Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 27
Hreinsunarvörur
Framhald aí bls. 16.
mikillar varkárni með iituð prjóna-
föt.
Fituhreinsiinarefni hreinsar alla
fitu og olíubletti og mtá nota á hvað
sein er, jafnvel veggfóður.
Kuk-blettavatn lireinsar hlek-,
blýants- og kúlupennastrik, ávaxta-,
rauðvíns-, sinneps- og súkkulaði-
hletti. Efni þetta er sem sagt mjög
gott á sterka bletti.
Ávaxtablettavatn hreinsar ávaxta-
bletti af öllum tegundum og inni-
lieldur engin bleikiefni. Skemmir
enga liti nema basíska.
Sviða-blettavatn hreinsar alla
sviðabletti og á að geyma á köld-
um stað.
Silfurhúðari er auðvitað ekki
beint blettavatn, en fylgir þó með
í seriunni, þvi að hann hylur bletti.
Notkun hans er mjög einföld og ef
hann er notaður reglulega kemur
bann í veg fyrir skemmdir á silfri.
Ofnhreinsunarefni hreinsar ofna
mjög auðveldlega, og losar þvi
margar húsmæður við það erfiða og
leiðinlega verk.
Og svo, fyrst við á annað borð
erum að tala um bletti, má ekki
ganga fram hjá undraefninu K2r,
blettaefni seni hreinsar bókstaflega
allt með ótrúlegum árangri. K2r
fæst bæði í túbum, sem áburður og
sem „spray“. í báðum tilfellum er
efnið látið þorna og burstað af eftir
nokkurn tíma.
í sambandi við öll þessi bletta-
efni viljum við ráðleggja ykkur að
lesa leiðavísana vel og nota þau ekki
fyrr en þið eru fullvissar um að-
ferðirnar, annars getur farið illa.
(Með öllum þessum efnum fylgja
leiðarvísar á islenzku).
Þá ætlum við næst að minnast á
tvo fægilegi, xannan fyrir silfur og
hinn fyrir kopar. Hvid Lyst silfur-
löginn er bæði hægt að nota á silfur
og silfurplett, mjög einfalt og fljót-
virkt i meðförum og rykar ekki frá
sér, þannig að hvorki hendur né
tuskur verða svartar. Þegar þið
fægið með Hvid Lyst, þurfið þið
ekki að nota krafta og Hvid Lyst
skilur engar rispur eftir sig.
Sama máli gegnir í alla staði um
Röd I.yst, sem fægir kopar og mess-
ing. Ef koparhlutur er mjög illa far-
inn getur borgað sig að nota Hvid
Lyst fyrst. Hvort glas fyrir sig kost-
ar kr. 23,20.
í þessari ferð rákumst við einn-
ig á mjög skemmtiiega nýjung, en
það er stívelsi, sem notað er sem
„spray“. Mjög einfalt í meðförum
og alveg tiivalið fyrir nælonskjört
meðal annars. Ekkert vatn, engin
gufa og engin bið eftir að flíkin
— Reyndu þó að inu bátinn, maBnr.
þorni. Stærri glösin kosta kr. 48,10.
Ekki má gleyma að kynna fyrir
ykkur t'eppahreinsara, ekki þetta
hávaðasama fyrirtæki sem rúllað cr
fram og aftur eftir gólfdreglum,
heldur undursamlegan vökva sem
hreinsar teppi og húsgagnaáklæði
eins og ekki neitt, Glamourene
Shampoo, og glasið kostar kr. 59,30.
Engin nútimahúsmóðir getur verið
án Glamorene Shampoo.
Að endingu viljum við segja ykkur
frá uppþvottadufti, það er að segja
fljótandi, sem kallast Softly. Betra
efni er ekki hægt að hugsa sér til
að þvo undirföt úr, fyrir utan það
að vera blandað ilmefnum, hvittar
það hvit undirföt og er stórprýði
i baðherberginu, vegna skemmti-
legrar pakkningar.
Nú ættu öll heimili að geta skinið
eins og gljáfægðir túskildingar og
það að tiltölulega fyrirhafnarlausu.
Brauð með pressu-
geri
Framhald af bls. 16.
KÚMENKRINGLUR (8 stk.).
250 gr hveiti, 70 gr smjörlíki, 2
msk. kúmen, 1 tesk. salt, 1 tesk.
sykur, 35 gr pressuger.
Búið til á sama hátt og ápur nefnd
deig, hnoðað, skipt í 8 hluta, rúllað
í lengju og mótað í kringlu. Látið
lyfta sér við yl. Penslað með eggi
eða mjólk. Kúmeni stráð yfir. Bakað
við um 225° í 8—10 mín. Smjör og
ostur borið með ef vill.
Deig með pressugeri eða perlugeri
er ágætt að búa til daginn áður eða
kvöldið áður en þau eru bökuð. Þá
er vætt í með köldum vökva og deig-
ið látið lyfta sér yfir nóttina AÖ öðru
leyti búið til á sama hátt og deig með
volgri lyftingu.
Bölsýn ung skáld
Framhald af bls. 14.
Menn virtust helzt vakna þá er
Dagur Sigurðarson hafði upp löluna,
enda brá þar fyrir húmor innan um
og saman við. Það virtist annars
helzti fátiður eiginleiki hjá þcim
hinum. Þau fluttu óð dauðanum og
vonleysinu, þunglyndinu og böisýn-
inni. Skal engan undra að menn
gerist syfjaðir undir slíkum lestri.
Það var auðsætt, að þessi ungu
skáld áttu það til að komast prýði-
lega að orði, en margir spurðu að
lestrinum loknum: Af hverju þuiffa
þeir að vera svona leiðinlegir? Það
er ckki þar með sagt, að æskilegra
væri, að þessir ungu menn spreyttu
sig á gamanvisnakveðskap i staðinn,
enda mundi þá liklega takast enn
báglegar. Það er eins og þeir yrki
aðeins þá er þeir eru i vondu skapi
eða þá, að ekki þreyti aðrir skáld-
skap af yngri kynslóðinni en böl-
sýnir leiðindadrjólar. ★
W-
Hér er heimsins sterkasta úr. Samt er það svo fallegt, að hver
og einn getur notað það við öll tækifæri. Oss hefir tekizt að
framleiða - með algerlega nýrri tækni - úr, sem standast högg,
sem myndu gersamlega eyðileggja önnur úr. Ennfremur eru
CERTINA-DS sjálf-vindandi, vatns- og höggþótt (reynd undir
20 loftþyngdarþrýstingi). Og að sjálfsögðu afar nákvæmt og
reglulegt.sem sæmir CERTINA.
& CE RTINA-DS
Selt og viðgert i rúmlega 75 löndum
CERTINA Kurth Fréres, S.A. Grenchen, Sviss
VUCAN 27