Veðrið - 01.09.1969, Síða 31

Veðrið - 01.09.1969, Síða 31
inn tafði. í lok mánaðarins voru tún víða nægilega sprottin til að sláttur gæti hafizt, en þurrkleysi hamlaði. Fyrstu vikuna í júní var enn mikill hafís á Húnaflóa og Skagafirði og ófært á sumar hafnir. Jiftir þann 10. var ís lítt til trafala á þessu svæði og síðustu fregnir af ís bárust þann 19. A Langanessvæðinu var ekki getið um ís í júnf, hvorki við land né á siglingaleið. Júli. Vindátt var mjög breytileg í mánuðinum, en jjó voru austan og norðan áttir algengari. Hiti var undir meðallagi og alls staðar voru tíðar úrkomur. Heyskapur gekk því illa, nema á austanverðu Norðurlandi og á Norðaustur- landi. Þar komu góðir þurrkdagar á milli eftir þann 11. Náðust liey þar yfir- leitt óhrakin, og sums staðar var fyrri slætti lokið fyrir mánaðamót. Þar sem ástandið var verst á Suður- og Vesturlandi var hins vegar ekkert hey komið í hlöður enn og illa sprottið að auki. Ágúst. Fram til 17. ágúst var ríkjandi suðaustlæg átt. Á austanverðu Norður- landi og á Norðausturlandi var þurrviðrasamt, oftast sólskin og afbragðs hey- skapartíð. Vestar á Norðurlandinu voru svipuð hlýindi, en skúrasælt, og gekk bændum þar illa að þurrka. Annars staðar var stöðug vætutíð og stundum stórrigningar, einkum þó á Suðausturlandi og Austfjörðum. Urðu miklar vega- skemmdir á Jjeim slóðum. Þann 18. ágúst var lægð suður af landinu á austur- leið. Snerist vindur til norðurs og stytti nú loks upp á Suður- og Vesturlandi, og nokkru síðar, er norðanáttina lægði, lagaðist veðrið einnig fyrir norðan og austan. Þarna fengu bændur á svæðinu frá Suðvesturlandi til Vestfjarða og á Austfjörðum 3—4 samfellda Jnirrkdaga, bændur norðan lands 1—2 daga, en bændur í vestanverðri Skaftafellssýslu minna. Bjargaði þetta miklu á ójrurrka- svæðinu. Frá 23. til mánaðarloka var áttin yfirleitt á milli suðurs og vesturs og úr- koma flesta eða alla daga á Vestur- og Norðurlandi. Á Austfjörðum og Suð- austurlandi komu tvær smáþurrkflæsur með vestan átt. I heild var ágúst hlýr, en vætusamur og sólarlíti 11, nema norðaustan til. Þar var einstök gæðaveðrátta í allan máta. September. Fyrstu vikuna var hlý suðlæg átt. Vestan til á landinu var ein- hver úrkoma á hverjum degi, en Jnirrir dagar á milli austan lands. Komst liit- inn fyrir norðan yfir 15 stig. Þann 8. fór lægð með regnsvæði sínu austur yfir landið, en við tók norðan átt með slyddu á Norðurlandi, en björtu veðri fyrir sunnan. Dagana 10.—12. var stillt veður og skúrasælt, en Jjó mun sums staðar liafa verið úrkomulaust á Héraði og Austfjörðum. 13.—19. var veðrið svipað og í fyrstu vikunni, en fór síðan kólnandi allt til mánaðamóta. Skiptist nú á hæg suðvestan átt með skúrum eða éljum og norðlæg átt með éljagangi norðan lands. Náði norðan áttin Jró meir og meir yfirtökum. Þann 29. fór grunn lægð austur með suðurströndinni og olli óvenjulegri snjókomu miðað við árstíma VEÐRIÐ — 65

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.