Vikan


Vikan - 13.10.1960, Side 35

Vikan - 13.10.1960, Side 35
Pósturinn Framhald af bls. 2 liollt að við horfum framan í staðreyndirnar um þessa marglofuðu menningu öðru hvoru og gerum okkur ljóst hve skurn hennar er þunn, þrátt fyrir allt. Og svo vil ég leyfa mér að endingu að biðja um sem flestar frumsamdar greinar um þjóðleg efni, það er lesning sem maður hefur alltaf áhuga á. Vinsamlegast. Lesandi. Það er eitt atriði í fyrra bréfinu, sem niig langar til að dveljast eilítið við — bréfritari virðist álíta að lengra sé síðan Eichman vann hryðjuverk sín, en það í rauninni er, og því séu þeir atburðir fjarlægir og ótengdir okkur, nútímafólki; svipað langt frá okkur og skemmtanir fornu valdhafanna í Róm. Hann mun síöur en svo einn um þetta, enda þótt hitt sé staðreynd, að böðullinn Eichman var af okkar kynslóð og nútímamaður. Fyrir bragðið verður grimmdin í Róm ekki fyrst og fremst tímabundið fyrirbæri, fylgifiskur einnar kynslóðar og menningartímabils, heldur eðlislæg kynfylgja mannkynsins á öllum öldum, sem hættulegt væri að gera sér ekki fyllilega grein fyrir. ÚTVARP í STRÆTISVÖGNUM — ENN. Kæri póstur. Ég styð þá tillögu, se-m kom fram i „póst- inum“ um daginn, að útvarp sé sett í strætis- vagnana, þó ekki til þess að vera alltaf i gangi, heldur aðeins til þess að fólk, sem er að fara á milli, geti hlustað á fréttirnar, því að margir verða, atvinnu sinnar vegna, að vera á ferðinni með strætisvögnunum einmitt á þeim tíma, sem hádegisfréttir eru sagðar, og þykir slæmt að missa af þeim. Þetta hefði kannski dálitinn stofnkostnað i för með sér en það er líka þjónusta við alinenning, sem áreiðanlega yrði vel tekið. Vinsamlegast. Strætófarþegi. Ekkert hefði ég heldur á rnóti því að út- varpsviðtæki yrðu sett í strætisvagnana ein- ungis f þessum tilgangi. Hins vegar finndist mér óþolandi að hafa þar glymjandi útvarps- tónlist allan daginn — maður fær nóg af henni, hvort eð er. Um það hygg ég líka að flestir muni mér sammála. — Ég hef grun um að hann hafi ætlað að reyna að drekka mig fulla! ÍBÚÐARHÚS Gnatuyrið Cetur GEG/V HITA OG KULDA +20° -t-20 Þér fáið einangTunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár- um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsneyti svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota- legri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). 8TEIMULL H.F. Lœkjargötu . Hafnarfiröi . Sími 50975.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.