Vikan - 19.01.1961, Síða 2
veitir ySur fullkomiS permanent og greiSslu að eigin vali—og
það er Even-Flo hárliðunarvökvinn, sem leysir allan vandann
Hið dásamlega nýja Toni gerir yður enn-
þá auðveldara en yður gat áður grunað,
að setja permanent í hárið heima og
leggja það siðan að eigin vild, — en það
er Even-Flo hárliðunarvökvinn, sem leysir
allan vanda; — því hann hæfir öllu hári
og gerir það létt og lifandi, sem í raun
og veru er aðalatriði fagurrar hárgreiðslu,
varanlegs og endingargóðs premanents.
HVAÐ ER AUÐVELDARA?
Fylgið aðeins hinum einföldu leiðbein-
ingum, sem eru á íslenzku, og premanent
yðar mun vekja aðdáun, vegna þess hve
vel hefur tekizt að gera bylgjurnar léttar
og lifandi.
GENTLE fyrir auðliðað hár
SUPER fyrir erfitt hár
REGULAR fyrir venjulegt hár
VELJIÐ TONI VIÐ YÐAR HÆFI.
Póstur góður!
í sumuin nýjum sambýlishúsum, sem ég hef
komið í, hef ég tekið eftir afar leiðinlegu fyrir-
brigði: Á hurðunum eru gæjugöt með gleri i•
Stundum er ekki opnað nærri strax, og maður
hefur það á tilfinningunni að það sé verið að
vega mann og meta gegn um gatið. Það er allt
í lagi að hafa svona göt á skólastofuhurðum
og fangaklefum, til þess að sjá hvað er þar inni,
en í híbýlum manna er þetta smekkleysi af
versta tagi. Jón Bh.
Ég skal segja þér það, Jón minn, að ég hef
meira að segja séð svona lagað gægjugat á
hurðum í gömlum húsum, og ég er alls ekki
á móti þeim, nema síður væri. Flestir hús-
ráðendur hafa einhvern tíma orðið fyrir því,
að á dyr þeirra hafa knúið menn, sem þeir
myndu alls ekki hafa Iokið upp fyrir, ef þeir
hefðu átt þess kost að sjá áður, hver var
úti fyrir. Og í sambýlishúsunum háttar víð-
ast svo til, að þar er dyrasími, svo ógaman
væri að verða til þess að fá einhvern óboðinn
inn á stofugólf til sín, t. d. einhvern ræfil.
sem af tilviljun hefur komizt inn niðri, og
eftir að hann er kominn inn er hreint ó-
mögulegt að losna við hann. Ég mæli ein-
dregið með gæjugötunum, þau geta losað
okkur við margvísleg óþægindi.
Leiðbeiningar
Pósturinn, gott kvöld.
Þakka margar ánægjustundir, sem blaðið
hefur veitt mér. Það er freistandi viðfangsefni
að fást við verðlaunakeppninnar. Þó hafa tvær
verið þannig útbúnar, að ég held að þið séuð
ekki á réttri leið, t. d. með listaverkin. Þeir,
sem búa i bæjum þurfa ekki annað en að ganga
upp á safn ef þeir voru í vafa. Það er auðvelt
að hringja i Loftleiðir og fá upplýsingar. Ég
veit að það er margt hugvitsamra manna hjá
ykkur, svo að ekki þurfið þið að vera í vand-
ræðum.
Ég hef áhuga á mörgu i blaðinu, t. d. hef ég
gaman af að lesa frásagnir af gömlum atburðum,
færða í skemmtilegan stíl.
Með árnaðaróskum
Sveitamaður.
P. S. Hvernig væri .að fá næstu framhalds-
sögu t. d. ferðasögu til framandi þjóða fléttaða
ævintýrum, eins og bækur hins danska Biích.
Greinar hans í danska blaðið eru mjög skemmti-
legar.
Afsakið ruglingslegan stil bréfsins.
Sveitamaður sæll.
Við höfum margsinnis áður á það bent,
að allir landsmenn hafa sama rétt til þess að
fara á Listasafn ríkisins og njóta þess á einn
og annan hátt. Sama er að segja um Loft-
leiðir, þangað mega allir hringja, sem vilja.
— Ábcndingin um framhaldssöguna verður
þakksamlega tekin til athugunar.
Hvernig er með Ketil
Vika mín góð.
Þú, sem leysir úr öllu, hlýtur að vita hvort
að Iíetill Jensson hefur sungið dægurlög inn á
2 VIKAN