Vikan - 22.09.1960, Page 27
Draumar
Framhald af bls. 22.
vorum tvær saman í herbergi. Okkur vant-
aði klukku lil að vakkna við. Svo fengum
við l'jórar klukkur misstórar, tvær litlar, eitt
úr og eina stóra græna vekjaraklukku.
Með fyrirfram þökk.
Lína.
Svar til Linu.
Draumurinn merkir að einlwer, sem yfir
ykkur er settur, l’ylyist nákvæmlega með
yerðum ykkar.
Svar /il K. H.
Samkvæml beiðni dreymandans cr
draumurinn ekki birtur.
Ilætl er við stormasömum atburðum í
ástarlifi þinu á næstunni ef -marka rná
drauminn. Taktu þvi öllum skakkaföllum
mcð ró, þvi þá liða þessir erfiðleikatimar
hjá oy sólin mun brosa við þér á ný.
Kæri Drauinráðandi.
Fyrir nokkru dreymdi mig draum er ég
hef mikinn lnig á að fá ráðningu á.
Mér fannst sem ég kæmi inn í stóra skemmu
eða pakkhús í fylgd með manni er ég þekki.
Við gengum þar um og fannst mér scm við
værum að leita að stað er við gætum talast
við i næði. en það var allsstaðar fólk, liverl
sem við snerum okkur. Það var annað, sem
var all undarlegt, um alla skemmuna var hlað-
ið upp timþri og alls konar drasli, sem mynd-
aði alls konar göng og lu óka líkt og í völund-
arhúsi. Við leiddumst þarna, en það var sarna
hvaða leið við völdum, alls staðar var fólk
og gekk ýmislegt á, sumir voru við vinnu,
aðrir að skemmtun. Eftir langa stund fund-
um við stað er við gátum sezt niður á og
fannst mér við vera þar þó nokkra stund,
svo að segja óáreitt, en svo undarlega þar við
eð er við stóðum upp þá var allt fólkið og
draslið liorfið og við hlupum beint að skemmu-
dyrunum án nokkurrar hindrunar, en í þvi
sem við komum út þá vaknaði ég.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðningu.
Dreymin.
Svar lil Dreyminnar.
Auyljóst er af draum þinum, að erfið-
leikar miklir ern nú á sambandi þinu við
unnustann oy kemur það til af þvi að
tíminn er ekki fullnaður til þess að þið
yetið tekið endanlega höndum saman, en
það mun takast að lokum.
'i'il Draumráðandans.
Fyrir nokkru dreymdi mig einkennilegan
draum. Mér fannst ég vera búinn að eignast
rauðbrúnan hest og var ég ríðandi á hestin-
um ásamt konu minni, sem sat fyrir affan
mig, og vorum við á leið i þorp úti á landi.
Er við komum í þorpið og höfðum stigið af
baki bar fólk að til þess að skoða hestinn,
og sá ég strax að fólkið var all undrandi yfir
hestinum og fór ég að skoða hann nánar.
Sá ég þá, mér til mikillar undrunar, að geysi
stórt kýrjúgur var undir hestinum.
Draumurinn er ekki lengri, en mér finnst
hann all einkennilegur.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðninguna.
Maggi.
Svar til Magya.
Merkiny draurnsins er sú að þér mun
óvænl hlotnasl stuðningur frá opinberum
aðilum.
Til Draumráðandans.
Fyrir um það bil þremur til íjórum árum
dreymdi mig merkilegan draum. Ég átti þá
lieima inni í Hlíðum og fannst mér ég vera
að fara fótgangandi niður i bæ og slytti ég
mér leið og gekk yfir Landspitalalóðina, en
er ég var komin á móts við likhúsið heyrði
ég einhvcrn mann kalla og leit ég í áttina
þangað og sá ég þá mann i hvitum slopp
standa i dyrunum á likhúsinu og kallaði hann
aftur og veifaði annari hendinni. Leit ég þá i
áttina sem hann veifaði í, en þá sá ég að
sex menn eru að koma inn á lóðina með lik-
börur. Ég varð forvitin og fór á móti þeim
og spurði þá hvort eitthvað hefði komið fyrir,
en ég fékk ekkert svar.
Mér fannst vera lik á börunum, en fram-
an við það sá ég að það hafði verið raðað
sjö einkennishúfum, svo ég fór framfyrir bör-
urnar til að athuga hvers konar húfur þetta
væru, og sá ég þá að þetta voru allt húfur
af opinberum starísmönnum og var sú efsta
af háttsettum manni. Ég spurði nú aftur, hvort
eitthvað hefði komið fyrir og svaraði þá ann-
ar mannánna, sem bar fremst: „Þeir vildu
þetta.“
Og draumurinn er ekki lengri.
Kalli.
Svar til Kalla.
Draumurinn merkir hækkun hjá þér i
stöðu, eftir lanya oy harða baráttu. Hækk-
unin er þér þvi velkomin þar eð þú hefnr
unnið til hennar.
Hvað segja stjörnurnar um liæfileika yðar,
möguleikg og framtíð? ViljiÖ þér fá svar viö
þessu þá sendiö upplýsingar um nafn, heimilis-
fang og ár, fæöingarstaö og hvenær sólarhrings-
ins þér fœddust ásamt greiöslu i umslagi merkt
póstthólf 2000 Kópavogi og svariö mun berast yö-
ur meö pósti.
Lauslegt yfirlit (sðlkort) ........ kr. 50.00
Lauslegt yfirlit meö hnattafstööum .. — 100.00
Spádómar fyrir 1 ár kostar ........ — 200.00
Nákvæmt yfirlit meö hnattafstööum — 500.00
AÖ gefnu tilefni tökum viö fram aö fœðingar-
stund má helzt ekki skakka meira en 15 mínútum.
Þór Báldurs.
Bæheimskur kristal! —
draumur hverrar konu
Þessi hentuga og glæsilega
ávaxtaskálasamstæða i sex lit-
um. er sannkólluð prýði á
hverju borði. — En minnist
þess, að Bæheimskur krystall
er framleiddur eingongu í
Tékkóslóvakíu! — Spyrjið um
hann í öllum sérverzlunum.
GIASSEXPORT
PRAHA CZECHOSLOVAKIA
VIKAN
27