinn
hafið á prjónunum. Um helgina skýtur vandamál upp koliinum,
sem þú færð aðeins við ráðið, ef þú lætur ekki eigingirni og
eiginhagsmuni ráða í einu og öllu.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Þú skalt fyrir alla
muni forðast að taka stórar ákvarðanir i vikunni.
Næsta vika er mun betur til þess faliin. Þú ert dá-
lítið býlsýnn þessa dagana, en á sunnudag gerist
dálitið, sem verður til þess, að öll bölsýni fýkur út í
veður og vind. Líkur á skemmtilegu heimboði í vikunni. Var-
astu þá að sýna þann eiginleika, sem þú hefur til þessa for-
dæmt í fari annarra. Heillalitur rautt.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Nú fæst loks skor-
ið úr máli, sem hefur valdið þér nokkrum áhyggj-
um undanfarið, og verða lok þessa máls þér mjög
___ i hag Það gengur á ýmsu í vikunni. Þú skalt forð-
ast að byggja þér loftkastala, enda þótt bjartsýni
sé hverjum manni heilbrigð. Smáatvik um helgina verður til
þess að áform þín breytast talsvert. Heillatala 7.
Vogarmerkiö (24. sept.—-23. okt.): I þessari viku
skiptir þig mestu, að þú komir vel fram við þá menn,
sem þér er engan veginn vel við. Bf þú skeytir skapi
þínu á þér ókunnum mönnum, munt þú aðeins hafa
verra af. Amor verður mikið á ferðinni í vikunni og
verður þess valdandi, að þú lendir í tveimur skemmtilegum
smáævintýrum. Fimmtudagurinn er þér mjög mikilvægur,
einkum þó kvöldið. Heillalitur grænleitt.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Þú munt kynnast
mjög skemmtilegri persónu í vikunni. Varast skaltu
samt að vera ekki of uppáþrengjandi við hana, því
að það gæti orðið til þess að hún fjarlægðist þig
smátt og smátt, og væri það miður. Heimilislifið
verður mjög frábrugðið því, sem var i fyrri viku. Um helgina
átt þú á hættu að missa af gullvægu tækifæri, ef þú verður
óstundvís. Heillatala 4.
Bogmaöurinn (23. nóv.—21. des.): Mjög óvænt mun
þungri byrði — liklega fjárhagslegri,— létt af þér
fyrir tilstilli kunningja þíns. Reyndu nú að læra eitt-
hvað af þessari reynslu. Þú verður að líkindum beitt-
ur órétti í vikunni. Samt verður það til þess að þú
eignast nýjan og tryggan vin. Líkur á stuttri ferð um helgina.
Þér berst undarleg frétt í vikunni. Þú þarft samt engu að kvíða.
_______Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Satt er það, að þú
hefur tekið miklum framförum undanfarið, en láttu
samt ekki framgang þinn verða til Þess að þú ráðizt
í verkefni, sem þú ræður engan veginn fram úr. Þú
skalt ekki ráðast i nein stórræði á miðvikudag. Vik-
an er mjög mikilvæg fyrir trúlofað fólk, enda þótt það komi
ekki I ljós fyrr en síðar. Þú munt skemmta þér óvenjumikið í
vikunni, og er það vel. Heillatala 7.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Ef þú dvelst
að heiman í vikunni, skaltu gæta fyllstu varúðar í
samskiptum þínum við náungann, svo að ekki hljót-
ist verra af. Eitt kvöldið færðu heimsókn, sem þú
hefur lengi beðið eftir. Gleymska þin gæti orðið til
þess að þú missir af gullnu tækifæri. Vinur þinn kemur undar-
lega fram við þig i vikunni, en þú skait ekki áfellast hann,
nema þú vitir orsakir framkomu hans.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Hefur þú komið
nógu vel fram gagnvart vinum þínum undanfarið?
Stjörnurnar benda á, að vinum þinum misliki eitt-
hvað í fari þinu. Þú veizt bezt sjálfur hvað það er,
og sannarlega getur þú bætt úr því á stundnini. Lík-
ur á skemmtilegu heimboði. Ef þú þarft að tala frammi fyrir
mannfjölda. skaltu undirbúa þig vel.
•.•Y*V*V*»VoV*V*V*%W*W*V*V*V*V*#*V*V*V*v*v*v*v*v*v.