Vikan - 19.01.1961, Blaðsíða 17
Aðalprýði þessa fallega kjóls, er þessi silfur-
hærði blárefur, sem þarna er notaður í kvart-
jakka með feykilega stórum kraga og víðum
ermurn. Á ermunum er haft stórt uppslag.
Sérkennilegur pels, ba^ði notaður á daginn og
kvöldin, víður með hálfermum, sem brotið er
upp á. Töfrandi fallegur kragi úr perlulituðu
minkaskinni.
Til vinstri:
Þessi snjóhvíti pels úr ekta minkaskinni er
alveg fullkominn. Til að gera áferðina fallegri
eru skinnin saurnuð í, langsum og þversum til
skiptis. Þetta er fallegur pels við kvöldkjól eða
kokkteilkjól.
f miðið:
Skemmtileg persjiankápa í sérkennilegum og
nýtízkulegum brúnum lit. Töfrandi mjúkur
kragi úr minkaskinni setur svip sinn á kápuna.
Glæsilegur og fyrirmannlegur pels úr brúnu
mjúku marðarskinni, sem á slær fölblárri slikju.
Hér eru einnig stór uppslög á ermunum.
VIKAN. 17